Ritmennt - 01.01.2004, Síða 28

Ritmennt - 01.01.2004, Síða 28
KRISTÍN BRAGADÓTTIR RITMENNT veitti siðum, húsakynnum og lclæðnaði ís- lendinga mikla athygli. Hann varð uppnum- inn af íslenska kvenbúningnum og skrifaði oft um hann. Þá var hann mjög áhugasamur um mat og drykk sem honum var borinn á bæjunum. Um viðurgjörning skrifaði hann ítarlegar lýsingar. Hann er á öndverðri skoð- un við flesta útlendinga sem töldu kost ís- lendinga ekki aðeins sérkennilegan heldur auman. Hann lofaði í hástert allan mat og drykki sem hann félck hér. Margsinnis fór hann lofsorðum um silunginn, lambakjötið, eggin og upprúllaðar pönnukökur og þreytist ekki á að segja frá því að svo gott kaffi væri ekki í hvers manns bolla í Bandaríkjunum. Fiske hitti sennilega alla áhrifamenn landsins. Milli hans og séra Matthíasar Jochumssonar, ritstjóra Þjóðólfs, myndaðist góður vinskapur, sem hélst á meðan báðir lifðu. Skiptust þeir títt á bréfum, tveir and- ans menn sem nutu samvista og viðræðna. Fislce hvatti til að rústir og sögustaðir lands- ins væru rannsakaðir og var með á stofn- fundi Fornleifafélagsins heima hjá skáldinu. Segir séra Matthías svo frá í sjálfsævisögu sinni „Sögukaflar af sjálfum mér": Það var í húsi mínu, sem stofnað var hið svo- nefnda „Fornleifafélag". Var það mest fyrir hvat- ir Islandsvinarins mikla, próf. Willard Fislce. Bauð ég honum í hús mitt ásamt fleiru stór- menni bæjarins og var þá félagið stofnað.21 Fiske, sem eins og margoft hefur kornið fram var mjög menningarlega sinnaður og vildi láta til sín taka við ýmiss konar um- bætur, lá ekki á liði sínu í þessu máli frem- ur en öðru. Síðar átti hann eftir að senda marga góða gripi til safnsins, er nú ber nafn- ið Þjóðminjasafn íslands og varðveitir þessa muni. Meðal annars sendi hann gripi frá ferðum sínum til Egyptalands, en þeir eiga ekki sína líka hér á landi. Alþingismenn héldu landshöfðingjanum veglega veislu 24. ágúst á lofti Lærða slcól- ans og vildu votta honum þalckir þings og þjóðar fyrir frammistöðu hans í starfi. Ann- ar heiðursgestur þessa boðs var Willard Fiske, og mátti vart á milli sjá hvor þeirra naut meiri athygli. Grímur Thomsen mælti fyrir minni Fiske sem vitaskuld svaraði fyr- ir sig og þótti ná til veislugesta með mikilli prýði. Matthías birti ræðu hans að hætti þessa tíma í blaði sínu: Eg hefi lesið flestallar ferðabækur, sem segja frá íslandi; það var því ekki liðin löng tíð eptir að eg lagði að landi í Húsavík, áður en jeg átti það víst, að eg væri landinu öldungis ókunnugur. Garðar Svavarson var elcki eins óvitandi eins og eg, þeg- ar hann lcom til Húsavíkur, af því að hann hafði siglt „umhverfis landið", sem landnámsbók seg- ir frá, og af því að hann hafði aldrei lesið neinar enskar ferðabækur! Mér var allt nýtt, því að allt var öðruvísi, en eg hafði ímyndað mér það, og miklu betra, en hinum vitru herrum ferðamönnum hafði fundist það. En fyrir mér var allt líka gamalt, því mér fanst það eklci svo ólíkt ættjörðu minni. Himin- inn og fjöllin, dalirnir og engjarnar, lækirnir og blómin, allt þetta var hið sama, sem í Vestur- heimi. Og þegar eg gekk inn í búðina í Húsavík sá eg bændur, sem voru að verzla - hina fyrstu ís- lenzku bændur, sem eg hafði séð - og var mér ómögulegt að ímynda mér að eg væri annarstað- ar en upp í sveit í Ameríku á meðal amerik- anskra „farmers". Mér sýndist sem eg sæi hina gömlu landnámsmenn okkar, sem fóru frá hinu gamla Englandi til hins nýja Englands, og létu reisa þar máttugt ríki á jarðlausum klettum þess- arar landsdeildar, sem þeir kölluðu New England 21 Matthías Jochumsson. Sögukaflar af sjálfum mér, 2. útg. Reykjavík; ísafold, 1959, bls. 276. 24
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Ritmennt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.