Vera - 01.10.1999, Qupperneq 41
Holmfríður og Hugtakahúsið
Hólmfríður Arnardóttir er 35 ára heimspekingur og nýflutt aftur heim til íslands eftir þriggja ára
framhaldsnám í heimspeki við Óslóarháskóla. Lokaverkefni hennar fjallar um gildi fegurðar
náttúrunnar. Hún kennir við Heimspekiskólann í Reykjavík, sem er ætlaður börnum frá
5-13 ára, en meðfram kennslunni er hún að þróa sitt eigið fyrirtæki sem heitir Hug-
takahúsið. Þar verður boðið upp á heimspeki með fullorðnum, þar sem
rökhugsun og aðrar aðferðir heimspekinnar eru notaðar m.a. til að leið-
beina fólki í því að takast á við sínar eigin hugsanir.
Áhersla verður lögð á að koma skipulagi á þá óreiðu sem margir
kannast við í öllu því sem velkist um í höfðinu. Það getur verið gott
að koma skikki á hugsanir okkar, t.d um lífsviðhorf, trúmál eða
sjálfsmynd, því oft fara hugmyndir okkar og gerðir ekki saman í
þeim efnum og það getur valdið togstreitu, bæði innra með okkur
og í samskiptum við aðra. Hólmfríður býður upp á heimspekilegar
samræður fyrir hópa, sambúðarfólk og einstaklinga og þá er hægt að
taka fyrir almennt efni eða afmörkuð vandamál eftir því sem við á
hverju sinni.
Hólmfríður hefurtveggja ára reynslu í faginu því úti í Noregi var hún
í tiu manna hópi heimspekinga sem voru þjálfaðir í og unnu við að
vera heimspekilegir leiðbeinendur. Víða erlendis eru slíkir leið-
beinendur fengnir í fyrirtæki, á elliheimili, í heilbrigðisgeir-
ann o.s.frv.
Hólmfríður hefur nú þegar fengið verkefni þar sem
lítill hópur kvenna hefur fengið hana til að stýra sam-
ræðum sín á milli. Það skal tekið fram að umræðuefn-
ið þarf ekki að vera sértækt, það getur verið almenns
eðlis og nánast um hvað sem er.
Hún leggur áherslu á að þeir sem hafi áhuga
þurfi ekki að hafa þekkingu í heimspeki eða kenni-
setningum hennar. Þetta er einfaldlega fyrir fólk af
öllum tegundum og gerðum sem langar að spreyta
siq á sínum eiqin huqsunum og komast þannig að