Ljósmæðrablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 48
48
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
safnað í gegn um tíðina var ákveðinn fjöldi fylgja (8) með þrjá æða-
belgi og tvo æðabelgi og þrjár með einn æðabelg (Nylander og Corney
1971). I Nígeríu voru prósentur af fylgjum með þrjá æðabelgi miklu
hærri en í UK. Af 40 þríburum voru 29 með þrjá æðabelgi, 10 voru
með tvo æðabelgi og aðeins ein var með einn æðabelg. (l:bls. 173).
9. Tvíbura fylgja
Gerðir fylgja:
Til eru þrjár gerðir af fylgju — einföld, blönduð og aðskildar. Stað-
setning hreiðrunar í leginu, samruni kynfrumanna og hjá eineggja tví-
burum skiptir máli á hvaða tíma samruni kynfrumanna átti sér stað,
í sameiningu ákvarðar þetta gerð fylgjunnar á meðgöngunni. Þar sem
tvíeggja tvíburar koma frá tveimur eggfrumum hafa hvor um sig sína
fylgju. Með því að benda á staðsetningu hreiðrunar halda þær áfram
að vera aðskildar eða ef þær eru nálægt hvor annarri geta þær samein-
ast að hluta eða algjörlega þannig að þær mynda greinilega eina leg-
köku. Með því að bera saman tíðni þessara tveggja gerða af fylgjum
með tvo æðabelgi þá er það ekki hægt að ákvarða nægilega í gegn um
tíðina, er samruni mismunandi í mismunandi rannsóknum, allt frá
lausum himnutengslum í fullkomna samloðun á fylgjuvef. (Sjá mynd
2.). Gerðir fylgja hjá eineggja tvíburum gefur góða vísbendingu um
þroskastig þegar eggfruman skiptir sér. Ef skiptingin skeður á fyrstu
þremur dögunum eftir frjóvgun, munu tvíburarnir fá sín hvora fylgj-
una. Sumir rannsakendur hafa fundið út að eineggja tvíburafylgja með
tveimur æðabelgjum er líklegri til að vera blönduð heldur en hjá tví-
eggja tvíburum. Tveir könnuðir halda því fram að þetta gerist við
mikla breytingu á hreiðrun sem hefur átt sér stað hlið við hlið þegar
tvær eggfrumur koma frá sama eggjaleiðara sem að sjálfsögðu gerist
hjá eineggja tvíburum. Það er eflaust enginn munur á starfsemi hjá
sameinuðum og aðskildum fylgjum, en þar sem starfsemi fylgja hlýtur
að hafa áhrif á hvar staðsetning hreiðrunar er, er ekki að undra þó
misræmi í fósturvexti hjá samkynja tvíeggja tvíburum sé meiri en hjá
þeim sem hafa aðskildar fylgjur. Ef önnur fylgjan er staðsett á aftur-
vegg legsins og hin t.d. nálægt cervix þá mun hin fyrri hafa heilmikið
leg-fylgju blóðflæði og þar af leiðandi betri næringu fyrir það fóstur.
(1 :bls.72)