Vera


Vera - 01.04.2000, Page 25

Vera - 01.04.2000, Page 25
nauðgað, eða þær bundnar niður, hafa þær enga vörn. Fólk á ekki eftir að sýna þeim samúð, lögreglan er ekki samúðarfull. Þetta er áhætta. Þær eiga það á hættu að smitast af alnæmi þegar samfarir eiga sér stað í raun og veru, því hér er ekki verið að sýna kynlíf þar sem varnir eru viðhafðar. Þetta er allt þegar um vægari tilfelli er að ræða. Ofgafull dæmi eru auðvitað þegar kynlíf og ofbeldi er tengt saman. Þegar verið er að sýna karla beita konur ofbeldi, nauðga þeim og svo framvegis. Það er ekki ennþá sýnt í Bleiku og Bláu, en eitt af því sem hægt er að segja fyrir um er að þetta á eft- ir að versna og ganga lengra og lengra og lengra. Einkum og sér í lagi ef enginn hreyfir mótmælum. Það hefur gerst hvar- vetna þar sem klám er leyfilegt. Það gerðist í Suður-Afríku. Um leið og aðskilnaðar- stefnan var afnumin, raunar aðeins fyrr, var farið að gefa út klámblöð fyrir Suður-Afr- íku og fyrstu tölublöðin voru bara mjög væg. En um leið og fólk fór að segja: „O, þetta er allt í lagi" voru þeir búnir að vinna. Það er mjög erfitt að grípa inn í síð- ar og segja: „Við sögðum að þetta hér væri allt í lagi, en þetta nýja tölublað er orðið miklu, miklu, verra.“ Breytingarnar stig- magnast, þær gerast hratt, en stig af stigi. Það er þeirra aðferð. Þessvegna er svo mik- ilvægt að ráðast gegn þessari tilteknu út- gáfu, Bleikt og Blátt, samhliða því sem kemur frá Bandaríkjunum, einkum og sér í lagi Hustler sem er algjör viðbjóður, en líka Playboy og Penthouse. Og svo er það Inter- netið, og þar veit ég hreinlega ekki hvað skal segja. Þetta er reyndar svo fámennt samfélag að það er reynandi að berjast fyr- ir því að foreldrar geti stjórnað því hverju börnin hafa aðgang að, en kannski er það óframkvæmanlegt. “ Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? „Já, það er bara um mikilvægi þess að tengja saman. Það eru svo margir sem vinna á einhvern hátt með ofbeldi gegn konum en taka ekki afstöðu til kláms.Vinna bara á sínum bás að sínum málaflokki. Ut frá mínum kenningum þá er það tapað stríð. Ef ekki er ráðist gegn klámi verðum við endalaust að „flikka upp á“ og gera að sárum kvenna, „hjálpa þessum greyjum" á meðan klám heldur áfram að hvetja til of- beldis á konum. Fólk verður að sjá klám sem hluta af þeim heildarpakka sem berjast þarf gegn. Það er til dæmis sérlega líklegt að þolendur heimilisofbeldis komi úr sam- böndum þar sem sambýlismaðurinn eða eiginmaðurinn eru neytendur kláms. Þetta hefur verið sýnt fram á í rannsóknum og er eitthvað sem fólk sem vinnur með fórnar- lömbum heimilisofbeldis verður að vera á verði gagnvart. I Bandaríkjunum eru þessi tengsl algjörlega hunsuð. Þau sem vinna með heimilisofbeldi taka ekki afstöðu til kláms, og sömu sögu er að segja um fólk sem vinnur með konum sem er nauðgað, eða fórnarlömbum sifjaspella. Það er grundvallaratriði að fólk skilji þessi tengsl og að sérhver samtök sem vinna gegn of- beldi á konum geri sér ljóst að klám er hluti af þeim vanda sem þau verða að takast á við.“ Skilgreiningar Diönu Russell á því hvað er erótík og hvað klám, úr bókinni Against Pornography, The Evidence of Harm. (1993)- Klám er cfni þar sem kynlíf og/eða myndir af kynfærum eru settar í samhengi við misnotkun og niðurlægingu á þann hátt að það virðist styðja, fyrirgefa eða hvetja til slíks atferlis. Langstærstur hluti klámiðnaðarins er miðaður við og markaðssettur fyrir gagnkyn- hneigða karlmenn. Cagnkynhneigt klám er efni sem er framleitt fyrir gagnkynhneigða karlmenn þar sem kynlíf og/eða myndir af kynfærum eru settar í samhengi við misnotkun og niðurlægingu kvenna, á þann hátt að það virðist styðja, fyrirgefa eða hvetja til slíks atferlis. Erótík hinsvegar nær yfir kynferðis- lega örvandi efni sem er laust undan kvenhatri, kynþáttahatri og hómófóbíu og þar sem virðing er borin fyrir öllum þeim mann- eskjum og dýrum sem sýnd eru. Fólk verður að sjá klám sem hluta af þeim heildarpakka sem berjast þarf gegn. Það er til dæmis sérlega líklegt að þolendur heimilisofbeldis komi úr samböndum þar sem sambýlismaðurinn eða eiginmaðurinn eru neytendur kláms. Þetta hefur verið sýnt fram á í rannsóknum og er eitthvað sem fólk sem vinnur með fórnarlömbum heimilisofbeldis verður að vera á verði gagnvart. 2 5 VERA •

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.