Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Page 28
„Sá nýi yfirsetukvennaskóli“
Uppruni og viðtökur
Útdráttur
/ greininni er rakin sagafyrstu bókarinn-
ar um yfirsetukvennafrœði sem kom út á
íslensku. Bókin ber titilinn Sá nýi yfir-
setukvennaskóli og kom út á Hólum í
Hjaltadal árið 1749. Forgöngumaður
útgáfunnar var Halldór Brynjólfsson
Hólabiskup (1692-1752) sem taldi
nauðsynlegt að yfirsetukonurfengju gott
frœðsluefni á sviði fœðingafrœða, en á
þessum tíma var frœðsla yfirsetukvenna
í höndum presta og þá einkum af trúar-
legum toga.
Sá nýi yfirsetukvennaskóli er þýð-
ing á danskri bók, Nye Jorde-Moder-
Skole sem danski læknirinn Balthazar
Johann de Buchwald (1697-1763) gaf
út árið 1725. Buchwald hafði notið
kennslu ýmissa þekktra lœrimeistara á
sviði lœknisfrœði á meginlandi Evrópu
áfyrri hluta 18. aldar. Bók Buchwalds
er þó að miklu leyti þýðing á sœnskri
bók eftir lœkninn Johann von Hoorn
(1662-1724) sem kom út árið 1715, en
meginefni hennarmá rekja til bókarsem
Hoorn gaf út árið 1697 og var fyrsta
bókin um yfirsetukvennafrœði sem kom
út í Svíþjóð. Hoorn lœrði í París hjá
þekktum lœrimeisturum og jafnframt
hjá franskri ljósmóður á Hðtel-Dieu í
París.
Arið 1760 var landlœknisembœttið
stofnað hér á landi og ári síðar var
farið að nota Yfirsetukvennaskólann
við frœðslu yfirsetukvenna. 1 bréfasafni
Bjarna Pálssonar landlœknis (1719-
1779) má sjá að bókin fékk blendn-
ar viðtökur sem hann taldi að mœtti
rekja til feimni og andúðar á nýjung-
um. Utgáfu Yfirsetukvennaskólans má
þó telja merkilegt framtak, en finna má
heimildir um að bókin hafi verið mikils
metin hjá yfirsetukonum þegarfrá leið.
í nóvember í fyrra kom út bókin Sá nýi
yfirsetukvennaskóli.1 Bókin kom upp-
haflega út árið 1749 og er fyrsta ritið
um ljósmóðurfræði sem var gefið út á
íslensku. Yfirsetukvennaskólinn, eins og
bókin hefur verið nefnd, var notuð við
kennslu yfirsetukvenna þegar formleg
Bragi Þorgrímur Ólafsson sagnfræð-
ingur á handritadeild Landsbókasafns
Islands - Háskólabókasafn.
* Ritrýnd grein
Balthazar Johann
De Buchwald
Sá nýi
YFIRSETUKVENN ASKÓLI
EÐUR
STUTT UNDIRVÍSUN
UM
YFIRSETUKVENNAKÚNSTINA
BrAGI l>ORGRÍ MI.IR ÓLAFSSON
BJÓ TIL PRENTUNAR OG
RITAÐI INNGANG
SÖG USPBKING ASTIFTI
HAFNARFIRÐI
MMVI
Sá nýi yfirsetukvennaskóli. Útgáfan frá
2006. Bókin var gefin út með styrk frá
Ljósmœðrafélagi Islands.
fræðsla þeirra hófst á vegum lands-
læknisembættisins árið 1761. Saga bók-
arinnar er nokkuð forvitnileg, og má
rekja efni hennar til ýmissa frumkvöðla
í fæðingarfræðum á meginlandi Evrópu
í lok sautjándu aldar og í upphafi þeirr-
ar átjándu. I þessari grein er stuttlega
greint frá sögu bókarinnar.
Tilurð útgáfunnar
Um miðja átjándu öld var ekkert
formlegt heilbrigðiskerfi hér á landi.
Landlæknisembættið var ekki stofnað
fyrr en 1760 og fram að þeim tíma
sáu prestar að miklu leyti um ýmis
málefni sem lutu að heilbrigðismálum.
Þeir sáu til að mynda um fræðslu yfir-
setukvenna, en sú fræðsla var þó að
mestu af trúarlegum toga. Um miðja
öldina taldi biskupinn á Hólum, Halldór
Brynjólfsson (1692-1752), nauðsynlegt
að efla þessa fræðslu og lét því þýða
danska kennslubók í yfirsetukvenna-
fræðum, Nye Jorde-Moder-Skole, og
gefa út á íslensku.
Reyndar fer tvennum sögum af ástæð-
um þess að Halldór réðst í útgáfu bók-
arinnar. I formála Yfirsetukvennaskólans,
eins og bókin hét á íslensku, segist hann
hafa sjálfur ákveðið að gefa bókina út
þar sem hann taldi að mikil þörf væri
á að yfirsetukonur fengju fræðslurit
við sitt hæfi, þar sem þekking þeirra á
vinnubrögðum við vandasamar fæðing-
ar væri af skornum skammti (enda var
fræðsla þeirra afar takmörkuð). í þessu
sambandi nefnir hann tvær yfirsetukon-
ur sem hann þekkti. Önnur hafði tekið
á móti 300 börnum að eigin sögn, en
hafði takmarkaða þekkingu þegar kom
að vandasömum fæðingum. Hin hafði
tekið á móti 70 börnum en lenti eitt sinn
í fæðingu þar sem hún bar ekki kennsl
á naflastrenginn. Halldór var viðstadd-
ur fæðinguna og gat ráðlagt henni um
æskileg handtök sem hann hafði lært af
riti eftir alkemistann Jean Pharamond
Rhumelius (um 1600-1660).2 Með þessa
reynslu í huga ákvað Halldór að reyna
að bæta úr fræðslu yfirsetukvenna með
útgáfu Yfirsetukvennaskólans. I formál-
anurn segir Halldór að sumarið 1746
frétti hann að sr. Vigfús Jónsson (1706-
28 Ljósmæðrablaðið júni' 2007