Vera - 01.10.1999, Blaðsíða 26
Hvað er „gott líf"?
En sjálfsmynd okkar þroskast einnig í samskiptum við annað fólk. I við-
tali við Magnús Didrik Baldursson (1995) talar þýski félagsheimspeking-
urinn Axel Honneth um þrjár tegundir viðurkenningar í persónulegri
þroskamótun okkar. Hann tekur undir orð mín f upphafi þessa erindis
og talar um mikilvægi bernskunnar en hann skoðar viðurkenninguna
einnig frá sjónarhóli samfélagsins og talar um viðurkenningu réttarins
en þriðja tegund viðurkenningar, sem hefur áhrif á þroska okkar og l(f,
segir hann flóknasta og umdeildasta en hún hefur einkum spunnist í
kringum hina svokölluðu „samfélagshyggju". Þá snýst spurningin um
það hvort við séum aðeins handhafar réttinda eða aðilar sem bindast
sterkum böndum sameiginlegra gæða. Hann talar um það að frjálslynd-
ir hugsuðir séu þeirrar skoðunar að hlutverk ríkisins sé fyrst og fremst að
skapa almenna umgjörð og að spurningin um „gott líf" okkur til handa
eða hvernig við viljum haga lífi okkar sé einkamál hvers og eins. Samfé-
lagssinnar fullyrði hins vegar að heild samfélagsins geti aðeins starfað
eðlilega ef hinar smáu einingar þess geri það einnig. (Ijósi
þessa er heildin ekki aðeins formlegur rammi heldur
Iffræn heild sem verður að byggja á sögulegri hefð. Þá
má spyrja hvort slík þjóðernisleg hefðarhyggja sé
raunverulegur kostur nú á tímum eða rómantísk villa.
Honneth segir:
„Án sterkra tengsla á vettvangi einkalífsins
og persónulegra samskipta innan fjölskyld-
unnar er persónuþroski einstaklingsins í veru-
legri hættu. Um leið er það útbreidd skoðun að
þessi persónulegu samskipti verði ekki tryggð
nema jafnframtsé tekið tillit til ákveðinna rétt-
lætiskrafna. Með því er átt við jafnrétti karls
og konu, jafna skiptingu verka og viðurkenn-
ingu á sjálfræði barna."
(Magnús Didrik Baldursson, 1995).
Honneth segist sannfærður um að ekkert
þjóðfélag fái haldið velli ef persónuleg sam-
skipti og einkalífið fái ekki að endurnýjast
með lifandi hætti. Ríkisvaldið getur ekki tryggt
slíka endurnýjun með beinum afskiptum. En á
hverju ríki ætti að hvíla sú krafa að skapa fé-
lagslegar, pólitískar og menningarlegar aðstæður
fyrir lifandi persónuleg samskipti. Þá geta þjóðfélags-
þegnarnir aðeins verið virkir þegnar í pólitísku lífi að þeir eigi sér
frjótt einkalíf sem er lífsforsenda hvaða samfélagsgerðar sem er.
Honneth segir ennfremur:
„Réttlæti merkir ekki almennt og óhlutdrægt jafnréttisviðhorf, held-
ur sértækt viðhorf sem lætur sér annt um farsæld einstaklingsins. Ég
kem fram við fólk af réttsýni sem merkir ekkert annað en að ég sýni þvi
umhyggju eftir bestu getu."
Honneth, A., 1995.
Til þess að við aTtum olslsur á
mikilvægi þess að við þnrfum að
vera eigin bandamenn þurfum
við írið, næði og einveru.
Ég vék að því í upphafi að á fyrstu æviárunum mótast sjálfsmyndin
í samskiptum við foreldra og þá sem standa okkur næst. Er við eldumst
fara félagar að hafa meiri áhrif, skipa stóran sess í lífinu. Margvíslegar
aðstæður heima fyrir og í umhverfinu hafa sfðan áhrif á þroska okkar.
Ef við viljum efla heilbrigði okkar og þroska þurfum við að:
• þroska jákvæða og raunhæfa sjálfsmynd
• þroska góð og traust vinatengsl
• vera virk, finna tilgang með verkefnum okkar
Öryggi er undirstaða góðra samskipta við annað fólk og okkur sjálf
og að öðlast trú á okkur sjálfar og eigin möguleika. Það er okkar ábyrgð
að stuðla að persónulegum þroska. Það má gera á margvíslegan hátt.
Evelyn Stefánsson, ekkja Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar, var
hér fyrir nokkrum árum. í blaðaviðtali sagði hún að hún væri alltaf að
læra eitthvað nýtt og sagði.
„Aðferðin til að geta lært er að vera alltaf að læra eitthvað. Við vit-
um nú að maður getur útvikkað getu heilans með þvi að örva hann. Það
hefur ekkert með aldur að gera. Ef maður hættir að nota heilann, legg-
ur til hliðar þá hugsun að læra, þá verður hann óvirkur, en ef maður
heldur áfram að læra eitthvað áhugavert og skemmtilegt þá gengur
það."
(Elín Pálmadóttir, 1995).
Evelyn hefur lifað samkvæmt þessari kenningu, hlýjan og lífsgleðin
skein úr hverju hennar spori. Hún er nýlega hætt að vinna sem sálgrein-
andi, er að skrifa sjálfsævisögu sína en þegar því verki er lokið ætlar hún
að byrja að læra eitthvað nýtt. Hún er ein af þessum sterku konum.
Ég tel að það sé undir hverjum og einum komið hvort hann ræktar
garðinn sinn en það krefst aga og úthalds. Jákvætt viðhorf og Iffssýn
getur verið það afl sem gefur okkur styrk, kraftinn sem við þurfum til að
stuðla að auknum þroska. Við þurfum að hafa talsvert fyrir því að styrkja
jákvætt viðhorf okkar og gildismat, það er eins og það komi ekki af
sjálfu sér. Persónulegan vanda má Ifta á sem áskorun, tækifæri til aukins
þroska. Veröldin breytist ekki fyrr en við erum tilbúin að breyta okkur
sjálfum til hins betra.
Mér þykir það athyglisvert við skrif Honneth's, að hann talar um
samstöðu og ást þ.e. umhyggjuna, það mikilvæga félagslega gildi sem
hafi verið vanrækt um langa hríð. Hann segir feminista öðrum fremur
hafa dregið þetta gildi fram í dagsljósið á nýjan leik. Og hann spyr hvort
það sé ekki betur við hæfi að rökstyðja og fjalla um jöfnuð með því að
skírskota til þess sem eitt sinn hét ást fremur en út frá réttlætishug-
myndum jafnréttisstefnunnar. Ég legg þann skilning í þessa hugsun að
nú geti ég sagt: „Ég þekki karlmann sem ber svo mikla ást I brjósti til
konu sinnar og barna að hann tekur fullan þátt I umönnun barna sinna
og heimilis, þ. e. ekki af réttlætisástæðum heldur afást til fjölskyldunnar."
HEIMILDIR
BJÖRN HARALDSSON. 1971. Hugleiðing um heiðarbýli. I: Árbók Þingeyinga. 14. rg. s: 67-94.
ELlN PÁLMADÓTTIR. 1995, 7. mal. Landkönnun I llfinu. Ég hef átt gott líf, átt þrjá alveg frábæra
eiginmenn sem... Morgunblaðið, B-blað, s: 2-4. (Viðtal við Evelyn Stefánsson).
EMELlA BALDURSDÓTTIR (kennari og bóndi) Samtal um Islenskrar konur. I aprll 1995.
FROMM, E. 1974. Listin að elska. Reykjavlk. Mál og menning.
HARALDUR BESSASON (fyrrverandi rektor) Samtal um Islendingasögur. I aprll 1995.
MAGNÚS DIDRIK BALDURSSON. 1995, 26. mars. Samstaða á grundvelli einstaklingshyggju. Án
sterkra tengsla á vettvangi. Morgunblaðið, B-blað, s: 8-9. (Viðtal við Honneth, A.)
STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR. 1994. Hollusta (slenskra kvenna við fjölskylduna er misnotuð:
doktorsritgerð um fjölskylduna. I: 19. Júnl. 44. árg. 1. tbl. S: 10-13. (Viðtal við Dr. Sigrúnu Júlíusdóttur).
26 •
VER A