Vera - 01.10.1999, Page 31
Fyrirtíu árum átti sér stað hræðilegt bílslys á Laugavegi þar sem bíll með tveimur ungum stúlkum lenti í árekstri við
strætisvagn. Önnur þeirra, Harpa Sonjudóttir, lést en hin, Hrafnhildur Thoroddsen, slasaðist mjög alvarlega. Baráttu-
saga Hrafnhildar og móður hennar, Auðar Guðjónsdóttur, er mörgum kunn. Auður hefur gert allt til þess að Hrafn-
hildur fái notið aðstoðar færustu lækna heims og getað náð þeim bata sem mögulegur er. Fyrir fjórum árum kom
kínverskur læknir til landsins til að gera aðgerð á henni og árangur þeirrar aðgerðar er nú að koma í Ijós þar sem
Hrafnhildur er farin að hreyfa fæturna.
En Auður er ekki bara að hugsa um dóttur sína. Hún vill að þekkingin breiðist út en í því efni hefur hún marg rekið
sig á að læknar skiptast ekki á upplýsingum. Til að bæta úr því hefur Auður barist fyrir því að stofnuð verði nefnd á
vegum hlutlausra aðila og leitaði til WHO, alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar. Þó erfitt væri að komast að Gro Harlem
Bruntland framkvæmdastjóra WHO gafst móðirin frá íslandi ekki upp. Hún hefur leitað til kóngafólks í Evrópu og
talar á jafnréttisgrunni við þekkta vísindamenn á sviði mænuskaða. í baráttu sinni segist hún hafa að leiðarljósi orð
Jesú: „Leitið og þér munuð finna. Knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða."
Viðtal: Elísabet Þorgeirsdóttir