Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Síða 46

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Síða 46
AFVETTVANGI FÉLAGSMÁLA Störf Fræðslu- nefndar LMFÍ og endurmenntunar- veturinn 2006-2007 Ný nefnd tók til starfa eftir aðalfund LMFÍ 5. maí 2006. I nefndinni eru Guðrún Sigríður Olafsdóttir formaður, Dagný Ólafsdóttir, Helga Bjarnadóttir, Stefanía Guðmundsdóttir og Steina Þórey Ragnarsdóttir. Arið hefur verið nokkuð viðburðaríkt, haldnar hafa verið fjórar hringborðsumræður og tvö námskeið. Fyrstu hringborðsumræður vetrarins voru haldnar 19. september og mættu 20 ljósmæður. Umræðuefnið kvöldsins var: „Við sjálfar. Hvað getum við gert til að styrkja okkur sjálfar og styðja hver aðra?“ Margt var rætt á hring- borðsumræðunum sem við getum nýtt okkur til að efla okkur sjálfar. Til dæmis var minnt á styrktarsjóð BHM þar sem félagsmenn geta sótt um ýmsa styrki, bæði til andlegrar og líkamlegrar ræktar. Rætt var um mikilvægi þess að tala við fólk en ekki um fólk til að tryggja betri starfsanda og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Hollsystur voru nefndar sem mikill styrkur og einnig samstarfsfélagar. Sú hugmynd kom fram að gaman getur verið að safna hlutum í „minjaskrín“ þ.e. að safna saman kort- um eða gjöfum frá foreldrum sem við Elví nýtur leiðsagnar Denise Tiran við fótanudd með ilmkjarnaolíum. höfum sinnt. Minjaskrín getur minnt okkur á af hverju við erum í þessari vinnu og stappað í okkur stálinu, ekki síst ef við höfum lent í erfiðum málum. Næstu hringborðsumræður voru 21. nóvember og mættu 27 ljósmæð- ur að þessu sinni. Umræðuefnið var námið okkar, fyrr og nú. Við fengum til okkar góða gesti, þau Braga Þorgrím Ólafsson sagnfræðing og dr. Ólöfu Astu Ólafsdóttur lektor í ljósmóðurfræði. Bragi kynnti fyrir okkur bókina, Sá nýi yfirsetukvennaskóli eður stutt undirvísun um yfirsetukvennakúnstina, en bókin var fyrsta kennslubók í ljósmóðurfræði sem var gefin út á íslensku. Bragi skrifaði inngang og skýringar fyrir endurútgáfu bókarinnar sem kom út í nóvember árið 2006 og bjó hana til prentunar. Hann rakti sögu bókarinnar og viðtökur hennar þegar hún var fyrst gefin út, sýndi ýmsar myndir og stiklaði á stóru um innihald hennar. Dr. Ólöf Asta Ólafsdóttir tók síðan við og fjallaði um þróun ljós- mæðramenntunar á íslandi. í kjölfarið spunnust umræður um ljósmæðramennt- un fyrr og nú og einnig um mögulega þróun ljósmæðramenntunar. Þriðju hringborðsumræðurnar voru haldnar þann 15. febrúar og kom Asdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir til að fræða ljósmæður um nám sitt, hvaða skjólstæðingar okkar leituðu helst til hennar og með hvaða vandamál. Einungis mættu þrjár ljósmæður á þann fund og er það miður, þar sem hann var mjög áhugaverður. Þeir sem leita helst til Asdísar eru konur sem gengur illa að verða bamshafandi, konur með ógleði á meðgöngu og foreldrar með óvær ungabörn. Hún fjallaði um hvaða jurtir eru mest notaðar og hvað ber að varast þegar þungaðar konur eru meðhöndl- aðar. Síðustu hringborðsumræður vetr- arins voru haldnar 20. mars. Rætt var um fyrirburafæðingar og var yfirskrift- in: „Hvað erum við að gera og hvað getum við gert betur?“ Voru 18 ljós- mæður mættar á þennan fund og var þar á meðal stór hópur ljósmæðranema sem er ánægjulegt. Við fengum til okkar konu sem hafði fætt tvíbura fyrir tímann og sagði hún okkur frá sinni reynslu, bæði af Kvennasviðinu og af Vökudeildinni. Helga Bjamadóttir ljósmóðir sagði frá annarri konu sem hafði fætt fyrir tímann og var áhugavert að heyra hversu ólíkar sögur þeirra voru. Talsverðar umræður spunnust í kringum þessar frásagnir og 46 Ljósmæðrablaðið júm' 2007

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.