Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Side 36
36
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Tillaga kom frá ritstjórn eftirfarandi:
Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands, haldinn að Grettisgötu 89,
Reykjavík 9. maí 1987, veitir ritnefnd Ljósmæðrablaðsins heimild til
að breyta útliti og uppsetningu blaðsins.
Breytingartillaga barst frá Hildi Kristjánsd. svohljóðandi:
Legg til að breyting á stærð blaðsins verði leyfð en útlit forsíðu lagt
fyrir stjórn sem verði að samþykkja.
Tillögur ritstjórnar og Hildar Kristjánsd. bornar undir atkvæði og
felldar en samin ný tillaga eftirfarandi og hún samþykkt samhljóða.
Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands haldinn að Grettisgötu 89,
Reykjavík, 09.05. 1987 veitir ritnefnd Ljósmæðrablaðsins heimild til
að breyta stærð blaðsins, sem bundin verði við áramót og útliti forsíðu
að undangengnu samþykki stjórnar.
Svohljóðandi ályktun barst fundinum.
Til aðalfundar Ljósmæðrafélagsins.
Aðalfundur Deildar Hjúkrunarfræðinga með Ljósmæðramenntun
lýsir ánægju sinni yfir þeim kjarabótum sem áunnist hafa í síðustu
kjarasamningum til handa ljósmæðrum og er það von okkar að það
launamisrétti sem til þessa hefur ríkt sé nú að engu orðið.
Stjórnin
Tillaga um breytingu á stöðuheitum á Kvennadeild frá Gróu M.
Jónsd. eftirfarandi.
Aðalfundur Ljósmæðrafélags íslands haldinn 09.05. 1987 að
Grettisgötu 89, Reykjavík, samþykkir að skora á stjórn Ríkisspítala að
breyta stöðuheitum á Kvennadeild Lsp. að þar verði starfsheitið ljós-
móðir notað í stað hjúkrunarfræðingur.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Tillaga um félagsgjöld frá ljósmæðrum á Selfossi svohljóðandi:
Ljósmæður á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi leggja til að fundurinn
samþykki að ráðinn verði starfsmaður á skrifstofu félagsins. Til að