Vera


Vera - 01.04.2000, Side 4

Vera - 01.04.2000, Side 4
£E U I S Y E I B L I L t) Netást — Barást Með internetinu hefur bæst við nýr vettvangur þar sem hægt er að stofna til náinna kynna. Á spjallrásum og í tölvupósti getur fólk kynnst hvert öðru á annan hátt en t.d. á skemmti- stöðum þar sem ytra útlit skiptir oft mestu. íris Björg Kristjánsdóttir veltir fyrir sér kostum og göllum netsamskipta og þær Birgitta jónsdóttir og Laufey Jóhannesdóttir lýsa reynslu sinni af því að kynnast fólki á netinu. 16 Verið, Njálsgötu 84 í 40 ár hefur verslunin Verið á Njálsgötu selt íslendingum sængurfatnað sem saumaður er á saumastofu fyrirtækisins. Eigendur Versins, Erna Kristinsdóttir og dóttir hennar Elín Kolbeins, eru athafnakonur Veru að þessu sinni. 20 Diana Russell Koma Diönu Russell til íslands, í tilefni af 10 ára afmæli Stígamóta, vakti mikla athygli og færði líf í umræðuna hér á landi um klámiðnaðinn. Þorgerður Þorvaldsdóttir tók ítarlegt við- tal við Diönu þar sem þær ræða m.a. um áratuga baráttu hennar og rannsóknir á áhrifum kláms og um þann klofning sem afstaðan til kláms olli á meðal bandarískra femínista. 27 Snæfríður Baldvinsdóttir í framhaldi af umræðunni um fegurðarímyndina í síðustu VERU báðum við Snæfríði Baldvins- dóttur, sem nú býr á Ítalíu, að lýsa reynslu sinni af fyrirsætustarfinu. Snæfríður vann Elite keppni hér heima og starfaði eftir það i mörg ár sem fyrirsæta í Evrópu. 32 Stígamót 10 ára Vegleg afmælishátíð var haldin í Hlaðvarpanum 8. mars sl. þar sem Forseti íslands og borg- arstjóri voru meðal gesta. Við birtum athyglisverða ræðu Rúnu lónsdóttur, fræðslu- og kynningarfulltrúa Stígamóta, við það tækifæri. 34 Hlaðvarpinn 15 ára í júní n.k. eru 15 ár liðin frá því að konur keyptu tvö hús við Vesturgötu og skírðu þau Hlað- varpa. Rætt er við Helgu Thorberg eina af frumkvöðlunum og jórunni Sigurðardóttur nýráð- inn framkvæmdastjóra og Ása Richardsdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri rifjar upp árin sín í Hlaðvarpanum. 41 Mansal til kynlífsþrælkunar Fyrir nokkru hélt lafnréttisráð fund á Hótel Borg um mansal til kynlífsþrælkunar. Þar sagði Margrét Frímannsdóttir frá ráðstefnu á vegum jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins þar sem fram komu skelfilegar staðreyndir um mansal. 47 Konur í bankakerfinu Konur eru í miklum meirihluta meðal starfsmanna í íslenska bankakerfinu en þær eru ekki í æðstu stöðunum. Þar ráða karlar ríkjum og þar eru völdin. Við ræðum við þrjár konur í bankakerfinu um möguleika kvenna á að komast þar til meiri áhrifa. 31 Bíó 45 Dagbók femínista 54 Tónlist 56 Bríet 58 Matur og næring 60 Bækur 62/66 Að utan 64 Skyndimynd 4 • VERA vCra tímarit um konur og kvenfrelsi Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3 101 Reykjavlk Slmi: 552 2188 og 552 6310 fax: 552 7560 vera@centrum.is ( www.centrum.is/vera 2/2000- 19. árg. útgefandi Samtök um kvennalista ritnefnd Auður Aðalsteinsdóttir, Agla Sigríður Björnsdótti Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Kristln Heiða Kristinsdótt Ragnhildur Helgadóttir, Sigurbjörg Ásgeirsdóttir Vala S. Valdimarsdóttir Þorgerður Þorvaldsdótti ritstýra og ábyrgðarkc Ellsabet Þorgeirsdóttir skrifstofustýra Vala S. Valdimarsdóttir vera@vortex.is Ijósmyndir Sóla www.aknet.is/sola litgreiningar Næst... útlit og umbrot katla@simnet.is auglýsingar Áslaug Nielsen slmi: 533 1850 fax: 533 1855 filmur, prentun og bókband Steindórsprent-Gutenbe' plastpökkun Vinnuheimilið Bjarkará: ©VERA ISSN 1021-879 ath. Greinar I Veru er birtar á ábyrgð höfuni og eru ekki endilega stefna útgefenda

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.