Vera - 01.11.1995, Page 23

Vera - 01.11.1995, Page 23
konur r eru OltQf Edda Helgason framkvæmdastjóri Handsals rfumkvoðlar i r ekstr i Edda Helgason hefur látið talsvert til sin taka í íslenskum fjármálaheimi á undanförnum árum og fyrirtæki hennar, Handsal h.f., hefur nú sett á fjármagnsmarkaðinn nýjung í lánamálunum sem getur auðveldað fólki hið eilífa íslenska strit: íbúðarkaupin. Edda er ein af fáum konum á íslandi sem stjórnar fjármálafyrirtæki, en hún er framkvæmdastjóri Handsals h.f. Edda hefur kynnst jafnt íslenskum fjármálaheimi sem hinum alþjóðlega því á leið sinni heim frá námi í rekstrarhagfræði millilenti hún í fjármálaheími Lundúnaborgar, sem reyndar rúmar alþjóðaviðskiptin, og starfaði þar um nokkurra ára skeið, fyrst í Citibank og síðan við fyrirtæki sem hét Sleipnir og hún stofnaði. Áður en Handsal varð til tók hún einnig þátt í stofnun Glitnis, sem nú er í eigu íslandsbanka. Edda erfædd í Reykjavík en alin upp í Bandarikjunum. Hún flutti þangað ásamt fjölskyldu sinni fimm ðra gömul en kom heim aftur 17 ára og varö stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíö árið 1976. Hún hélt síöan aftur til Bandarikjanna og stundaði nám í hagfræöi og stjórnmálafræði viö Barnard College viö Columbíu háskólann I New York.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.