Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Síða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
5
Ragga var ekki íyrir að trana sér fram og langt í frá að hún miklaðist
af eigin verðleikum, hún var hógvær kona og sjálfri sér samkvæm til
síðustu stundar.
Hún var fædd á Sauðárkróki og var þar til moldar borin. Batt þar
ævinlega tryggð við litla húsið í Suðurgötunni, þar sem móðir hennar
og systir búa. Hún bar mikla umhyggju fyrir íjölskyldu sinni og
móður sína virti hún manna mest í heimi hér, enda kærleikur og
umhyggja þeirra mæðgna hver fyrir annarri einstök. Systur hennar
sýndu hennni fádæma umhyggju í veikindunum og Jóhanna hjúkraði
henni sem best var á kosið. Fyrir það var Ragga svo þakklát, og fyrir
það að fá að vera heima á meðan hægt var.
Einn son átti Ragga, Brynjólf, og veit ég að bænir hennar verða hon-
um styrkur og hún sjálf góð fyrirmynd. Milli Röggu og Kollu tengda-
dóttur hennar var einlæg vinátta og traust og ömmubörnin Ragga Lára
og Emil voru augasteinar Röggu. Ég er ekki ein um að sakna hennar
Röggu, við söknum hennar öll, sem með henni unnum hér á Krók,
þökkun henni samfylgdina og allar gleðistundirnar, og erum þess fulí-
viss að laus við þjáningar gengur hún nú guðs um geim.
Slíkrar konu er gott að minnast.
Birgitta Pálsdóttir
Ljósmæður athugið
Skrifstofutími L.M.F.Í. að Grettisgötu 89, sími
17399, verður framvegis á mánudögum milli kl.
13.30 og 16.30.