Vera - 01.04.2000, Page 7
samþykkt í þjóðfélaginu eða svo lengi sem kona gerir ekki „of‘
mikið af þessu.
Sú heilbrigða: kona stundar áhugamál sitt af mikilli kostgæfni og
hittir þar draumamaka sinn.
Sú tilviljunarkennda: kona fer út í stórmarkað eða líkamsræktar-
stöð, augngotur hefjast, eitt leiðir af öðru og fyrr en varir situr
hún yfir rómantískum kvöldverði með kertaljósum og arineldi.
Hin ósamþykkta: kona auglýsir í einkamáladálki eða hefur sam-
band við einhvern sem hefur sett inn auglýsingu. Hún getur
einnig hringt í símanúmer hjá miðlunum hverskonar. En eitt er
víst, konu er ekki ráðlagt að tala opinskátt um slík kynni. Jafnvel í
Bandaríkjunum, þar sem þessi leið virðist mikið notuð, má lesa
það úr kvikmyndum hve óæskileg hún er.
Eflaust eru til fleiri leiðir en við stiklum á stóru og þá er komið að
síðustu leiðinni;
Hin tölvuvædda: kona kaupir sér tölvu og sækir spjallforrit á Net-
ið. Hún fær sér gælunafn og „loggar sig inn“. Hún getur fengið
sér hvort sem er karlkyns eða kvenkyns gælunafn. Næstu vikum
eyðir hún frítíma sínum á spjallrásunum og samskiptin eru algjör-
lega í hennar höndum - hvort hún vilji vera kona eða karl, hvað
hún vill ræða um og hve mikið hún vill kynnast fólkinu. Ef fram-
koma einhvers er henni ekki að skapi þarf hún ekki að gera annað
en að slökkva á spjallglugganum — örlítið þægilegra en að losa sig
við óæskilegan félagsskap á veitingahúsi. Hún á ítalskan vin sem
hún á stefnumót við á hverjum miðvikudegi. Hann er að íhuga að
heimsækja hana næsta sumar eða bjóða henni í heimsókn til Italíu
Hún á tvo bandaríska vini, annar er vörubílsstjóri og hinn er verð-
bréfasali. Hún hefur eignast fullt af íslenskum Irkfélögum og hef-
ur hitt nokkra á kaffihúsi. Hún veit allt um þetta fólk, áhugamál
þess og raunir í lífinu. Og það á ekkert sameiginlegt annað en að
leggja leið sína á Irkið. Flestum hefði hún líklega aldrei kynnst ef
ekki hefði verið fyrir tilstilli Irksins. Nokkrum sinnum gengu
kynnin svo vel að þau þróuðust til kynferðislegs samneytis. Stund-
um varð úr reglulegt samband og stundum hefur hún engan
áhuga á frekari kynnum. Hún getur valið. Raunhæft eða?
Þótt hér sér farið nokkuð yfirborðskennt yfir þá möguleika sem
kona hefur hugi hún á félagsskap eða kynferðislegt samneyti, segir
þetta okkur ýmislegt um raunveruleikann sem við búum við.
Og ef við horfum kalt á staðreyndir - verulega kalt - þá stend-
ur eftirfarandi uppúr:
Allar þessar leiðir hafa sína kosti og galla. Gallar hefð-
bundnu leiðarinnar eru nokkuð augljósir. Afengi spilar þar
stóran sess. Fari kona heim með einhverjum eftir stutt kynni
á bar er hún að taka mikla áhættu. Hún veit að öllum lík-
indum ósköp lítið um einstaklinginn og báðir aðilar eru
undir áhrifum vímuefna. Líkur á frekari kynnum eftir slíkt
samneyti eru ekki miklar og það er þekkt staðreynd að
áfengið sljóvgar dómgreind fólks. Þar sem einstaklingarn-
ir þekkjast lítið sem ekkert hlýtur ákvörðun þeirra að
markast að miklu leyti af umbúðunum — þ.e. hve falleg
þau eru og af klæðaburðinum. Getum við mótmælt
þessu?
Oftast nær hafa tveir einstaklingar á Irkinu spjallað
saman í lengri tíma en gengur og gerist á barnum áður
en þeir ákveða að hittast. Auðvitað eru til dæmi um ann-
að en það er óhætt að fullyrða að slæmu dæmin af bar-
menningunni eru mun fleiri en slæmu dæmin af net-
menningunni. Munurinn er einfaldlega sá að fólk talar
meira um Irkið og „afleiðingar" þess en afleiðingar
drykkju og barmenningar á Islandi. Kannski af því að
fleiri stunda drykkju en Irkið og það er samþykktara í
menningunni!
Tölvuvædda leiðin á margt sameiginlegt með þeirri
ósamþykktu. Kona sem hringir í makalínu — hér er ekki
átt við svokallaðar „klámlínur" — fær að vita ýmislegt
um aðilann fyrirfram og út frá þeim upplýsingum tek-
ur hún ákvörðun. Það sama má segja um tilviljunar-
kenndu leiðina. A Irkinu ferðu að tala við einhvern af al-
gjörri tilviljun. Kannski var það gælunafnið sem vakti
athyglina, kannski tilfinning eða kannski slempiúrtak.
Að lokum þá á tölvuvædda leiðin mikið sameiginlegt
með þeirri heilbrigðu. Margir sem venja kornur sínar á
Irkið fara á rásir sem heita eftir áhugamáli þeirra. Hef-
urðu áhuga á jóga, bifhjólum, Astralíu, dýrum, skóg-
rækt eða áttu þinn uppáhalds rithöfund? Ef svo er verð-
urðu ekki lengi að finna fólk með sama áhuga, og eitt
leiðir af öðru...
Er tæknivædda leiðin einungis jákvæð?
Það væri firra að halda því fram að netástin sé galla-
laus. En flestir ókostirnir eiga rætur sínar að rekja til þess
hve nýtt þetta er og sökum þess að fólk kann ekki leik-
reglurnar. Viljirðu kynnast fólki á Irkinu þarftu ekki að
gefa upp fullt nafn, kennitölu, heimilisfang o.s.frv. Það
nægir að gefa upp skírnarnafnið, staðsetningu (t.d. vest-
urbænum), þjóðfélagsstöðu (skrifstofu) og það er nokk-
uð saklaust að senda mynd - komi til þess. Aftur á móti
getur verið hættulegt að gefa upp heimilisfang og gefirðu
upp símanúmer við fyrstu kynni hefurðu vísað veginn að
heimilinu — nema þú hafir leyninúmer.
Gullna reglan er þessi: Ef þig langar til að hitta einhvern
eftir stutt kynni á netinu þá, ekki undir neinum kringum-
stæðum skaltu bjóða nýja kunningjanum heim til þín —
farðu heldur á kaffihús. Þessar reglur tryggja ekki góð sam-
skipti og koma ekki í staðinn fyrir innsæið en þær eru mikil-
vægar og geta gert tölvuvæddu leiðina að ákjósanlegustu
leiðinni fyrir konu sem vill víkka sjóndeildarhring sinn og
kynnast nýju fólki.
FT P '~Jl
8
<$!7a
tbki
CS7
um.
VERA • 7