Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Side 10

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Side 10
voru útilokaðar sem greinst höfðu með íleiri sjúkdómsgreiningar en grindarlos sem krefst sérhæfðrar þjónustu svo sem við of háum blóðþrýstingi, sykursýki, meðgöngueitrun o.fl. Þátttakendumir skrifuðu undir upplýst samþykki eftir að hafa lesið kynningarbréf um rannsókn- ina sem þeir fengu í hendur en þar var þeim meðal annars tilkynnt að viðtölin yrðu hljóðrituð. Rannsóknarverkefnið bar heitið „Þjónusta við konur með grindarverki á meðgöngu”en það var samþykkt af Vísindasiðanefnd (VSNb 2006120008/03-7) og tilkynnt til Per- sónuverndar. Ekki var greitt sérstaklega fyrir þátttöku í rannsókninni. Samtals tóku átta konur þátt í rýnihópunum. Gagnasöfnun Sami viðtalsrammi var hafður til hlið- sjónar við báðar viðtalsaðferðirnar til að ná fram upplifun og áliti á þjónustunni frá sjónarhorni fagaðila annars vegar og þátttakenda í rýnihópunum hins vegar. Til að leita svara við rannsóknarspurn- ingunni var kannað hvernig viðmæl- endum þætti greiningu, fræðslu, ráðgjöf og meðferð sinnt hjá þeim konum sem kvarta um grindarverki á meðgöngu. Einnig voru þeir spurðir til hvaða aðila þeir teldu að konurnar leituðu eftir aðstoð og hvort þeir héldu að þeiin gagnaðist sú aðstoð sem þeir fengju, hvort þeir héldu að kostnaður hefði áhrif á það til hvaða þjónustuaðila væri leitað og hvort þeir teldu grindarverki vera hugsanlega vanmetna almennt og í þjónustunni við þessar konur. Athugað var hvernig þeir upplifðu tengslin vera milli þeirra fag- aðila sem sinna þessu viðfangsefni og hvað þeir álitu að betur mætti fara í þjónustu við þennan sjúklingahóp. Að lokum var gerð samantekt á viðtalinu og spurt hvað læknar, ljósmæður og sjúkraþjálfarar gætu gert betur varðandi mj aðmagrindarverki. Urvinnsla gagna og gagnagreining Við úrvinnslu gagna voru viðtölin vél- rituð orðrétt upp eftir hljóðupptökunni. Notast var við aðferðir grundaðra kenn- inga þar sem greining fór fram samhliða og í lok gagnasöfnunar. Leitað var eftir sameiginlegum efnisþáttum (þemu) sem greind voru í meginþemu og undirþemu sem oftast komu upp hjá viðmælend- unum vegna viðtalsrammans sem var lagður fyrir þátttakendur (Esterberg, 2002). Viðtölin voru túlkuð til að fá heildarsýn á textann en í niðurstöðunum voru efnisþættirnir studdir með því að tilgreind voru svör viðmælandanna með beinum og óbeinum tilvitnunum í viðtöl þeirra til að birta nákvæmari frásögn af viðhorfum og reynslu viðkomandi þátt- takenda. Niðurstöður Frœðsla, greining og ráðgjöf Allir viðmælendur voru sammála um mikilvægi fræðslu snemma á meðgöngu og að bregðast þurfi fljótt við ef kvart- að er um grindarverki. Þeir töldu að gott væri að blanda saman hópfræðslu og einstaklingsfræðslu þar sem hóp- fræðslan kæmi aldrei í staðinn fyrir einstaklingsfræðsluna. Sjúkraþjálfarinn sem sér bæði um einstaklingsfræðslu á stofu og hópfræðslu í vatnsþjálfun taldi einstaklingsfræðslu skila sér betur þar sem hann væri þá búinn að heyra sjúkrasögu og skoða viðkomandi konu. Sjúkraþjálfarinn sagðist jafnframt fínna þörf kvennanna til að ná tali af honum að loknum kennslutíma í vatnsþjálfun. I rýnihópunum kom í ljós að einungis ein kona hafði fengið vitneskju um hóp- fræðslu. Konurnar töldu að þetta hefði með kynninguna að gera í mæðravernd- inni. Einn viðmælendanna hélt fram að henni hefði verið sagt frá fræðslunni en „hún hefði ekki verið gerð neitt aðlað- andi heldur sagt að það væri svo sem allt í lagi að mæta.” Skiptar skoðanir voru meðal fagaðila um hvemig standa ætti að greiningu og ráðgjöf sjúkraþjálfara í þjónustuferl- inu. Viðmælendur voru ekki á sama máli um hvort sérhæfður sjúkraþjálfari ætti að vera sérstakur greiningaraðili á heilsugæslustöðvum eða hjá Miðstöð mæðraverndar eða hvort viðkomandi sjúkraþjálfarar sem væru jafnframt meðferðaraðilar á stofu ættu að sjá um greiningu og ráðgjöf. I einstaklings- viðtölunum komu fram vangaveltur um tvöfalda skoðun, faglegt öryggi og trygg- ingu gegn ofmeðhöndlun og í hópunum spunnust umræður um sama efni. Flestar konurnar vildu fá skoðun og greiningu hjá væntanlegum meðferðaraðila. Þeim fannst ekki skipta máli hvort sjúkra- þjálfarinn væri staðsettur á viðkomandi heilsugæslustöð eða á sjúkraþjálfunar- stofu. Konurnar í rýnihópunum voru allar sammála um að læknar ættu að taka meiri þátt í mæðraverndinni. Sem dæmi sagði einn viðmælendanna: „Mér finnst eðlilegt að læknarnir komi inn og sjái hvort allt sé eðlilegt þó svo að í 90% tilfella sé ábyggilega allt í lagi.“ Meðferð Flestir viðmælendanna bæði í einstakl- ingsviðtölunum og í rýnihópunum töldu fræðslu ljósmæðra og/eða sjúkraþjálfara nægja ásamt vatnsþjálfun við vægum einkennum grindarverkja en nauðsyn- legt að blanda saman sjúkraþjálfunar- meðferð og vatnsþjálfun ef vandamálið hindraði athafnir daglegs lífs. Almenn ánægja var meðal viðmælenda með vatnsþjálfunina við vægari einkennum grindarverkja. Skiptar skoðanir voru hins vegar um gagnsemi sjúkraþjálf- unar. Fjórum fagaðilanna og tveimur kvennanna í rýnihópunum fannst sjúkra- þjálfun gagnast mismunandi. Önnur ljósmæðranna sagðist hafa þá reynslu að ef konumar lentu eingöngu í nuddi væru þær ekki ánægðar. Ein kvenn- anna í rýnihópunum var hins vegar mjög ánægð með sinn sjúkraþjálfara sem hafði eingöngu gefið nudd með góðum árangri. Annar læknanna sagði stöðugleikaþjálfun með þjálfun djúpu grunnvöðvanna gefa oft besta árangur en sjúkraþjálfun væri oft viðhaldsmeð- ferð á meðgöngunni en ekki meðferð til lækninga. Einn sjúkraþjálfaranna sagði það stundum vera tilganginn og það mesta sem hægt væri að ná fram en í öðrum tilfellum „væri hægt að koma í veg fyrir veikindafrí með því að hjálpa til við að konan geti farið aftur til vinnu eða í það minnsta að hún geti átt betrí daga fram að fæðingu." Sjúkraþjálfarinn sagði meðferðina gagnast í flestum til- fellum, sumum nægði að fá fræðslu og ráðleggingar en í erfiðari tilfellum væri eingöngu verið að halda í horfmu. Af þeim átta viðmælendum sem tóku þátt í rýnihópunum hafði ein aldrei kynnst sjúkraþjálfun, tvær voru ekki nógu ánægðar með sinn sjúkraþjálfara sér- staklega eftir að þær heyrðu hinar kon- umar segja frá sinni reynslu en fimm kvennanna voru mjög ánægðar. Tvær þeirra sem vom bæði í sjúkraþjálfun og vatnsleikfimi sögðu sjúkraþjálfarana hafa samþætt meðferðina sem hefði virkað vel. Sjúkraþjálfarinn sem er jafn- framt leiðbeinandi í meðgöngusundinu var sammála þessu og sagði sjúkra- þjálfarana geta einbeitt sér meira að verkjameðferð og liðlosun ef konurnar fengju vatnsþjálfun samhliða einstakl- ingsmeðferðinni. Öllum konunum að undanskilinni einni konu hafði verið bent á meðgöngusundið í mæðravernd- inni en flestar nýttu sér það. Konurnai' sem nýttu sér meðgöngusundið voru allar mjög ánægðar að undanskilinni einni sem hafði sótt vatnsleikfimi sern var ekki stjórnað af sjúkraþjálfara. Hún þurfti að hætta þar sem hreyfingarn- 10 Liósmæðrablaðið desember 2007

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.