Ritmennt - 01.01.2004, Page 77
ritmennt
ÁHRIF HUGMYNDAFRÆÐI GRUNDTVIGS Á ÍSLENDINGA
Heimildir, sem fyrir liggja um tilurð laga UMFA og UMFÍ, eru
ekki mjög ítarlegar, en megindrættir í lagasamningarferlinu eru
ljósir. Til er vitnisburður Jóhannesar Jósefssonar, sem var aðal-
hvatamaðurinn að stofnun UMFA, um uppliaf félagsins og tilurð
fyrstu laga þess. Þegar Jóhannes dvaldist í Björgvin við nám vet-
urinn 1904-05, starfaði liann í ungmennafélaginu Ervingen þar í
borg.38 Heimkominn hitti hann vin sinn, Þórhall Bjarnarson,
sem hafði stundað nám við Askovskóla þennan vetur. í bóldnni
Ungmennafélög íslands 1907-1937 er sagt, að Þórhallur hafi
„lcynnzt þar, þótt ótrúlegt megi virðast, norslcum æskulýðsfé-
lagsslcap."39 Jóhannes segir svo:
Við Þórhallur áttum ... ýmislegt órætt saman er við hittumst á Alcureyri
sumarið 1905; ég uppfullur af norskræktuðum baráttuhug og hann
þungaður af frelsishugsjón Grundtvigs-kenningarinnar.
Elcki vorum við ósammála um það, að tímabært væri að íslenzk æska
bæri sig að láta eitthvað að sér lcveða í lokabaráttunni fyrir sjálfstæði
þjóðarinnar. Þótti oklcur eymdarskapur landa okkar nú því verri en
áður, að við höfðum nú sjálfir kynnzt þeirri mannlegu reisn, sem æslcu-
lýður Danmerkur og Noregs hafði tileinkað sér.
Nú lcomumst við að þeirri niðurstöðu, að flest væri líkt með norslcu
ungmennafélagshreyfingunni og Grundtvigshreyfingunni dönsku og
létum okkur til hugar lcoma að andi þessara hreyfinga mætti verða til
vakningar hér uppi eklci síður en með frændþjóðum oklcar. Það varð því
niðurstaðan, að nú skyldum við freista þess að stofna ungmennafélag
við Eyjafjörð.40
Þórhallur Bjarnarsoii
(1881-1961).
Síðar segir Jóhannes, að lög félagsins liafi þeir Þórliallur samið í
sameiningu.41 Þau eru í ýmsu lík lögum norslcu ungmennafélag-
anna.
Félagar í Ungmennafélagi Alcureyrar áttu síðan frumlcvæði að
því að efna til stofnunar landssambands. Var lcjörin þriggja
rnanna nefnd til að semja upplcast að lögum fyrir landssamband-
ið, og var Jóliannes Jósefsson einn nefndarmanna. Helztu þættir
þeirra, lrvað stefnuslcrá varðar, eru í samræmi við lög UMFA.
Upplcastið var samþylclct í meginatriðum á stofnfundi UMFI
38 Geir Jónasson. Ungmennafélög íslands 1907-1937, bls. 92.
39 Sama rit, sami staður.
40 Stefán Jónsson. Jóhannes á Borg, bls. 89.
41 Sama rit, bls. 91.
73