Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 20
20
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
samkv. 51. og 52. gr. reglugerðar fyrir heilsugæslustöðvar nr. 160/
1982.
10. gr.
Allar verðandi mæður skulu eiga kost á eftirliti um meðgöngu-
tímann. Að jafhaði skal fyrsta skoðun fara fram á 12. viku meðgöngu-
tímans. Frá 12. viku til 32. viku meðgöngutímans skal verðandi
móður gefinn kostur á að koma til skoðunar á 4-ra vikna fresti. A 32.
til 36. viku meðgöngutímans skal verðandi móður gefinn kostur á að
koma tvisvar sinnum til skoðunar en eftir það vikulega þar til bamið
er fætt.
Við mæðraskoðun skal ljósmóðir annast nauðsynlega upplýsinga-
öflun og skráningu á mæðraskrá ásamt skoðunum og rannsóknum á
bamshafandi konu.
Ljósmóðir annast ómskoðanir og aðrar rannsóknir í meðgöngu, svo
og mæðravemd almennt.
11. gr.
Foreldraffæðsla og ráðgjöf.
Ljósmóðir skal kappkosta að búa verðandi foreldri(a) undir hlutverk
sitt með fræðslu um meðgöngu, fæðingu og um brjóstagjöf ásamt um
meðferð, næringu og umönnun ungbama. Annast öndunar- og slök-
unaræfingar fyrir bamshafandi konur, leiðbeina og fræða um fjöl-
skylduáætlanir, kynlífsmál og getnaðarvamir. Skal sú fræðsla veitt í
tengslum við mæðraskoðun, í og eftir fæðingu og við hjúkmn og eftir-
lit bama og barnshafandi kvenna, með sérstökum námskeiðum eða í
einkaviðtölum eftir því sem best hentar.
14. gr.
Ungbama- og smábamavemd.
Á heilsugæslustöð skal ljósmóðir fylgjast með þrifúm og heilbrigði
ungbama fyrstu þrjá mánuði, annast skoðun ungbama að minnsta
kosti 5 sinnum á aldrinum 3-ja til 14 mánaða, þar sem fylgst er með
andlegri og líkamlegri heilbrigði þeirra og taka þátt í skoðun smábama
(1 til 6 ára) sem koma á 2.-6. aldursári til læknisskoðunar. Öll böm
skulu eiga kost á ónæmisaðgerðum. Öll böm skulu sjónprófuð og
heymarmæld fyrir 4-ra ára aldur. Fyrir þann aldur skal og greindar-
og þroskaprófa öll þau böm sem gmnur leikur á að hafi óeðlilega lít-
inn greindarþroska.