Vera - 01.11.1995, Síða 37

Vera - 01.11.1995, Síða 37
) Thorvaldsensfélagið, sem er elsta starfandi kvenfélagið í Reykjavík, hélt upp á 120 ára afmæli sitt T byrjun október. Af því tilefni var sett upp sýning á myndum úr sögu félagsins í Ráðhúsi Reykjavíkur. Thorvaldsensfélagiö er fyrst og fremst líknarfélag og hefur t.d. stutt við bakið á barnadeild Landakotsspítala sem nú hefur verið flutt á Borgarspítalann. í tilefni afmælisins gaf félagið barnadeildinni fimm milljónir króna í sumar. Thorvaldsensfélagið hefur einnig stuðlað að aukinni menntun kvenna, m.a. með námskeiðahaldi og unnið að bættum möguleikum kvenna, t.d. gáfu þær Reykjavíkurborg fullbúið barnaheimili árið 1959. Á afmælishátíðinni fluttu margar konur í félaginu ávörp og í ávarpi sínu gerði borgarstjórinn, Ingibjörg Sólrún GTsladóttir, að umtalsefni það mikla og óeigingjarna starf sem konur leggja af mörkum til líknar- og velferðarmála og þá gjarnan á vettvangi kvenfélaganna. Ingibjörg Sólrún minntist þess einnig í ræðu sinni að fyrsti formaður Thorvaldsensfélagsins, Þórunn Jónassen, sat í bæjarstjórn Reykjavíkur fyrir kvennalista sem boðinn var fram í byrjun aldarinnar. Á myndinni má sjá stjórn félagsins, en núverandi formaður er Þóra Karitas Árnadóttir. VERA óskar félagskonum í Thorvaldsens- félaginu innilega til hamingju með afmælið. til h mingju

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.