Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 3
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
3
Orðsending til Ijósmæðra
Við viljum benda öllum þeim á, sem lokið hafa ljósmæðranámi eftir
gildistöku Ljósmæðralaga Nr. 67/1984, sem birtust í Stjórnartíð-
indum 28. maí 1984 og teljast því samkvæmt gildandi relgum um birt-
ingu laga hafa öðlast gildi 29. maí 1984. Að enginn má kalla sig ljós-
móður né starfa að ljósmæðrastörfum hér á landi nema að hafa fengið
starfsleyfi samkvæmt Ljósmæðralögum Nr. 67/1984. frá heil-
brigðisráðuneytinu.
Einnig viljum við benda þeim hjúkrunarfræðingum á, sem numið hafa
ljósmæðrafræði erlendis og eingöngu hafa fengið sérfræðileyfi sam-
kvæmt reglugerð nr. 98/1976, að þeir hafa ekki rétt til að kalla
sig ljósmóðir né stunda ljósmóðurstörf hér á landi samkvæmt Ljós-
mæðralögum Nr. 67/1984, sem birtust í Stjórnartíðindum 28. maí
1984, og teljast því samkvæmt gildandi reglum um birtingu laga hafa
öðlast gildi 29. maí 1984, nema að hafa fengið starfsleyfi sam-
kvæmt Ljósmæðralögum Nr. 67/1984 frá heilbrigðisráðuneytinu.
Með kœrri kveðju
EVA S. EINARSDÓTTIR,
fulltrúi Ljósmœðraskóla íslands í Ijósmceðraráði.
GUÐRÚN BJÖRG SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
fulltrúi Ljósmœðrafélags íslands í Ijósmœðraráði.