Ritmennt - 01.01.2004, Qupperneq 141
RITMENNT
SKÁLDSÖGUR INDRIÐA G. ÞORSTEINSSONAR
aðartíma, er hinu dramatíska uppgjöri við harðsótt kreppulíf lýst
á einkar áhrifamikinn hátt.
Unga bóndanum, aðalsögupersónunni, má lílcja við hetjur
fornsagnanna, sem eiga um tvo kosti að velja, en hvorugan góð-
an. Annar er að gera tilraun til að hokra áfram á jörðinni, ofur-
seldur lánardrottni, sem segja má að hafi líf hans og örlög í sinni
hendi, en hinn er að rífa sig lausan, með því að yfirgefa allt og
verða andlega frjáls úr þessum viðjum en að sama skapi örsnauð-
ur veraldlega, það er eiginlega gera ófyrirsjáanlega tilraun til að
nema aftur land, án þess að vita hvað örlögin beri sér í skauti í
nýjum heirni eða með öðrum orðurn heimi nýrra tíma.
Hliðstætt því sem hófst í Sjötíu og níu af stöðinni, er sögusvið
Lands og sona markað af staðanöfnum frá æskuslóðum höfund-
arins ekki langt frá Varmahlíð í Skagafirði, þar sem sést út Lang-
holtið, yfir Eylendið eða Hólminn og Héraðsvötnin, oft en ekki
alltaf rituð með litlum staf.
Sagan hefst í morgunsárið síðsumars, á því að gamli bóndinn
gengur út í varpann. „Þaðan horfði hann yfir túnið hvítt af hrími
og ána fyrir neðan. Enn sást ekki yfir eylendið þar sem vötnin
kvísluðust í djúpum hægstreymum kvíslum og hnigu til hafs á
smágáruðum sandbotninum." - Þegar gamli maðurinn fær fyrir
hjartað, er hann fluttur eftir veginum út langholtið á sjúkrahús-
ið á Króknum, það er eins og Sauðárkrókur er alltaf nefndur í
daglegu tali. - Og þegar rútan er komin, sem flytur unga rnann-
inn á brott frá heimahögum sínum, skimar hann í áttina að bæ
stúlkunnar, sem hann vonaði að kæmi á síðustu stundu til fund-
ar við hann. „ ... svört slóð vatnsins bugðaðist út hvíta breiðu
eylendisins undir hólnum", það er Reykjarhólnum, en rútan
stansar þar enn í dag í Varmahlíð, „og veginum sem hún hafði
ekki gengið og hafði ekki verið sporaður þennan morgun."
Þjófur í paradís
Þriðja skáldsaga Indriða, Þjófur í paradís, kom út árið 1967. Urn
þessa sögu er það að segja að hún er að vissu leyti sérstök, bæði
hvað varðar fyrrnefndar sögur og þær sem komu síðar frá hans
hendi. Sögusviðið er sveitasamfélagið fyrir og á mörkum tækni-
aldar eða um og fyrir 1945. Hér var hins vegar sldrskotað ná-
kvæmlega hvað varðar heildarþráðinn til þekktra athurða frá
uppvaxtarárum höfundar á áðurnefndum slóðum norður á Lang-
137