Vera - 01.11.1995, Qupperneq 26
dda helgason
greiöa heila íbúö á 2-5 árum. Viö slík skilyröi þarf
alltaf aö vera aö endurfjármagna og þaö er mjög
dýrt vegna stimpilgjalda og annars kostnaöar viö
lántökur. Þetta haföi einnig í för meö sér hagræö-
ingu og tækifæri fyrir lífeyrissjóöina til aö auka
sína ávöxtun því þetta var nokkuö góöur fjárfest-
ingarmöguleiki."
Edda telur aö fyrirtæki á borð viö Handsal geti
leyst opinberar lánastofnanir eins og Húsnæöis-
málastofnun ríkisins af hólmi og telur reyndar aö
þær séu tímaskekkja. Hún bendir á aö á síöustu
árum hefur oröiö til virkur fjármálamarkaöur á
íslandi og þaö hafi gerst mjög hratt því fyrir tíu
árum voru ekki einu sinni til plastik kort hér á
landi. Og það sé einmitt stööugleikinn sem hafi
skapaö þetta umhverfi.
Kona í karlaheimi
Edda er ein fárra kvenna í æöstu stjórnunarstöö-
um fjármálastofnana og eina konan sem er í
rauninni eins konar bankastjóri.
„Þegar ég kom heim fyrir fimm árum var ég
svo heltekin af því aö duga eða drepast aö ég var
bara ekkert aö hugleiða hvernig þaö væri aö vera
kona í þeim karlaheimi sem fjármálaheimurinn er.
Nú þegar ég er farin aö hafa meiri tíma til að spá
og spekúlera í þeim hlutum sé ég aö það hafa
ekki nógu margar konur komist í áhrifastööur hér
á landi og þær eru hlutfallslega miklu fleiri í
fjármálaheiminum þar sem ég þekki til erlendis.
Það er ákveðinn karlaklúbbur I þessum heimi hér
á landi sem kvenfólki er ekki veittur aögangur aö
og ég er heldur ekkert að
reyna aö ryöja mér til rúms
í þeim klúbbi. I upphafi var
reynt að koma í veg fýrir aö
Handsal yröi stofnaö, þaö
voru ákveönir aðilar sem
vildu ekki fá samkeppni.
Samkeppnin milli þessara
..oft er þaö þannig aö
konur passa ekki inn í
vinnumynstur stórra
fyrirtækja. Þá sjá þær hag
sínum betur borgiö meö því
aö stofna fyrirtæki og
aölaga það eigin lffi.“
fyrirtækja er líka mjög hörö núna en okkar
fyrirtæki veröur ekkert frekar fyrir barðinu á henni
en önnur.
Mér fannst mjög fyndiö að í könnun Sameinuðu
þjóöanna um jafnrétti komst ísland hvergi á blað
vegna þess að embættismennirnir svöruðu ekki
könnuninni, þeir höföu ekki tíma. Það er náttúrlega
ófyrirgefanlegt og þegar maður heyrir svona fréttir
spyr maður hvaö sé eiginlega að gerast."
Handsal er fýrirtæki sem stofnaö er af konu
og því er forvitnilegt aö vita hvort konur leiti frekar
til þess fýrirtækis en annarra og hvort fyrirtækið
reyni aö höföa sérstaklega til kvenna.
„Handsal var stofnað til aö sérhæfa sig I
fyrirtækjum og stofnunum og upphaflega gekk
kynningarstarfið út á þaö. Viö höldum áfram aö
vera tengd lífeyrissjóðunum og slíkum stofnunum
en meö 25 ára lánunum kom nýr þáttur I starfið
og ný tegund af viðskiptavinum. Fólk er fariö aö
átta sig á að við erum til og þannig koma tækifæri
sem viö áttuðum okkur ekki beinlínis á I upphafi.
Ég finn aö konur eru farnar aö gera sér Ijóst aö
þær þurfa að vera meðvitaðar um fjármál sjálfra
sín og heimila sinna. Oft eru þetta konur á
miðjum aldri sem eru farnar aö átta sig á því aö
þær þurfa hreinlega aö vita hvernig landið liggur.
Þær eru aö vakna til vitundar um að þær þurfi aö
vita meira og vilja ekki láta bara karlana um
fjármálin. Þær koma annað hvort meö eiginmönn-
unum eöa sjálfar I eigin nafni, barna sinna eöa
fjölskyldu. Færri konur úr atvinnulífinu hafa bein
samskipti en þaö fer þó vaxandi."
Neyðin kennir naktri konu að spinna
Edda fylgdist með þvl þegarfyrsti kvennabankinn,
„The First Womens bank", var stofnaöur I New
York en hún var þá I námi þar. Konum fannst þær
ekki teknar alvarlega þegar þær leituöu til banka-
stjóra þannig aö þar var greinilega markaðsþörf
fyrir slíkan banka.
„Þaö skiptir máli aö I bönkum og fjármagns-
fyrirtækjum sé vilji til aö þjónusta fólk og hlusta á
það og aö sjálfsögöu veröur aö vera gagnkvæmt
traust milli aöila. Ég hef ekki svar við þvl hvort
kvennabanki sé nauðsynlegur hér á landi, öli
starfsemi okkar byggist á verðbréfum þannig að
við erum ekki að meta rekstrargrundvöll lána. Ég
get því ekki metið hvort konum sé hafnað á
öðrum forsendum en körlum. Ég vil þó benda á
þaö aö samkvæmt erlendum tölum eru konur
oftar en karlar frumkvöölar I eigin rekstri. Ég hef
ekki séö tölur um þetta hér á landi en þaö kæmi
mér ekki á óvart aö svo væri einnig hér. Þaö
sprettur kannski af því aö neyðin kennir naktri
konu aö spinna, því oft er það þannig aö konur
passa ekki inn I vinnumynstur stórra fyrirtækja.
Þá sjá þær hag sínum betur borgið meö þvl aö
stofna fyrirtæki og aölaga þaö eigin lífi. Þaö er líka
athyglisvert aö flest ný störf I Bandaríkjunum
skapast I litlum fyrirtækjum en ekki stórum."
Eins og fram hefur komiö hér aö ofan hrærist
Edda I karlaheimi frá morgni til kvöids. Hún er þó
ekkert ó-„kvenlegri“ aö sjá og heyra en hver önnur
okkar og því vaknar lokaspurningin:
- Hvernig ræktaröu I þér kvenpólinn?
„Ég á margar góöar vinkonur," segir hún og
brosir. „Þær starfa ekki I fjármálaheiminum og
vita reyndar sem minnst um hann. Aörir vinir mínir
eru líka alveg lausir viö þennan heim þannig aö
þegar ég hitti þá kúpla ég mig alveg út og stlg inn
I annan heim. Þá verö ég mln eigin persóna og
mér finnst þaö alveg ágætt."
Viðtal: Sonja B. Jónsdóttir
Myndir: bára