Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 32
Lærimeistarar og áhrifavaldar
Buchvvalds
Buchwald lauk doktorsgráðu í lækn-
isfræði í Kaupmannahöfn árið 1720 og
fór sama ár í námsferð til Hollands. Þar
naut hann fræðslu ýmissa þekktra vís-
indamanna sem hafa sett mark sitt á heil-
brigðisvísindin. Buchwald kenndi síðar
Bjarna Pálssyni, fyrsta landlækninum á
íslandi.
Henrick van Deventer (1651-1724).
Deventer var frumkvöðull á sviði fæð-
ingafræðaum aldamótin 1700. Arið 1672
kynntist hann ýmsum hliðum læknis-
fræðinnar þegar hann var aðstoðarmaður
læknis í Holstein í Þýskalandi. Arið 1694
hlaut hann doktorsgráðu og settist að í
Haag. Deventer bar hag og fræðslumál
yfirsetukvenna fyrir brjósti og lagði
áherslu á náttúrulegt fæðingaferli. Hann
var jafnframt kvæntur yfírsetukonu.
Frederik Ruysch (1638-1731)
Frederik Ruysch brautskráðist frá háskól-
anum í Leiden árið 1664. Fjórum árum
síðar var hann skipaður aðalleiðbeinandi
fyrir yfirsetukonur í Amsterdam. Ruysch
var einkum þekktur fyrir teikningar og
varðveislu á sviði líffærafræða.
Herman Boerhaave (1668-1738)
Herman Boerhaave var hollenskur lækn-
ir. Hann naut mikillar virðingar á sviði
læknisfræðinnar og kennslubækur hans
voru notaðar víða um Evrópu unt langt
skeið.
Lorenz Heister (1683-1758)
Lorenz Heister var þýskur prófessor og
var þekktur á sviði líffærafræða. Kennslu-
rit hans voru í notkun allt fram til ársins
1838.
Arfleifð Yfirsetukvennaskólans
Þrátt fyrir að Yfirsetukvennaskólinn hafi
fengið blendnar viðtökur þegar hún kom
út, verður að telja að um merkilegt rit sé
að ræða. Bókin er fyrsta kennslubókin í
ljósmóðurfræði sem kom út á íslensku,
hún á rætur að rekja til fyrstu sænsku
kennslubókarinnar í ljósmóðurfræði frá
árinu 1697, og hefur eflaust mótast af
ýmsum merkum frumkvöðlum í fæð-
ingahjálp og líffærafræði í Evrópu eins
og áður var rakið. Bókin kom út á upp-
hafsárum íslensks heilbrigðiskerfís og
tengist bæði árdögum landlæknisemb-
ættisins og íslenskrar ljósmóðurstéttar
og var eina íslenska kennslubókin í ljós-
móðurfræði í 40 ár, allt fram til ársins
1789. Bókin er jafnframt með fyrstu
prentuðu heilbrigðisritunum á íslensku.
Þá hafa seinni tíma menn talið útgáfu
bókarinnar framfaraskref. Þannig segir
í Árbókum Espólíns frá árinu 1843, að
bókin hafi verið vísir til framfara og
verið landsmönnum hvati til aukinnar
þekkingarleitar.29 Yfirsetukvennaskólinn
er einnig fyrsti vísirinn að formlegri
menntun íslenskrar ljósmæðrastéttar, en
henni hefur verið þakkað fyrir góðan
árangur í baráttunni gegn hinum mikla
ungbamadauða sem ríkti á Islandi á
nítjándu öld.30
Hvar eru konurnar?
Þegar litið er yfir sögu Yfirsetukvenna-
skólans vekur það athygli að þrátt
fyrir að viðfangsefni bókarinnar sé
bundið við reynsluheim kvenna, koma
konur í raun lítið við sögu bókarinn-
ar. Yfirsetukvennaskólinn er mótuð af
menntuðum karlmönnum í embættis-
mannastéttum: læknum, prestum, bisk-
upum og prófessomm, en þó byggð á
fæðingarreynslu kvenna sem Hoorn (og
Buchwald e.t.v. að einhverju leyti) hafa
kynnt sér í lok sautjándu aldar og í upp-
hafi þeirrar átjándu. Þannig á fyrmefnd
madame Allegrain og reynsla hennar
í fátækrahverfum Parísarborgar eflaust
nokkurn hlut að bókinni. Hér ber að
hafa í huga að konur höfðu takmark-
aðan aðgang að opinberri heilbrigð-
isvísindaumræðu; skólum, fræðiritum
og fyrirlestrum, enda gafst þeim ekki
kostur á langtíma skólagöngu á þessum
tíma. I raun komu sjónarmið kvenna
lítið fram á opinberum vettvangi. Það
var ekki fyrr en rúmum hundrað árum
eftir að Yfirsetukvennaskólinn kom út,
að hugmyndin um réttindi kvenna fór
almennt að vakna og sjónarmið þeirra
fóru smátt og smátt að koma fram í
Efnisyfirlit yfirsetukvennaskólans frá 2006
Sá nýi yfirsetukvennaskóli kom út í nóvem-
ber 2006 með styrk frá Ljósmæðrafélagi
Islands. I bókinni er inngangskafli þar sem
saga Yfirsetukvennaskólans er rakin, en þar
er einnig að finna próf í ljósmóðurfræði
frá árinu 1768, kafli um meðferð ungbarna
úr bókinni Spumingakver heilbrigðinnar
sem kom út árið 1800 og skrá yfir helstu
kennslubækur í Ijósmóðurfræði 1749-
1900. í bókinni eru jafnframt myndir
úr ýmsum ritum um fæðingafræði frá
sautjándu og átjándu öld. Bókin kernur
út hjá Söguspekingastifti sem er lítið
bókaforlag sem sérhæfir sig í útgáfum á
bókum og handritum fyrri alda.
Efnisyfirlit:
Inngangur útgefenda:
Um höfund bókarinnar
Halldór Brynjólfsson og prentsmiðjan
á Hólum
Tilurð íslensku útgáfunnar
Hugmyndir Halldórs
Stofnun landlæknisembættisins
Viðtökur bókarinnar
Arfleifð Yfirsetukvennaskólans
Til lesarans
Examination Rannveigar Egilsdóttur 9.
maí 1768.
Um meðferð á ungbörnum
Frágangur texta
Um þessa útgáfu
Sá nýi yfirsetukvennaskóli
Dedicatio
Formáli
Fyrri parturinn. Um náttúrlega fæðing
Um yfirsetukonunnar skyldu, og
hverninn henni eigi háttað að vera
Um kvenfólks skapnað
Um rannsóknina
Um þaug merki, hvar af þekkjast megi,
hvert konan er með barni.
Um (ófall) eður ótímabundinn burð
Um teikn til dauðs fósturs
Um blóðlát
Um hríðirnar og þeirra aðgreining
Um náttúrlega fæðing
Um fæðingu tvíbura
Að binda fyrir naflann
Um barnsfylgjunnar úttekt
Annar parturinn. Um þá ónáttúrlegu
lausn, sem með lærdómskúnst skeður, og
hennar orsakir
Um þröngva skál og hennar útrýmkun
Um móðurlífsins skakka legu, almenni-
lega að tala
Um það, þegar móðurlífið hefur kastað
sér til annarrar hvörrar síðunnar
Um móðurlífsins skakka legu fram yfir
lífbeinið
Um móðurlífsins skakka legu til baksins
Um þá ónáttúrlegu fæðingu, þegar
fæturnir fæðast fyrst
Um þá aðra ónáttúrlega fæðingu þegar
börnin fæðast tvöföld
Um snúninginn almennilega að tala, það
er. þegar strax er leitað eftir fótunum
á barninu, til að hjálpa þvt' þar með í
heiminn
Um nokkra sérlega snúninga, og hvörninn
nýfætt barn skal endurnærast
Um það barn sem höfuðið stendur í
veginum, svo það kemst ei lengra
Um nokkra læknisdóma, sem flýta
fæðingunni
Um tímann
Registur
Examination Rannveigar Egilsdóttur
Spurningakver heilbrigðinnar
Um meðferð á ungbörnum
Helstu kennslubækur í ljósmóðurfræði
1749-1900
Nokkrar orðskýringar
32 Ljósmæðrablaðið |úní 2007