Vera


Vera - 01.04.2000, Side 14

Vera - 01.04.2000, Side 14
±J E T A S T B A B A S T Kristín Heiða Kristinsdóttir Frelsið eykur tilfinningalegt tóm Ég brá mér í gamla góða Þjóleikhúsið á dögunum með það sérstaklega í huga að skoða hvernig samskipti kynjanna í (vestrænu) nútímasamfélagi birtast í verkinu KOMDU NÆR, eftir breska leikskáldið Patrick Marber. Þetta grátbroslega verk sýnir ágætlega það sem þau sem hafa verið „á djamminu" (til lengri eða skemmri tíma) kannast vel við: Það eru allir að sofa hjá öllum og allir eru ástfangnir af rangri manneskju. Komu mér þá í hug gömlu góðu og sönnu orðin: lllt er að leggja ást á þann sem enga kann á móti. Höfundurinn veltir líka upp spurningum um vald í samskiptum kynjanna. Það liggur ekki alltaf í augum uppi hver hefur vald yfir hverjum og í hverju valdið felst. Sumir kæra sig ekkert um það vald sem þeir hafa yfir einhverjum, aðrir vilja að einhver hafl vald yfir þeim og enn aðrir misbeita valdi. Allt spilar þetta sína rullu í lífi fólks: Kynlífs- vald, peningavald, stéttavald o.s.frv. Mikið hefur verið rætt um opinskáar kynlífs- lýsingar í þessu verki og vissulega er heilmikið af slíku, en mér þótti leikritið vera miklu fremur um tilfmningar en kynlíf. Það er fyrst og fremst um það hversu mikil óreiða verður í kynlífshegðun þegar fólk lifir í svo firrtu (stórborgar)samfélagi sem raun ber vitni. Marglofað frelsi (án ábyrgðar) eykur aðeins það tilfinningalega tóm sem allir eru að reyna að komast undan. Allir leita og flýja úr einu faðmlagi í annað og vita kannski ekki einu sinni hvers þau eru að leita og hvað þau eru að flýja. Það er þetta eirðarleysi og ófullnægja sem verður til þess að fólk gerir bara eitthvað frekar en ekkert. Og ósjaldan bitnar það á einhverjum öðrum eða þeim sjálfum. Fólk veit bara ekki hvernig það á að hegða sér í samfélagi þar sem all- ar gáttir eru galopnar. Og hegðun fólks verður oft á tíðum í hróp- andi ósamræmi við skoðanir þess. I svokölluðum velmegunarsam- félögum er fólk svo vant því að fá allt sem því dettur í hug og láta allar langanir eftir sér. Af þessu leiðir að það verður yfirmáta sjálf- hverft og einmana. Höfundurinn kemur einnig inn á samskipti fólks á Irkinu. Hvernig fólk getur rætt þar saman undir fölskum formerkjum (skipt um kyn og aldur t.d) og allt hverfist það um kynlíf. Þetta getur augljóslega bæði haft jákvæðar og neikvæðar afleiðingar í för með sér, hefur reyndar mjög svo skondnar afleiðingar í leikrit- inu. KOMDU NÆR er hið ágætasta leikrit og raunsönn lýsing á sam- skiptum kynjanna á núlíðandi tímum og eiga leikararnir hrós skil- ið fyrir frábæra frammistöðu. I lokin má geta þess að ein setning Larrys í verkinu truflaði mig svolítið: „Og ef konurnar sœu bara hvað fer fram í hausnum á okkur, óþverrinn sem sullast um heilann í okkur daglega ... við yrðum hengdir upp á pungnum." Hvers vegna í ósköpunum halda karlmenn að engan sora sé að finna í kvenmannsheila? Ég veit ekki betur en að konur séu engu minni klámhundar en karlar, þær eru bara ekkert að hrópa það á torgum úti. Eða kemur þetta kannski til af tvöfeldninni sem felst í því að konur vilja gjarnan látast vera meyjur til að gangast upp í þeirri hugmynd karla að þær séu svo hvítar, hreinar og dyggðug- ar? Hvers vegna skyldu konur skammast sín fyrir dræsuna í sér? Erum við enn að ríghalda í gamlar hugmyndir um „eðli“ konunn- ar, vegna ótta við útskúfun frá körlum?

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.