Vera - 01.10.1999, Síða 16

Vera - 01.10.1999, Síða 16
Kynl íFsFerðir ti I eftir Karen Capozza Vinsæl vefsíða heitir „Kynlífsferðir um allan heim" og þar er dregin upp sú mynd af Kúbu að hún sé algjör vændiseyja. „Flestar kúbverskar konur eru falar og ódýrar í ofanálag," er haft eft- ir einum gesti vefsíðunnar. Annar staðhæfir að „...það kosti aðeins 400 dollara á viku að vera sem soldán í eigin kvennabúri!" Byltingarstjórn Kastrós til ómældrar gremju hefur umfangsmikið vændi og kynlífssala sprottið upp fjórum áratugum eftir sigur sósíalista. Kúbverskar konur, myndin tengist ekki efni greinarinnar. 1959 var Kastró forystumaður byltingarhreyfingar sem velti einræðisherranum Fulgencio Batista úr sessi. Batista var skósveinn stjórnvalda í Washíng- ton, gjörspilltur varðhundur bandarískra fjárfesta. Einn af vinningum byltingarinnar var afnám vændis sem var landlægt á valdaskeiði Batistas enda var það einræðisstjórninni síður en svo á móti skapi því það lokkaði bandaríska nautna- seggi til eyjarinnar. Byltingarstjórnin kom á fót viðamikilli starfsþjálfun þar sem uppgjafa vændis- konur lærðu ýmislegt sem nýttist þeim vel í lífs- baráttuni. En 40 árum síðar er vændi orðið tor- leyst vandamál að nýju. Útbreiðsla vændis stafar fremur af efnahags- erfiðleikum en félagslegum breytingum eða nýj- um viðhorfum. Þegar Sovétríkin liðu undir lok og ríki Austur-Evrópu hurfu frá kommúnisma, misstu Kúbverjar 89% utanríkisviðskipta sinna. Fyrir þann tíma bjó alþýða manna á Kúbu við þokkaleg lífskjör enda nutu þeir góðra kjara (viðskiptum við Sovétmenn. Á öndverðum tíunda áratugnum heyrði það hins vegar sögunni til. Það bætir svo gráu ofan á svart að Bandaríkja- stjórn hefur ekki léð máls á að aflétta algjöru við- skiptabanni á Kúbu, en það torveldar stjórnvöld- um þar að afla sér nýrra viðskiptavina. Þvf hafa Kúbverjar ekki átt annars úrkosti en að snúa sér af alefli að ferðaþjónustu. Hún hefur vaxið hratt og ferðamenn flykkst til eyjarinnar, bæði frá Evrópu og Ameríku. Sá böggull fylgdi skammrifi að vændi kom með ferðaþjónustunni. Þetta „þjóðfélagsmein" varðar enn við lög en þó var það umborið í fyrstu og litið á það sem fórn sem yrði að færa meðan efnahagslífið væri í lamasessi. Miðborg Havana varð þjóðbraut vændis, þegar degi hallaði gat að Ifta ungar konur og aldnar falbjóða blíðu sína. Kastró fordæmir andfélagslegt athæfi Það var svo ekki fyrr en í janúar síðastliðnum að stjórnvöld gripu í taumana. Kastró forseti for- dæmdi „andfélagslegt athæfi" sem stöðugt færðist í aukana á götum Havana og lýsti yfir að brugðist yrði við því með fjölgun lögregluþjóna í miðborginni. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir dró ekki úr vændinu, það var hins vegar ekki stundað lengur fyrir opnum tjöldum. Aukin harka lögregl- unnar jók bara erfiðleika vændiskvennanna. Or- sök vandans er eftir sem áður almenn fátækt og ferðaþjónusta sem býður upp á ódýrt kynlff. Og stjórnvöld hafa ekki látið „starfsþjálfun- ina" fyrir róða. Hún fer fram í eins konar vinnu- búðum þar sem eftirlit er í lágmarki og reynt er að innræta forhertum vændiskonum sósíalfskt vinnu- siðferði. Samkvæmt upplýsingum yfirvalda hafði lögreglan afskipti af 7000 vændiskonum í Havana f fyrra. Margir telja þó að þær hafi verið mun fleiri, dregið sé úr vandanum til að koma í veg fyr- ir almennt uppnám. Litið er á Kúbu sem einn af helstu ferðaáföng- um alþjóðlegrar kynlífsþjónustu, eins og Tæland og ýmis lönd önnur. (Vestur Evrópu, Kanada, Jap- an og Mexíkó er boðið upp á pakkaferðir sem fyrst og fremst eiga að höfða til einhleypra karl- manna. Starfsfólk á helstu hótelum lætur sem það sjái ekki stúlkur sem „fylgja" gestum upp á herbergin. Og það sem blasir við á bakka sund- laugarinnar við Cobacabana hótelið er eins og afturhvarf til þeirra lostafullu tíma sem ríktu fyrir byltingu og ollu því að Havana var uppnefnd „Hin syndum spillta borg." Þarna liggja skvapholda karlar á miðjum aldri og láta sólina baka sig en kúbverskar ungmeyjar stjana við þá á alla lund. Einn þessara saurlífisseggja heyrðist hvísla að fé- laga sínum: „Hún kostar mig 50 dollara (3700 krónur) á dag, svo það er eins gott að hún standi sig í stykkinu." Stúlkan lést fyrst verða hneyksluð á þessum orðum en flissaði svo bara. Fjárhagsleg neyð hrekur konur út i vændi Kynlífsferðamenn hafa látið telja sér trú um að kúbverskar konur séu einstaklega bllðlyndar og veikar fyrir útlendingum og greiða þeim frá 5 og upp f 100 dollara fyrir þjónustu þeirra. Sumir leigja sér „unnustu" I viku í senn, aðrir fara á fund kvenna sem arka um strætin að næturþeli. Greiðsla er ýmist reiðufé eða „gjafir" - lúxusvör- ur sem ekki fást í verslunum á Kúbu, svo sem dýr fatnaður, ilmvötn og vandaðir skór. Þvf fer fjarri að vændiskonum sé sýnd almenn fyrirlitning á Kúbu. Yfirleitt eru þær ekki kallaðar vændiskonur heldur „jinetara", sem er eins kon- ar feluorð og vísar til allra sem reyna að verða sér úti um dollara ferðamanna með blíðubrögðum. Þessi faraldur ástúðar sem gengur kaupum og sölum, gerir byltingarsamfélag Kúbverja ótrúverð- ugt. „Hvernig getur maður trúað á orðagjálfur um Kú b u kommúnisma þegar konurnar leggja stund á 4 vændi? Ég þekki margar konur sem eru „jineter- as", en það er af brýnni þörf," segir Tomas Ochoa, tvftugur lyfjafræðingur sem sér sér far- borða með þvf að selja ferðamönnum vindla. Aðrír Kúbverjar hvika ekki frá þeirri bjargföstu sannfæringu sinni að svartur markaður sé ill nauðsyn á erfiðum breytingatímum, þjóðin njóti ekki lengur stuðnings Sovétmanna og reyni í lengstu lög að forðast gjaldþrot á viðsjárverðum tímum sem einkennist af alþjóðavæðingu efna- hagslífsins. „Við neyðumst til að höggva af okkur hand- legg til að farast ekki. En við spyrjum: Hve mörg- um útlimum eigum við að fórna til að verða ekki sóttdauð?" Þetta eru vangaveltur Alejandros, embættismanns f Kommúnistaflokknum. Saga Nönnu Nanna er tvítug og býr í Havana, einstæð móðir og atvinnulaus. Hún er ein þeirra fjölmörgu kvenna í höfuðborginni sem sagt hafa sig úr lög- um við ríki sósíalismans og lifir á vændi. Hún er afar fríð sýnum, með hrafnsvart hár, Ijósa húð og hlýtt bros, og tekur hátíðlega hlutverk sfn sem fyrirvinnu, móður, leigðrar ástvinu og ungrar konu. Nanna býr í smá kytru með syni sínum og y frænda. Það er öðru vísi um að litast í íbúð henn- ar en nágrannanna því þar má sjá dýran fatnað, skó og skartgripi. Þetta eru verðlaun sem Nanna hefur hlotið þau sjö ér sem hún hefur starfað sem „jinetera." Nokkur kvöld í viku hverri skilur Nanna þriggja ára gamlan son sinn eftir hjá grannkonu og fer á vinsæla túristabari f Havana. Eftir nótt með auð- ugum Kanadamanni sem siglir um á lystisnekkju, kemur hún heim með peningaseðla í veskinu, sækir son sinn, kaupir í matinn og gerir íbúðina hreina. Það er ávallt matur á borðum Nönnu en á mörgum kúbverskum heimilum er ekki svo. Hún er Ifka stolt af nútímalegum heimilistækjum sem hún á, svo sem myndbandstæki og hljómflutn- ingstækjum. „Ég fæ engin tækifæri f þessu þjóðfélagi. Hvað getum við svo sem gert?" spyr hún. Val Nönnu endurspeglar óánægju kúbverskrar æsku með kommúnistastjórn Castros. Gífurlegt atvinnuleysi og matvælaskortur hafa valdið því að margt æskufólk trúir ekki lengur á loforð bylting- arinnar. Óvissa ríkir varðandi stjórnarfar á Kúbu vegna versnandi heilsufars Castros og framtíðin er ótrygg. Ef ný ríkisstjórn gerir ekki gangskör að því að draga úr kynlífssölu er líklegt að vændi í núver- andi mynd verði viðvarandi á Kúbu. Koren Capozza er blaðakona sem býr í Mexfkóborg. Hún hefur búið og unnið í Suður Ameríku f nokkur ár og skrif- ar um stjórnmál og félagsmál samtímans út frá sjónar- horni femínista. þýtt úr WIN, VSV 16 • VERA

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.