Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 45
rnn var fyrir ráðstefnuna, var Hildur
Knstjánsdóttir kjörin formaður Norður-
landasamtaka Ijósmæðra og er það
1 fyrsta sinn í 57 ára sögu samtak-
anna sem íslendingur hefur vermt það
sæti- Hildur hefur verið fulltrúi íslands
stjórn NJF síðan 1986. Ljósmæðrafélag
Islands óskar Hildi innilega til hamingju
með formannsstöðuna.
Næsta Norðurlandaráðstefna ljós-
mæðra verður haldin í Kaupmannahöfn
á 60 ára afmæli NJF árið 2010.
Útgáfumál
^efsíður Ljósmæðrafélagsins eru báðar
nnnar af sóma. www.ljosmodir.is er nú
meðal vinsælustu vefsíðna landsins undir
stjórn Önnu Sigríðar Vernharðsdóttur.
nnra net vefsíðu Ljósmæðrafélagsins
v<tr opnað í lok apríl og fengu allar ljós-
mæður send persónuleg aðgangs- og
lykilorð til að komast inn á það. Með til-
k°mu innra netsins skapast möguleikar
t*l umræðna, námskeiðahalds o.fl. ásamt
uðgangi að lokaverkefnum ljósmæðra.
Vefstjóri Ijosmodir.is/felag er Val-
§erður Lísa Sigurðardóttir.
Auk þessa hefur Ljósmæðrafélagið
sent frá sér eitt fréttabréf og Fylgjuna
góðu sem Elínborg Jónsdóttir hefur sem
fyir, umsjón með. Elínborg kallar eftir
ábendingum frá ljósmæðrum um efni
Fylgjunnar.
Ljósmæðrablaðið kom tvisvar út á
árinu með fjölbreyttu efni þrátt fyrir að
engin ritrýnd grein birtist árið 2006, en
von er á nokkrum slíkum í næstu blöð.
Greinar úr blaðinu eru nú vistaðar í
í varðveislusafn Bókasafns LSH, sem
nefnist Hirslan, slóðin er http://www.
hirsla.lsh.is/lsh/sflr. Þar er hægt að finna
greinar með því að slá inn leitarorð.
Bókin um Meðgöngu, fæðingu og
sængurlegu hefur nú verið endurþýdd
og dreift til allra ljósmæðra í mæðra-
vernd. Kristín Svala Jónsdóttir sá um
þýðingu bókarinnar og fékk til liðs við
sig fleiri ljósmæður m.t.t. staðfæringar.
Bókin er kostuð og gefrn út af Libero
fyrirtækinu en umboðsaðili þess hér á
landi er O. Johnson og Kaaber sem mun
sjá um dreifingu hennar.
Hafið samband við Ólaf Hauk vegna
pantana á bókinni: oho@ojk.is
Húsnæðismál
Nú höfum við verið í nýju húsnæði í
rúmt ár og líkar sambúðin við BHM
félög afskaplega vel. Boðleiðir eru
stuttar þegar flestir sem til þarf að leita,
eru undir sama þaki. Eins hafa ljós-
mæður verið sérlega iðnar við að nýta
sér góða fundaaðstöðu sem nægt fram-
boð er af í húsnæðinu.
Við höfum lagt mikla áherslu á
aðgang að fjarfundabúnaði sem nú er að
komast í gagnið og hyggjumst við nýta
okkur hann við flest tækifæri.
Ég vil þakka stjórn Ljósmæðrafélags-
ins góða samvinnu og félagsmönnum
fyrir hollar ábendingar og hvatning-
arorð. Ljósmæðrafélagið er lítið félag
en öflugt og með traustan bakhjarl,
BHM. Eins og fyrr segir, má á ýmsan
hátt líkja Ljósmæðrafélaginu við gras-
rótarsamtök, með hugsjónum ljósmæðra
fyrir góðum málstað og við eigum að
nýta okkur þau einkenni félagsins til að
styrkja stéttina yst sem innst.
f.h. stjórnar
Ljósmœðrafélags Islands
Guðlaug Einarsdóttir, formaður
Bayer HealthCare
|y Bayer Schering Pharma
Ljósmæðrablaðið júní 2007 45