Vera


Vera - 01.04.2000, Qupperneq 13

Vera - 01.04.2000, Qupperneq 13
Þegar fyrsta kvöldinu mínu á irkinu var lokið hafði ég eytt u.þ.b. sex klukkustundum af lífi mínu í að deila gleði og sorgum með mönnum sem ég hefði ekki þekkt á götu. gægjugatið á hurðinni á íbúðinni minni að hann kom inná gang- inn. Eg sé ennþá fyrir mér útlínur hans og hreyfmgar þarna í myrkrinu. Eg var hrædd um að missa meðvitund af spennu. Hann virtist ekki sérlega frýnilegur, varla líklegt að honum væri lagið að hreyfa sig í takt við tónlist Ég, búin að slökkva öll ljós í íbúðinni minni, var óendanlega þakklát fyrir að nöfn fyrri íbúa voru ennþá á bjöllunni. Hélt niðri í mér andanum þegar hann beygði sig til að lesa nöfnin. Hann kannaðist greinilega ekki við neinn þarna. Ég horfði á eftir honum út ganginn aftur og upp á næstu hæð. Hann var kominn hingað sunnan úr Hafnarftrði og var greinilega ekki á því að fara heim án þess að hafa erindi sem erfiði.Tæpum klukku- tíma síðar sá ég hann koma út úr blokkinni minni. Greinilega bú- inn að þræða allar hæðir og hurðir og hafði ekki fundið nafnið mitt. Það var ekki laust við að mér létti. Þó var eins og ég hefði einhverja óþægilega tilfmningu í maganum, eitthvað sem minnti á sektarkennd. Ég hafði jú ekki latt manninn til fararinnar, jafnvel eggjað hann til að leggja á sig XX km ferðalag um nótt, og hann ekki einu sinni uppskorið svo lítið sem tekex. Það er ekki á allt kosið. Ég þurfti aðeins smá spjall við vinkonu mína daginn eftir til að sannfæra mig um að hann gæti bara sjálf- um sér um kennt. Talsmáti hans og rödd, svo og hugsun og kímni- gáfa, voru í svo hróplegu ósamræmi við líkamsburði að hann mátti búast við því að eitthvað svona myndi gerast. Hann hefði a.m.k. getað verið búinn að gefa mér einhverjar vísbendingar um ofvöxtinn. Þessi reynsla mín af Irkinu varð ekki til þess að fæla mig frá því. Þvert á móti. Síðan þetta misheppnaða stefnumót í Reykjavík átti sér stað hef ég átt nokkur mun skárri. M.a. hef ég farið á vit ævin- týranna til framandi landa til að hitta spjallfélaga og átti frábært frí síðasta sumar á Italíu með einum slíkum. Meintur smiður af Barónsstígnum Ef ég ætti að velja eina dæmisögu frekar en aðra af nánum kynn- um mínum af Irkurum þá held ég að sagan af hinum meinta smiði verði ofaná. Nikkið (nafn) hans var það sama og ákveðin bílateg- und. Hann var hress og skemmtilegur og hljómaði eins og þokka- lega greindur. Ég hafði ekki spjallað við hann neitt sérstaklega lengi, kannski korter, þegar hann stakk upp á stefnumóti. Hann gaf mér upp símanúmer svo ég gæti hringt og heyrt í honum rödd- ina, en lét þau orð fylgja að ég mætti alls ekki hringja í þetta núm- er aftur því í raun tilheyrði það bróður hans sem væri ekki í bæn- um þessa stundina. Eftir smá spjall í síma var ákveðið að láta til skarar skríða. Hann sagðist heita Sigurður og ég sagði honum hvar ég bjó. Hann var mættur á svæðið 10 mínútum síðar. Ég bauð honum inn og drengurinn leit bara þokkalega út. Snyrtilega klæddur, í burstuð- um skóm og líklega nýklipptur. Reyndar fannst mér hann dálítið unglegur miðað við þann aldur sem hann sagðist vera á, en minnug þess að ekki er allt sem sýnist lét ég mér það í léttu rúmi liggja. Ég tíndi fram það sem til var af kexi á heimilinu, lagaði kaffi fyrir drenginn og hugðist nú spjalla við kauða. Hann var ekkert sérlega viljugur að spjalla en vildi helst fara beint útí einhverjar snertingar. Minnug þess sem ég heyrði ein- hverntíma í amerískri bíómynd, um það að ekki skyldi fara út í of náin kynni á fyrsta stefnumóti, tókst mér með lagni að fá hann í létt rabb, svona eins og maður viðhefur gagnvart ókunnugu fólki sem maður er í þann veginn að fara að kynnast. „Já, þú ert 29 ára, býrð á Barónsstígnum, ólofaður og átt engin börn.“ „Já, smiður.“ „Ertu að byggja blokkir?” Nei, hann sagðist vera að byggja einbýlishús í Grafarvogi. Ég þótt- ist þekkja eitthvað til á byggingarsvæðunum þar því stóri bróðir minn var einmitt nýbúinn að fá lóð við Bakkastaði. „Já, ertu að byggja á Bakkastöðum?" Nei, hann kannaðist ekki við það. Hann var að byggja í Frosta- skjóli, ný einbýlishús við Frostaskjólið í Grafarvogi. Eitthvað hljómaði þetta undarlega í mínum eyrum. Ég vissi nefnilega ekki betur en næsta gata við heimili mitt væri Frostaskjól og ég bjó fráleitt í Grafarvogi. Þarna var eitthvað bogið. Hann þrætti fyrir að ekki væri allt með felldu. Staðfastur sem höfuðpaur úr einhverju e-pillumáli hélt hann fast við framburð sinn. Skyndilega þurfti hann svo að drífa sig. Var að verða of seinn á fund hjá Iðnnemasambandinu eða eitthvað. Ég sat eftir með fulla könnu af nýlöguðu kaffi og einhverja til- ftnningu fyrir því að hafa verið höfð að fifli. Hann kom sem sagt upp um sig með lélegri staðháttaþekkingu. Drengurinn var nefni- lega þegar allt kom til alls ekki ógiftur, 29 ára gamall smiður af Barónsstígnum sem vann við iðn sína í Grafarvogi. Heldur var hann 23 ára rútubílstjóri úr Borgarnesi. Lofaður að auki. Þessu komst ég að þegar ég skoðaði innihald peningaveskis hans sem ég býst við að hann hafi misst uppúr rassvasanum þegar hann gerði heiðarlegar tilraunir til að forfæra mig, aldraða konuna. Allavega fann ég það í stofusófanum daginn eftir. Mér var eftir allt saman skemmt. Lögmálin láta ekki að sér hæða frekar en fyrri daginn. Er þetta ekki það sem er kallað instant karma? VERA • 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.