Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 39
smiti frá móður til bams í þróunarlönd-
unum með því að mæla með brjóstagjöl'
eingöngu því það þykir sýnt að ef barn
fer aðra fæðu með brjóstamjólkinni er
um helmingi meiri hætta á smiti en hjá
Þeim sem eru eingöngu á brjósti (Iliff
2005; Coutsoudisa o.fl. 2001).
Getum gert betur
Kevin De Cock læknir hjá Alþjóða heil-
f’rigðismálastofnuninni hvetur lækna í
heiminum til þess að fá fólk í auknum
mæli til þess að fara í HIV próf því níu
af hverjum tíu HIV smituðum vissu ekki
uð þeir væru með sjúkdóminn („Læknar
heims hvattir til að fá sjúklinga í HIV-
°g alnæmispróf2006).
Eg tel að ljósmæður geti gert enn
betur þegar kemur að því að bjóða
konum rannsókn á HIV mótefnum á
uieðgöngu. Ef til vill er gagnlegt að
8eru leiðbeiningar um HIV skimun á
meðgöngu. Reynolds (2004) fjallar um
gerð slíkra leiðbeininga og gagnsemi
Þeirra m.a. um þær upplýsingar sem
8°tt er að gefa þegar verið að bjóða
konum þessa rannsókn og upplýsingar
sem gott er gefa eftir rannsóknina hvort
sem mótefni mælast eða ekki. í rann-
sókn Campbell og Bernhardt (2003)
kom fram að flestar konurnar sem þáðu
ekki rannsókn á HIV mótefnum á með-
göngu (77%) gerðu það vegna þess að
þær töldu sig ekki vera í áhættuhóp.
Kannski væri gagnlegt að spyrja konur
hvers vegna þær vildu ekki þiggja rann-
sóknina, ræða það síðan nánar, án þess
þó að þvinga þær til að þiggja hana.
Samkvæmt upplýsingum frá sóttvarna-
sviði Landlæknisembættisins eru ekki
til tölur um það hve margar verðandi
mæður hafi greinst með HIV á nteð-
göngu hér á landi en vitað er að árið
2004 greindist ein kona með HIV á með-
göngu (Sigurlaug Hauksdóttir, munnleg
heimild, 30. október 2006).
Að lokum
Fagleg vinnubrögð fela í sér að gefa
skjólstæðingum áreiðanlegar upplýs-
ingar þannig að þeir geti tekið upplýsta
ákvörðun. Ljósmæður gegna hér mik-
ilvægu hlutverki í að veita barnshafandi
konum og fjölskyldum þeirra upplýs-
ingar um ávinning af því að þiggJa rann-
sókn á HIV mótefnum á meðgöngu.
Heimildaskrá
Campbell, T. og Bernhardt, S. (2003). Factors
that contribute to women declining ante-
natal HIV testing. Health Care for Women
International, 24, 544-551.
Centers for Disease Control and Prevention
(CDC) (2006). National HIV Testing
Resources. Centers for Disease Control and
Prevention (CDC). Upplýsingar fengnar á
veraldarvefnum 8. janúar 2006: http://www.
hivtest.org/subindex.cfm?FuseAction=FAQ
Coutsoudisa, A., Pillaya, K., Kuhnb, L.,
Spoonera, E., Tsaic, W.Y. og Coovadiaa,
H.M. (2001). Method of feeding and trans-
mission of HlV-1 from others to children by
15 months of age: prospective cohort study
from Durban, South Africa. AIDS, 15 (3),
379-387.
Iliff, P.J., Piwoz, E.G., Tavengwa, N.V.,
Zunguza, C.D., Marinda, E.T., Nathoo, K.J.,
Moulton, L.H. og Ward, B.J. (2005). Early
exclusive breastfeeding reduces the risk of
postnatal HIV-1 transmission and increases
HlV-free survival. AIDS, 19, 699-708.
Jones, L. (2003) Perinatal HIV Transmission
and Birth Optionsfor HIV positive Mothers.
The Positive Aware Network. Upplýsingar
fengnar á veraldarvefnum 14. janúar 2006:
http://www.tpan.com/publications/positive-
ly_aware/sep_oct_03/treatment_series_peri-
natal.html
Landlæknisembættið (2001). Tilkynning sótt-
varnalæknis um skimun verðandi mæðra
fyrir mótefnum gegn rauðum hundum, HIV
og lifrarbólguveiru B (hepatitis B). Dreifibréf
Landlœknisembœttisins (4).
Læknar heims hvattir til að fá sjúklinga í HIV-
og alnæmispróf (2006). Upplýsingar fengnar
áveraldarvefnum 14. ágúst2006: http://www.
mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid= 1218020
McGowan, J.P. og Shah, S.S. (2000).
Prevention of perinatal HIV transmission
during pregnancy. Journal of Antimicrobial
Chemotherapy, 46(5), 657-68.
Miller, N. (2006). HIV and Breastfeeding:
What we do and don’t know in 2005.
MidwiferyToday, (spring).
National Institute for Clinical Excellence
(2003). Antenatal care Routine care for the
healthy pregnant woman. National Institute
for Clinical Excellence.
Reynolds, K. (2004). Development of antena-
tal HIV test guidelines. British Joumal of
Midwifery, 12 (II), 694-697.
Volmink, J. og Mahlati, U. (2006). HIV: mot-
her to cliild transmission. Clinical Evidence
(15), 955-964.
Ziegler, J.B. and Graves, N (2004). The time to
recommend antenatal HIV screening for all
pregnant women has arrived. The Medical
Journal of Australia, 181 (3), 124-125.
Fróðlegt efni um HIV og AIDS
www. aidsmap. com
www.ljosmodir.is
Ljósmæður
Lausar eru til umsóknar stööur Ijósmæöra á kvennadeild
Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. Um erað ræða 100% stöður.
í vaktavinnu. Möguleiki á hlutastarfi eða sumarstarfi.
Hæfniskröfur eru próf frá viðurkenndri stofnun hjúkrunar- og
Ijósmóðurmenntunar. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð
vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Næsti yfirmaður er hjúkrunardeildarstjóri.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Ljósmæðrafélags íslands
eða Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra.
Stöðurnar eru lausar nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunardeild-
arstjóri í síma 4630135 eða netfang inda@fsa.is og Þóra
Akadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar í síma 4630273 og eða
netfang: thora@fsa.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu
sendar til Þóru Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar í síma
4630273 og eða netfang: thora@fsa.is Öllum umsóknum verður
svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Ljósmæðrablaðið júní 2007 39