Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Síða 23
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
23
fréttum dag eftir dag frá kennurum, háskólamenntuðum hjúkrunar-
fræðingum, venjulegum hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, meina-
tæknum og nú síðast fóstrum en ekki minnst á ljósmæður, ekki minnst
á að ljósmæður séu að semja eða hafi samið frekar en þær séu ekki til.
Stéttarvitundin er kannski ekki meiri þar sem 70-80% af Ijós-
mæðrum útskrifuðum síðastliðin 15 ár eru líka hjúkrunarfræðingar
íyrir eða eftir og kannski fyrst og fremst, eða staðnaði LMFÍ eftir
baráttuna um umdæmisljósmæðumar.
Ég vil taka undir með Evu og spyr hvernig ljósmæðrastétt viljum
við vera. Baráttan er að hefjast hjá konum og sem vel menntaðar,
framsýnar og ábyrgar ljósmæður snúum við vöm í sókn og samein-
um öll þessi félög í eitt, t.d. Félag Háskólamenntaðra. En þar sem
stétt eykur svo við undirbúningsnám sitt getur hún tekið með sér
fámennan hóp í nýtt stéttarfélag samanber sjúkraþjálfara. Síðan gæt-
um við rætt innbyrðis um launastig eftir menntun, starfsaldri, ábyrgð
í starfi o.s. frv.
Til þess að þetta geti orðið verður LMFÍ að ráða sér launaðan starfs-
mann a.m.k. um tima t.d. félagsráðgjafa, lögmann eða einhvem þann
sem vanur er að fást við kröfúgerðir og sætta ólík sjónarmið. Ef 100
ljósmæður greiða 500 kr. á mánuði em þar 50.000 kr.
Vesturlandsdeild LMFÍ sendi félaginu svipaða áskomn 1977 fyrir
10 ámm og segir mér svo hugur um að ýmislegt væri öðmvísi í dag
ef þessari áskoran hefði verið tekið.
Kæm starfssystur, ég er stolt af því að vera ljósmóðir og mega taka
þátt í mestu gleðistundum í lífi hverrar íjölskyldu og hafa hönd í bagga
með fyrstu skrefum nýrra skattborgara.
Ég þakka áheyrnina.
Eymundsson Auslurstræii, sími 18880 — Nýja bæ, sími 611700