Vera


Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 31

Vera - 01.04.2000, Blaðsíða 31
£E M I N I S I L P F R A r i n Anna Olafsdottir Björnsson O f b e I d i ð g Nýsjálenska kvikmyndin Eitt sinn stríðsmenn vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum og hreyfði við umræðu um heimilisofbeldi og afleiðingar þess. Hún var óvenju miskunnarlaus og skildi flesta sem hana sáu eftir hálf lamaða en þó ekki án vonar. Er framhalds- mynd var gerð í kjölfarið voru margir efins um að það væri ger- legt að skapa viðlíka áhrif. Á margan hátt eru myndirnar tvær ólíkar, þótt persónurnar séu þær sömu, en áhrifin eru ótrúlega lík. Cróft ofbeldi meðal unglinga Framhaldsmyndin hefur liér á landi verið kölluð Eitt sinn stríðsmenn II. Það er vel til fundið, ég veit eiginlega ekki hvernig ætti að þýða enska titilinn What Becomes of the Broken Hearted þannig að kaldhæðn- in skilaði sér til fullnustu. Enda erfitt að þýða lagalieiti. Að þessu sinni er sjónum beint að unglingaofbeldi af hörðustu gerð. Atök tveggja klíkuhópa maórískra ungmenna á Nýja Sjálandi eru baksvið myndar- innar. Hún ber í fljótu bragði nokkurt yfirbragð spennumyndar en ekki eitt augnablik er ofbeldi réttlætt, ekki eitt augnablik gleymum við því að ofbeldi leiðir af sér meira ofbeldi og kemur engu góðu til leið- ar. Hversu oft höfum við ekki verið nörruð til að fagna þegar „hetj- urnar“ í spennumyndunum lemja mann og annan. Þannig er það ekki í þessari mynd. Skuggahliðin á paradís nýfrjálshyggjusamfélagsins Unglingaheimurinn er vissulega grófari, vandamálin óhugnanlegri en gengur og gerist á Islandi. I kjölfar mikillar einkavæðingar á Nýja-Sjá- landi um 1990 fjölgaði fólki á útjaðri samfélagsins til muna. Lífsbar- áttan í þessu landi, sem fyrrum gat með réttu gumað af réttlæti og velferð, varð á skömmum tíma geysilega hörð og samfélaginu blæddi. Garnla fólkið óttaðist um líf sitt og limi með ört vaxandi glæpatíðni en hlutskipti allt of margra ungra Nýsjálendinga var lrinn harði lieim- ur klíkunnar, ofbeldisins og glæpanna. Frumbyggjar Nýja-Sjálands, Maóríarnir, og náskyldar þjóðir frá Kyrraliafseyjum voru meðal þeirra sem áttu frekar undir högg að sækja. A meðan allt lék í lyndi og sam- tryggingin var þokkalega góð var litið á Maóríana og Eyjabúana sem merkilegan þátt í menningu hvíta samfélagsins sem yfirtók land þeir- ra. Afstaðan var fljót að breytast þegar hluta frumbyggjanna var ýtt út á ystu nöf. Afengisneysla, sem ekki er hluti menningar Maóría, hefur líka farið illa með margan góðan manninn. Ofbeldi er alþjóðlegt vandamál Fyrri myndin var gagnrýnd nokkuð fyrir að draga upp allt of dökka og neikvæða mynd af lífi Maóríanna en hún veitti líka innsýn í fallega og friðsæla menningu þeirra. Eg get ómögulega séð að þessar mynd- ir sýni nokkuð annað en ömurleika sem fylgir ofbeldi, hvar sem það þrífst. Heimilisofbeldi fyrirfinnst allt eins á marmaragólfum auðugra borgara eins og í skúmaskotum fátækralrverfanna. Klíkuofbeldið í síð- ari myndinni á meira sameiginlegt með alþjóðlegri, neikvæðri ung- lingamenningu lrvort sem er í nriðborg Los Angeles eða bakdyrameg- in í seglbátaborginni Auckland. í báðunr tilvikunr kenrur glöggt franr hve ríkur þáttur kvennakúgun og kvenfyrirlitning er í öllu ofbeldis- mynstrinu. ngur aftur Ekki mér að kenna Móðirin Beth, senr Rena Owen lék svo snilldarlega í fyrri myndinni, er í bakgrunnslrlutverki í franrlraldsmyndinni. Vonin um betra líf, sem blundaði í lok fyrri myndarinnar, hefur ekki reynst út í bláinn. Faðir- inn, Jake Heke, er sem fyrr áberandi örlagavaldur, bæði með aðgerð- um sínum og aðgerðaleysi. Hann reynir sífellt að réttlæta skefjalausa ofbeldishneigð sína með afsökunum. Hann var barinn í æsku og kann ekki annað (og nreira ofbeldi leysir það vandanrál? spyr nýja kærastan um leið og lrún losar sig við lrann). Hann sér svo hræðilega eftir þessu öllu (og er svo indæll þegar æðið er runnið af honum). Ekki er það mér að kenna að börnin mín lenda í klíkum og ofbeldi, segir hann sárnróðgaður (og sér ekki að það hafi neitt að segja að lrann hefur hunsað þau í mörg ár). Leikarar í erfiðum hlutverkum Temuera Morrison túlkar föðurinn af nrikilli innlifun, einum of mikilli á stundum. Hann bókstaflega sogar áhorfendur með sér í þennan myrka heim reiðinnar sem hann lifir í. Sonur þeirra, Sonny, er í lykillrlutverki og Clint Eruera skilar því ágætlega en fellur nokkuð í skuggann af stór- leik Temuera. Ungu stúlkuna Taniu leikur Nancy Brunning. Hún er með eitt erfiðasta lrlutverk nryndarinnar og veldur því mjög vel. Hún skil- ar sérstaklega vel valdaleysi og ósýnileika stúlknanna í klíkunni sem foringjarnir ráðskast með eftir geðþótta sínurn. Nokkrir þeirra sem fara með smærri lrlutverkin í klíkunum komast nærri því að stela sen- unni af ungmennunum tveimur sem leiða söguna. Fjölskrúðugt lið í nöturlegunr og óskaplega gleðisnauðunr lreimi.Trylltar senur þar sem klíkan var að „skenrnrta" sér og ömurlegar aðstæður sviptu öllum þeim ljóma af klíkulífi sem örlar á í sumum anrerískum kvikmyndum nú seinni árin. Ekki fyrir alla „Svona kvikmynd er ekki hægt að horfa á nenra klukkan tvö á dag- inn,“ var ein af atlrugasenrdunum senr ég heyrði eftir að hafa séð Eitt sinn stríðsmenn II. Mig ránrar í svipaðar athugsemdir eftir fyrri inyndina. Víst er unr það að þessar nryndir lrverfa ekki svo glatt úr huganum. Galdur þeirra er sá að gera áhorfandann að þátttakanda í lífi frásagnarinnar unr stund. Og það tekst, þrátt fyrir að umhverfið sé sem betur fer nrjög franrandlegt. Leikstjórinn, Iun Mune, lrefur afsann- að þá kenningu að nrynd nr. 2 sé alltaf verri en fyrri nryndin og nýr leikstjóri geti ekki leyst góðan af hólnri. Það er aldrei að vita nenra við fáum að sjá þriðju myndina að nokkrum árunr liðnunr. Og liver veit nema hún verði líka góð. VER A • 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.