Vera


Vera - 01.04.2000, Síða 36

Vera - 01.04.2000, Síða 36
Velkomnar heim ... í Hlaðvarpann! segir helga Thorberg ein af frumkv 'öd lunum Hclga Thorbcrg var kjörin varagjaldkeri á stofnfundinum í Naustinu cn fór inn í aðalstjórn í febrúar 1986 og var formaður stjórnarinnar frá 1988 til 1994. Hún þekkir því kvcnna bcst baráttusögu fyrstu áranna og tók oft til hendi við að moka út, skrúbba og skrapa vcggi og gólf þessara aldargömlu húsa. Helga hefur um árabil rekið blómabúðina Blómálfinn hinumegin við Vesturgötuna og átti því hægt um vik að líta yfir í Hlaðvarpa til að rifja upp gamla daga. oanimriMiiiaila*' „Þegar við tókum við húsunum var m.a. trésmíða- verkstæði og hárgreiðslustofa í bakhúsinu og í fram- húsinu var rakarastofa og íbúðaherbergi í útleigu á 2. hæð. I fyrstu skrifstofu Hlaðvarpans fengum við hús- gögn úr dánarbúi eins leigjandans sem þar bjó. Við keyptum húsin af eldri konum sem höfðu erft þau og leigðu þau út,“ segir Helga þegar hún er beðin að rifja upp upphafið. „Við ákváðum strax að leigja út verslunarhúsnæðið í framhúsinu til að afla leigutekna og hefur antikverslunin Fríða frænka verið þar frá upphafi. Tískuverslunin Spútnik var í mörg ár í kjall- aranum en efri hæðirnar voru leigðar út til kvenna og samtaka þeirra, m.a. gátu fræðikonur og skáldkonur leigt sér þar vinnuherbergi sem var vinsælt og kær- komið. I salnum í bakhúsinu var fljótlega komið upp list- markaði þar sem fjölmargar listakonur seldu fram- leiðslu sína og þar var einnig lítil kaffistofa. Salurinn á 2. hæð var notaður til ýmissa funda og oft voru líka haldnir fundir í neðri salnum, t.d. fjölmennir baráttufundir 8. mars og alls kyns upplestur og skemmtun. Eg átti mér þann draum að í húsunum gæti verið kvennaleikhús því ég var orðin leið á því að þurfa að bera allar hugmyndir mínar um leikþætti eða dag- skrárgerð undir karla. Ég vildi finna stað þar sem kon- ur legðu mat á verk hver annarrar og gætu komið verkum sínum á framfæri. Fyrsta leiksýningin í Hlað- varpanum var svo sannarlega í anda kvenna. Það var leikgerð úr Reykjvíkursögum Astu Sigurðardóttur, í leikstjórn Helgu Bachmann, og var sett upp í kjallar- anum. Fleiri eftirminnilegar sýningar voru settar upp í þessu sérstaka leikrými. Hins vegar hef ég aldrei leik- ið í leiksýningu í Hlaðvarpanum, enn sem komið er. Ég hef bara leikið Grýlu, í ýmsum skilningi. Ég lék Grýlu fyrir börnin ár eftir ár til að draga að markaðn- um fyrir jólin.” 9.500 hlutabréf Þegar Helga rifjar upp fyrstu árin er henni minnisstæð sú mikla vinna sem fylgdi útgáfu hlutabréfanna og söfnun hlutafjár. Það þurfti að láta prenta hlutabréfin sjö, tölusetja þau og síðan að þinglýsa hverju og einu. „Það var ekki nóg að fá hlutafjárloforðin, það þurfti að fá þau greidd og skrá nöfn eigenda og/eða gefenda.Við létum gera 9.S00 bréf en áttum oft ekki fyrir þinglýsingarkostnaðinum og létum því þinglýsa þeim í áföngum. Þegar í ljós kom að ekki tókst að afla nógu margra hluthafa var farið í auglýsingaherferð, t.d. settum við skemmtilegt plakat í strætó þar sem karlmenn voru hvattir til að gefa konum sínum eða dætrum hlutabréf í Hlaðvarpanum í jólagjöf. Við stofnuðum líka styrktarsjóð sem hafði það hlutverk að afla f)ár með öðrum hætti en sölu hlutbréfa og efndi hann m.a. til happdrættis þar sem var bíll í vinning." Fjármálaumhverfið fyrir 15 árum var mjög ólíkt því sem nú er og ekki eins mikið framboð á lánsfé. Það vakti nokkra athygli og urðu af blaðaskrif þegar þáverandi fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson, styrkti húsakaupin í Hlaðvarpanum um tvær milljón- ir króna. Albert var þá á leið úr fjármálaráðuneytinu og var í sviðsljósinu vegna Hafskipsmálsins sem tengdist Utvegsbankanum, viðskiptabanka Hlað- varpans. „Við höfðum þurft að fá yfirdráttarheimild hjá bankanum til að borga eina af afborgununum og pen- ingarnir frá Albert fóru í að greiða hana niður, “ segir Helga. „Albert var sérstakur stjórnmálamaður sem fór sínar eigin leiðir og hann styrkti jafnvel framtak kvenna. Þegar kom að síðustu afborguninni áttum við ekki fyrir henni og báðum um lán en fengum synjun. Ég skrifaði bankastjórninni tvisvar bréf og bað þá um að endurskoða ákvörðun sína en fékk aftur neitun. Mig langaði þá að skrifa þriðja bréfið og biðja um mynd af bankastjóranum til að hengja hana upp hér í Hlaðvarpanum og skrifa undir: Karlpeningur. Það var svo Þórdís Guðmundsdóttir, sem hefur verið endur- skoðandi Hlaðvarpans frá upphafi, sem gat útvegað lán í Búnaðarbankanum en til þess þurfti hún að taka þá hálfgerðu kverkataki og hóta að fara með viðskipti sín úr bankanum ef lánið fengist ekki." 36 • VERA

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.