Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
9
fæðingar taka þær ljósmæður sem vinna úti í hverfunum og skal nú
ögn vikið að starfsvettvangi þeirra. Það er lögboðið í Skotlandi að
hver kona njóti umsjár ljósmóður í 10 daga eftir fæðinguna og eftir
að konan útskrifast af sængurkvennadeild vitjar hennar hverfaljós-
móðir (community midwife) fram á 10. dag. Þessar ljósmæður vinna
mjög svipað og hjúkrunarfræðingar í ungbarnaeftirliti hérlendis og
hyggja að vellíðan móður og barns. Fyrstu 3 dagana eftir fæðinguna
á konan rétt á 3 heimsóknum daglega, síðan 2 daglega fram á 5. dag
en eftir það einni heimsókn á dag fram á 10. dag að hún er útskrifuð
í hendur heilsugæsluhjúkrunarfræðings. í heimsóknum sinum mælir
ljósmóðirin hita móður og barns, tekur blóðþrýsting ef þarf athugar
episiotomiu eftir þörfum o.s.frv. Einnig sjá þær um að skoða konur á
meðgöngu ef þær einhverra h luta vegna koma ekki eða vilja ekki koma
í göngudeild. En víkjum aftur að ,,domino“ fæðingum. Velji kona að
fæða upp á þann máta hefur hún samband við sína hverfisljósmóður
sem vitjar hennar þá á meðgöngutímanum og þegar konan heldur að
hús sé að byrja í fæðingu hringir hún í þessa ljósmóður, sem fer heim
til hennar og metur hana. Konan er svo heima hjá sér ásamt ljósmóð-
urinni þar til þeirri þykir tími til þess að fara á fæðingardeild. Oft er
konan heima mestan partinn af fyrsta stiginu. Konan fæðir síðan á
fæðingardeildinni hverfisljósmóðirin tekur á móti og útskrifar konuna
eftir 6 tíma. Heldur svo áfram að vitja hennar eins og að ofan greinir.
Mörgum konum fellur þessi leið vel, þær losna alveg við sjúkrahúsið
sem stofnun en njóta til fullnustu þess sem það býður upp á. Tilvist
hverfaljósmæðranna gerir konum kleift að fara heim nánast hvenær
sem þær vilja en eiga samt rétt og kost á aðstoð fagfólks. Þess skal
getið hér að það tíðkast ekki á neinum spítalanna að börn séu á barna-
stofum enda sá maður hvergi slíka sali. Börnin eru hjá mæðrum sínum
allan sólarhringinn, í heimsóknartímum líka.
Þó það megi kannski við fyrstu sýn segja að íslenskar ljósmæður
starfi sjálfstæðar að fæðingarhjálp en þær skosku þá vakti það athygli
okkar að komið hefur verið upp við öll sjúkrahúsin göngudeildum
ljósmæðra, þar sem einungis þær skoða konurnar en sérfræðingar
aðeins 1-2 sinnum á meðgöngunni. Þetta ku mælast vel fyrir hjá kon-
unum (losna við að bíða eftir sérfræðingum??) og enn betur hjá ljós-
mæðrunum sjálfum. Konur í áhættuhópum sækja þó ekki þessar deildir
heldur venjulegar göngudeildir. Ef rannsaka þarf þær konur sérstak-
lega fara þær á dagdeildir sem reknar eru við öll sjúkrahúsin. Þar fara