Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 29
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
29
Farið var í rútu til Húsavíkur og er þetta í annað skipti sem aðal-
fundur er haldinn þar. Sá fyrri íyrir 15 árum, árið 1971. Rætt hefúr
verið um að halda aðalfundinn nú í vor á Sauðárkróki og þá helst í
byrjun júní. Á fundinum á Húsavík sagði Birgitta Pálsdóttir frá
Norðurlandaþingi ljósmæðra sem haldið var í Stokkhólmi í maí 1986,
en hún fór þangað í hópi 20 íslenskra ljósmæðra. Tvær aðrar frá
Norðurlandsdeild fóru á þingið, Ása Marinósdóttir og Margrét Þór-
hallsd.
Form. minntist lítillega á aðalfund LMFÍ sem haldinn var með hraði
í Reykjavík þ. 19. apríl 1986. Þar kom m.a. fram að æskilegt væri
að hafa sérstakan fund með ljósmæðrum utan af landi og þá helst í
tengslum við aðalfundinn.
Á Húsavíkurfundinum voru ritari og varaformaður endurkjörnar.
Þá kom fram þar sem og á undanförnum aðalfundum að ijárhagur
deildarinnar er ekki sérlega beisinn, enda ekki um neina fjáröflun að
ræða utan árgjöld. Meiri áhersla hefur verið lögð á að fjalla um mál-
efni ljósmæðra og skjólstæðinga. Hvers konar fræðsla er vinsæl. Það
er barnshafandi kvenna svo og seinna mæðra.
Á þessum fundi hreyfði Ólöf Ásta Ólafsdóttir þeirri hugmynd hvort
ekki væri möguleiki í sambandi við mæðraeftirlitið á Akureyri að
koma á meiri kynnum milli verðandi mæðra og þeirra ljósmæðra sem
vinna á fæðingardeildinni. Myndi það veita konum meira öryggi ef
þær fengju á meðgöngutímanum að kynnast einhverjum af þeim sem
síðar kæmu til með að annast þær í fæðingu og sængurlegu.
Ólöf Ásta gat um fleiri en einn möguleika í þessu sambandi og var
ákveðið að kanna hvort starfandi ljósmæður á FSA gætu til skiptis
starfað við mæðraeftirlitið ásamt heilsugæsluljósmæðrum.
í framhaldi af þessu héldu nokkrar ljósmæður fund og var samið
bréf sem sent var til nokkurra aðila sem þessu tengjast.
Þann 28. apríl sl. boðuðu hjúkrunarforstjóri og yfirlæknir Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri ljósmæður til fundar. Skýrðu þau frá
því að með haustinu yrði tekið í notkun nýtt húsnæði fýrir mæðraeftir-
litið og sýndu teikningar af því. 14 ljósmæður komu á þennan fund.
Þau skýrðu einnig frá því að samkvæmt ýmiss konar lagagreinum
væri ekki möguleiki á að tvær stofnanir önnuðust eftirlitið. Önnur
þeirra yrði að vera ábyrg fyrir starfseminni og í þessu tilfelli yrði það
Heilsugæslustöðin. Auglýst var eftir ljósmóður.
2. febrúar komu 10 ljósmæður til fundar um kjaramál ljósmæðra og