Vera


Vera - 01.04.2000, Page 41

Vera - 01.04.2000, Page 41
Draumur sem aldrei rætist Ræða Margrétar Frímannsdóttur á fundi Jafnréttisráðs um mansal til kynlífsþrælkunar Jafnréttisnefnd Evrópuráðsþingsins stóð dagana 4.-6. nóvember síðastliðinn fyrir ráðstefnu í Bari á Ítalíu, þar sem fjallað var um ofbeldi gegn konum. Ráðstefnan var fjölmenn, þar mættu fulltrúar frá rúmlega 30 löndum, og í flestum tilvikum voru fleiri en einn fulltrúi frá þjóðþingum þátttökulandanna ásamt fulltrúum ýmissa félagasamtaka og stofnana sem fjalla um jafnrétti kynjanna eða sérstaklega um málefni kvenna. Héðan fór þó bara einn fulltrúi og þá vegna þess að ég á sæti í jafnréttisnefndinni sem stóð fyrir ráðstefnunni. p^til vill fór íjöldi þátttakenda frá hverju CI landi eittlivað eftir því hversu þekkt þau vandamál eru sem fjallað var um á ráð- stefnunni. Það má skipta viðfangsefnum ráðstefnunnar í þrennt. I fyrsta lagi: Ofbeldi á heimilum. Undir þessum lið var fjallað um ofbeldi á heimilum út frá því sem við þekkjum af umræðunni hér heima. Um líkamlegt of- beldi, andlega kúgun og um grófa kynferð- islega misnotkun innan fjölskyldna. En það var einnig komið inn á þátt sem ég verð að viðurkenna að ég hef ekki liugsað mikið um. Það er meðferð á ungum konum, oft- ar en ekki frá fátækum þjóðum, sem send- ar eru viljugar eða óviljugar inn á heimili, t.d. í Vestur Evrópu, sem vinnustúlkur. I ótrúlega mörgum tilvikum eru þær í raun hnepptar í þrældóm hvað varðar vinnu og oftar en ekki er einnig um grófa kynferðis- lega misnotkun að ræða. Lýsingarnar á meðferðinni á þessum stúlkum voru hreint ótrúlegar og fullyrt að hér væri um mun stærra vandamál að ræða en almennt væri viðurkennt. í öðru lagi fjallaði ráðstefnan í Bari um nauðganir sem fylgja vopnuðum átökum milli þjóða eða þjóðarbrota. Nokkuð sem öllum er í fersku minni eftir hörmungarn- ar sem stríðsátökin á Balkanskaga höfðu í för með sér. Síðast en ekki síst var fjallað ítarlega um það málefni sem hér er til umræðu: Man- sal til kynlífsþrælkunar. Það má segja að þetta efni ráðstefnunnar hafi fengið mesta tímann og mesta umfjöllun í almennum umræðum sem fylgdu í kjölfar þeirra mörgu fróðlegu erinda sem flutt voru. Auðséð var að öllum ráðstefnugestum lá mikið á hjarta hvað varðaði þennan dag- skrárlið og á fulltrúum flestra þjóðþinga sem þarna voru mátti heyra að töluverð umræða hefur átt sér stað innan þinganna um þetta mál, sem er t.d. talið vera einn al- varlegasti vandi sem Evrópuþjóðirnar eiga við að etja í dag. Mikil áhersla var lögð á það, bæði af hálfu þeirra sem fluttu fram- söguerindi og þeirra sem tóku þátt í al- mennum umræðum, að hér væri um að ræða vanda sem þjóðirnar yrðu að standa saman að því að leysa eða bregðast við. Seldar til að stunda vændi Ég hafði fyrir ráðstefnuna velt því fyrir mér hvers vegna jafnréttisnefnd Evrópuráðs- þingsins, sem staðsett er í Strasburg, hafði valið þennan stað fyrir ráðstefnuna. En ástæðan hefði auðvitað átt að vera mér augljós. Borgin Bari er sunnarlega á austur- strönd Ítalíu, Adríahafsmegin, á móti Balkanskaganum. í Bari og næsta nágrenni má segja að séu dyr flóttamanna frá Balk- anlöndunum tilVestur Evrópu. Tugir þúsunda flóttamanna streyma ár hvert frá Balkanlöndunum yflr til Italíu. A hverri nóttu má búast við að hópi fólks sé fleygt frá borði einhverra þeirra báta sem sigla í skjóli nætur með flóttamenn frá Balkanlöndunum yfir til Italíu. En það eru ekki allir um borð í þessum bátum af fús- um og frjálsum vilja. Meðal flóttamann- Meðal flóttamannanna eru skilríkjalausar ungar stúlkur, oftast uppdópaðar, í gæslu bátsverja svo þær reyni ekki að flýja eða fyrirfara sér. Þær hafa verið plataðar eða rænt frá heimilum sínum og eru seldar til að stunda vændi. VERA • 41

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.