Vera - 01.04.2000, Side 55
12. desember, mánuði fyrir tímann. Sumarið 1993 lagði liún af
stað í heimshljómleikareisu sem hefur eiginlega staðið síðan.
Haustið 1994 kom út safnplatan Sodade les plus belles mornas de
Cesaria sem, eins og nafnið gefur til kynna, inniheldur eingöngu
„mornas", sem eru söngvar litaðir af hryggð, svona Miðjarðar-
hafsblús, sem Cesaria þykir flytja manna best, sem sagt Úrval bestu
blúsa Cesaríu.
1995 birtist skífan Cesaria og var gefin út í rúmlega 20 lönd-
um, þar á meðal Bandaríkjunum í fyrsta skipti og í kjölfarið kom
fyrsta hljómleikaferðalag hennar þangað. I New York flykktist
þotuliðið til að sjá hana syngja í The Bottom Line, þ.á.m. tónlist-
arfólkið Madonna, David Byrne (úr Talking Heads) og blásarinn
Branford Marsalis.
1997 kom CapeVerde út og var tilnefnd til Grammy-verðlauna
eins og Cesaria hafði verið. I október 1998 kom út á alþjóðlegum
markaði safnplatan Best of, sem inniheldur m.a. spænska lagið
Besame Mucho, en annars syngur Cesaria á portúgölsku... Þetta er
frábær útgáfa á þessu fræga og margsungna lagi sem Cesaria
hljóðritaði fyrir aðstandendur myndarinnar Great Expectations.
Nýjasta plata Cesariu Evoru kom út í fyrravor og hefur t.d. ver-
ið hátt á lista yfir svokallaða heimstónlist í Billboard-blaðinu
bandaríska. Café Adantico heitir hún og inniheldur lög frá heirna-
slóðum söngkonunnar og önnur ættuð frá Kúbu og Brasilíu. Allir
textarnir (nema Maria Elena sú hin fræga) eru á textablaðinu og
þýddir yftr á ensku. Ekki veit ég til að Cesaria taki nokkurn þátt í
textagerð, sem maður gæti þó lraldið vegna innihalds þeirra og
túlkunar hennar, en sumir eru þó kannski samdir fyrir hana...
Annars skiptir það svo sem engu, nema þá fyrir pyngju söngkon-
unnar... Málið er að konan hefur guðdómlega jarðneska rödd,
svona eins og hlý og breysk móðir Jörð sem hefur áhyggjur af öll-
urn, er ekki of bjartsýn í sambandi við lífið og tilveruna en er ekki
með neitt væl, og tregatextana syngur hún í suðrænni mjúkri
sveiflu sem væri hægt að nota sem undirspil á glæsilegustu heims-
meistaramótum í suðrænum dönsum... en áfram með ártölin; nú
á því herrans ári 2000 er Cesaria enn í heimsreisu og heimsækir í
leiðinni menningarborgina Reykjavík og syngur með sinni sveit á
einungis einum hljómleikum á Broadway 29. maí. Miðasala hefst
hjá Listahátíð 25. maí og þegar þetta er skrifað, í fyrstu viku apríl-
mánaðar, er rnikið búið að spyrja um þessa hljómleika... líklega
Steingrímur meðal annarra, þannig að rétt er fyrir áhugasama að
krossa við daginn.
Loks er rétt að geta þess að Japis flytur inn plötur berfættu
dívunnar frá Grænhöfðaeyjum... og segja gleðilega gula páska og
sem grænast vor.
Greiðum Vcru með korti!
Gefum gjafaáskrift!
Vera þakkar þeim fjölmörgu sem
greiða áskrift sína skilvíslega því
mikill tími og kostnaður fer í
innheimtu þegar gíróseðlar týnast
eða gleymast ofan í skúffu.
Greiðslukortin eru bæði þægilegri
og ódýrari kostur fyrir báða aðila.
Við hvetjum alla gírógreiðendur
sem eiga greiðslukort til að hafa
samband. Einnig er hægt að skrá
áskrift á kort maka eða gefenda.
Munið að skilvísar greiðslur áskrifenda
halda Veru gangandi!
Það munar um hverja og eina.
Á skrifstofu Vcru fást falleg
gjafakort sem við sendum út ef þess
er óskað. Gjafaáskrift er tilvalin
tækifærisgjöf. Hægt er að gefa
þrjú blöð, sex blöð eða fasta áskrift.
Vcra sími: 552 2188, kl.9—13.
Einnig er hægt að senda beiðni
á netfangið:
veraö>vortex.is
5 5
VER A •