Vera


Vera - 01.04.2000, Page 49

Vera - 01.04.2000, Page 49
Fjármálaheimurinn hefur þörffyr IT segir Kristín Baldursdóttir, forstöðumaður rekstrardeildar íslandsbanka krafta kvenna „Stjórnun er lýðræðislegri og með flatara skipulagi nú en áður. Margir starfsmenn eru sínir eigin stjórnendur þar sem stjórnskipu- lagið er flatt og fólk ber meiri ábyrgð en áður. Hlutverk yfir- manns er að dreifa ábyrgðinni, hvetja starfsfólkið og vera því fyrirmynd. Stjórnandinn á að sýna að hann meðtaki þau gildi sem fyrirtækið hefur í heiðri. I Islandsbanka eru þau gildi skráð og nefnd Leiðarljós. Þau eru okkar fyrirtækjamenning,“ segir Kristín Baldursdóttir, forstöðumaður rekstrardeildar Islandsbanka. Kristín tók við forstöðumannsstarfmu sl. haust. Hún hefur unnið í tíu ár í Islands- banka, lengst við lána- og gæðamál í höf- uðstöðvum en sl. ár sem lánasérfræðingur þriggja útibúa. Hún kennir líka viðskipta- þýsku við viðskiptadeild Háskóla Islands. „Ég er menntuð í þýsku og hef háskóla- próf í hagfræði," segir Kristín. „Eg var lengi þýskukennari við Menntaskólann í Hamrahlíð og hef unnið mikið sem leið- sögumaður. Reynslan úr báðum þeim störfum hefur nýst mér vel í stjórnunar- starfmu þar sem ég er samræmingar- og tengiaðili, þarf að vera skipulögð og kunna mannleg samskipti. Starf rekstardeildarinnar felst m.a. í eignaumsýslu. Við sjáum um kaup og sölu á eignum bankans - húseignum, húsbún- aði og því sem til þarf — öllu nema tölvum. Við sjáum einnig um framkvæmdir; nú á t.d. að fara að byggja við höfuðstöðvarnar á Kirkjusandi sem hafa sprengt utan af sér húsnæðið. Oryggismál heyra einnig undir okkur og við veitum þjónustu varðandi símsvörun, póstflutning, skjalavörslu, af- hendingu rekstrarvara, ræstingar og mötu- neyti. Starfið er mjög fjölbreytt, svo og mannlífsflóran innan deildarinnar. Hér vinna 30 manns í 26 stöðugildum og við höfum samskipti við allar deildir bankans.” Fjötrar hugarfarsins hamla mest Kristín segir að til sé jafnréttisáætlun í Is- landsbanka en að hún sé máttlaust plagg. Hins vegar séu töluverðar breytingar fram- undan í þeim efnum að frumkvæði banka- stjórarns, Vals Valssonar, sem hún segir að sé mjög næmur á tíðarandann. „Ég sé þessar breytingar birtast m.a. í þátttöku okkar í verkefninu Auður í krafti kvenna. I kjölfar þess hefur farið af stað rnikil umræða innan bankans um atvinnu- þátttöku kvenna. Ég tel að fjötrar hugar- farsins, bæði hjá konum og körlum, hafi hamlað því að konur komist í æðri stöður. Með þátttöku í þessu verkefni fórum við að tala um hluti sem ekki höfðu verið ræddir áður, t.d. var rætt um það á nýlegum stjórnendafundi í bankanum að jafnréttis- áætlunin okkar væri máttlaust plagg. Það fmnst mér strax vera til bóta, það þarf að skilgreina stöðuna til þess að hægt sé að breyta henni. Við horfðum líka á hver kynjahlutföll væru í stjórnunarstöðum bankans og í ljós kom að þau voru 40% konur og 60% karlar. Hlutföllin innan hópsins eru hins vegar skekkt því konur eru fjölmennari í lægri stjórnunarstöðum. I hópi þjónustustjóra eru konur fjölmenn- ari, fleiri karlar eru forstöðumenn eða átta karlar og sex konur sé litið eingöngu á Is- landsbanka en ekki dótturfyrirtækin VIB, Glitni og F&M. Því næst kemur fram- kvæmdastjórnin þar sem er engin kona og ekki heldur í bankaráði.” Gott að hafa siðferðisgildi að leiðarljósi Kristín leggur áherslu á að fyrirtæki sem hafa skapað sér eigin gildi og fyrirtækja- menningu standi sig betur í rekstri en önn- ur fyrirtæki. Hún segir að Leiðarljós Is- landsbanka hvetji starfsfólk til að vinna sjálfstætt og taka ábyrgð, því sé ekki mikið um að haft sé eftirlit með fólki. „Leiðarljósið var samið fljótlega eftir að bankinn var stofnaður. Þar kemur ekkert beint fram um jafnréttismál, þetta eru ákveðin siðferðisgildi eða viðmið sem við segjumst vilja hafa í heiðri, t.d. stendur þar: „Við vinnum saman, hjálpum og treystum hvert öðru. Framlag hvers og eins skiptir máli. Við höldurn eðlilegu jafnvægi milli vinnu og heimilis. Við berum virð- ingu fyrir samstarfsfólki og samferða- mönnum.” Síðan er fjallað um það hvernig við eig- um að þróast sjálf, sagt að við eigum að vera skapandi og opin fyrir breytingum, deila kunnáttu og reynslu og byggja upp úrvalsþekkingu með markvissri fræðslu. Þessi ákvæði skipta miklu máli, bæði það að fólk eigi að þróast og að jafnvægi eigi að vera á milli heimilis og vinnu. Karlmenn hafa átt greiðari leið til frama innan f]ár- málaheimsins og í menningunni er líka talið að karlar eigi að sækja fram sem þyk- ir ekki eins sjálfsagt fyrir konur.” Að lokum er Kristín spurð hvort árang- ur hennar í starfi hafi kostað hana mikið. Hún kannast ekki við það. Hún á tvo syni sem eru að verða 6 og 12 ára. „Ég er metn- aðargjörn, vön að vinna sjálfstætt og helli mér í verkefni sem ég tek að mér. Vinnu- dagurinn er oft lengri en ég vildi hafa hann en ég hef litið á það sem mitt vandamál. Langtímamarkmið er að stytta viðverutím- ann í vinnunni með betra skipulagi. Við hjónin skiptumst á að sinna strákunum, t.d. þarf að keyra þann yngri í fimleika tvisvar í viku og ég geri það í annað skiptið, fer þá héðan kl. fjögur en þarf þá stundum að taka vinnu með mér heim. Að vissu leyti er maður alltaf í vinnunni því hún tengist verkefnum en ekki viðverutíma og það kann ég vel við,“ segir Kristín Bald- ursdóttir að lokum. EÞ VERA • 49

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.