Vera - 01.10.1999, Page 12

Vera - 01.10.1999, Page 12
! eftirspurn hérna að stelpurnar segja að vændis- kona á Islandi gæti búið á Arnarnesinu og átt flottan Bens. 1 m li n SUi DÁNSARAR Í HVERRI VIKU UM RE6NBOGANS LITUM • f flvallt hjantanleqa uelhominl Lau£avo£ur 4B S: Bll - OBSB 60.50á mlnútu I >< ~TJ CZ % > CP o E sn3 ekki á okkur. Tungu- málaerfiðleikarnir hjá stelpunum sem koma austan að hafa auðvitað mikil áhríf á samskiptin. En þó þær tali ekki allar ensku þá skilja sumar enskuna og þær geta gert sig skiljanlegar á ann- an hátt. Þær eru auðvitað eins misjafnar og þær eru margar og hafa ekki allar átt neitt sældarlíf heima fyrir. Sumar þeirra eru mjög illa staddar andlega. Og svo kæra þær sig ekkert allar um að kynnast okkur íslensku stelpunum sem dönsum með þeim. Þær eru oft í vörn gagnvart okkur því við höfum það fram yfir þær að tala íslenskuna. Margir eldri menn í hópi viðskiptavina tala ekki ensku og þess vegna gefa þeir sig frekar að okk- ur íslensku stelpunum og vilja okkur frekar í einkadans. Þetta eru einmitt eftirsóknarverðustu kúnnarnir, þeir eru flestir kurteisir og örlátir á peningana sína." Mikil eftirspurn eftir vændi Allt gengur þetta út á að hamra járnið meðan heitt er og mjólka sem mestan pening út úr þeim sem eru búnir að bíta á agnið. En reyna viðskipta- vinirnir þá ekki mikið að snerta þær, þó það sé bannað, þegar þeir eru komnir einir á bak við tjald með þær og þær auk þess að reyna að laða fram meiri gjafmildi? „Jú, þeir reyna margir hvað þeir geta en þetta er líka undir hverjum dansara komið. Vissulega er stundum aðeins slakað á reglunum án þess þó að ganga of langt. Ef karlinn reiðir fram mikla pen- inga og er ekki erfiður, þá er kannski allt í lagi að leyfa honum aðeins að strjúka fæturna á þér. Svo er þetta líka spurning um að vera góður I að Ijúga að þeim sem stöðugt eru að bjóða fram pening fyrir samfarir. Láta þá borga fyrirfram á forsend- um loforðs um eitthvað meira sem þeir svo ekki fá." En hvað eru menn að bjóða háar upphæðir fyrir samfarir? „Það er mjög misjafnt. Algengast er að karlarnir bjóði um 50.000 krónur. Stundum fer það upp I 200.000 og svo eru til einstök tilfelli þar sem boð- ið er hærra. Einu sinni fór kanadísk stelpa heim með mjög fullorðnum manni sem borgaði henni 500.000 krónur fyrir að lúlla hjá sér. Konan hans var dáin og hann vantaði bara einhvern til að halda utan um sig og klappa sér. En svo eru líka til dæmi um ótrú- lega lágar upphæðir. Ég veit um strák sem keyp- ti sér drátt hjá dansara fyrir 3000 kall og þau gerðu það auk þess inni á dansstaðnum þar sem hún var að vinna þó að það sé stranglega bann- að að stunda vændi inni á stöðunum." En gera eigendur staðanna eitthvað í því að reyna að koma í veg fyrir vændi, annað en að banna það inni á stöðunum sjálfum og hafa dyraverði sem fylgjast með einkadöns- unum? „Við vitum um nektardansstað hér í bænum þar sem fyrirkomulagið er þannig að erlendu stelp- urnar sem dansa þar eru keyrðar í vinnuna og aft- ur heim eftir vinnu. Þeim er sagt að bannað sé að stunda vændi inni á staðnum en að þeim sé frjálst að gera hvað sem er eftir að þeim hefur verið skil- að heim úr dansvinnunni. Það gefur augaleið að þær sem ætla sér að selja sig fara þá aftur út og gera það. Auðvitað kynnast þær flestum kúnnun- um á dansstaðnum.' Eigandi þessa staðar hirðir hluta af þeím pening sem þær vinna sér inn með vændi fyrir utan vinnutíma. Vinnuveitandi okkar beitir aftur á móti sektum til að koma í veg fyrir vændi. Hann segir þeim strax í upphafi að ef hann komist að því að þær séu að selja sig fái þær 250 dollara (18.500 kr.) sekt fyrir fyrsta skipti, 500 dollara (37.000 kr.) fyrir annað skipti og í þriðja skipti séu þær sendar heim og fái aldrei að koma aftur. Og þær sem búa með þeirri sem brotið hefur þannig af sér fá sömu sekt. Þær eru því duglegar að Ijóstra hver upp um aðra. En auðvitað er aldrei alveg hægt að koma í veg fyrir þetta. Við heyrum stundum þeg- ar þær eru að tala saman að það eru alltaf ein- hverjar sem eru að selja sig. Við höfum líka heyrt setningar inni á staðnum þegar þær eru að spjal- la við kúnnana, eins og þessar: „If you want a blowjob, it's one thousand five hundred." (Ef þú vilt munnmök kostar það 1500). Kúnnarnir spyrja mikið um hvað þær taki fyrir samfarir eða munnmök og þeir virðast oft hafa reynslu af því að geta gengið alla leið, því þeir segja stundum: „Ég vil ekki eínkadans með þér af því ég veit þú lætur ekki ríða." Það er svo mikil „Hvers veqna í ósköpunum ættum við að vakna á hverjum deqi klukkan átta á morqnana oq vinna til Pimm Pyrir 70.000 kall á mánuði þegar við qetum haFt það sama Fyrir að dansa eina helqi?“ Þær segjast vita af vændishúsi hér I bænum (öðru en þessu á Túngötunni) og að þaðan komi oft stúlkur í litlum hópum (4-5 saman) inn á dansstaðinn sem þær vinna á og gómi karlana þegar þeir eru heitir og bjóða þeim að koma með sér. En hvernig er með fíkniefnaneyslu á nektardansstöðum? „Þegar ég var að byrja að dansa fyrir fjórum árum varð ég aldrei vör við dóp á þessum eina stað sem þá var til. En svo var kanadískur framkvæmda- stjóri ráðinn til að sjá um staðinn og allt varð vað- andi í dópi á meðan hann var við völd. Hann var alltaf inni á klói að reykja eða taka I nefið. Hann flutti inn kanadískar stelpur til að dansa og þær voru ekkert að fela dópið sitt, enda var það með góðu samþykki framkvæmdastjórans. Maður sá þær vera að taka í nefið og annað slíkt inni I bún- ingsherberginu. Ég man sérstaklega eftir stelpu sem var að gleypa sýru, hún var með litlar Bart Simpson myndir sem hún stakk upp í sig og svo þegar hún átti að dansa þá stóð hún bara stjörf og gat ekki hreyft sig. Sá kanadíski vildi hafa þær sem mest vímaðar og hann þoldi t.d ekki að ég skyldi ekkí drekka í vinnunni. Hann var alltaf að hvetja mig til þess og sagði að það væri miklu betra ef ég væri full því þá myndi ég selja betur. Ég harðneitaði og sagðist frekar vilja vita hvað ég væri að gera en að vera heiladauð af vímu. Hon- um var sem betur fer komið frá og á þessum stað I dag er hart tekið á dópinu. Eigandinn vill ekkert dóp á slnum stað og lætur leita á stelpunum sem dansa hjá honum." Hvernig er þetta á hinum stöðunum? „Á einum nektardansstað í bænum eru margar kanadískar stelpur og þeim fylgir alltaf mikið dóp. Þegar við vorum að dansa tímabundið é öðrum stað var eigandinn þar ekkert að fela sína eigin neyslu. Hann settist einu sinni bara niður í miðjum salnum eftir lokun og byrjaði að reykja jónu og bauð okkur smók eins og ekkert væri eðlilegra." Samkvæmt því sem þær segja virðist stúlkun- um vera í sjálfsvald sett hvort þær eru undir áhrif- um áfengis í vinnunni eða ekki. „Auðvitað kemur fyrir að við fáum okkur ! glas en oftast erum við edrú því þá er allt miklu auðveldara. Þá gengur betur að tala karlana til og fá þá til að vera góða ef þeir eru erfiðir. Þar sem við vinnum er fylgst vel með því að drykkja dansaranna fari ekki úr bönd- unum. Þær sem verða of fullar eru lóðsaðar út í hreint loft og reynt að hressa þær við, láta þær æla eða borða eitthvað svo mesta víman renni af þeim. Ef ekkert af þessu gengur upp eru þær bara keyrðar heim." Viðmælendur mínir segjast ekki finna fyrir for- dómum í sinn garð vegna starfsins og þær eru fljótar að svara þegar ég spyr þær að lokum hvort launin í þeim störfum sem bjóðast ómenntuðum konum séu svo léleg að það sé ástæðan fyrir því að þær séu að dansa nektardans: „Hvers vegna I ósköpunum ættum við að vakna á hverjum degi klukkan átta á morgnana og vinna til fimm fyrir 70.000 kall á mánuði þeg- ar við getum haft það sama fyrir að dansa eina helgi?" ( ( ( ( ( ( ( ( l I 4 12 • VERA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.