Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 31

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Qupperneq 31
>nn í orlofssjóð BHM og seldu sum- arbústað sinn í ÚthÍíð. OBHM á 43 orlofshúseignir, víða um land og leigir auk þess eignir af öðrurn aðilum. Aðal orlofssvæði OBHM er í Brekkuskógi, þar sem allir bústaðir eru búnir heitum P°tti, þ.á.m. stór, nýr sumarbústaður sem hýsir a.m.k 10 manns í rúmi. OBHM hefur einnig aðgang að tveimur íbúð- um í Kaupmannahöfn og leigir fleiri íbúðir erlendis yfir sumartímann. Þrátt fyrir stuttan tíma í nýjum orlofssjóði, fengu sex ljósmæður úthlutað sumarbú- stað á háanna tíma síðast liðið sumar. Aðrar 20 fengu úthlutað orlofsstyrk frá Ljósmæðrafélaginu og verður það aftur gert næsta sumar. Þó svo að ákvörðunin um að selja sumarbústaðinn hafi verið ertið, hefur hún orðið til þess að Ijósmæður eiga nú sitt eigið húsnæði skuldlaust og hafa auk þess nokkra fjármuni til að styrkja starfsemi félagins. Mvað stendur Ljósmæðrafélagið fyrir? Ljósmæðrafélag íslands stendur fyrir langa sögu hagsmunabaráttu fyrir Ijós- mæðrastéttinni og skjólstæðingum hennar. Ljósmæðrafélagið stendur einn- *g fyrir öflugt félagsstaif með kraft- m]klum og áhugasamum ljósmæðrum 1 nefndum og stjórn. Við nýtum okkur smæð félagsins í stuttum boðleiðum 'nnan þess og virkjum þekkingu og fíerni félagsmanna til að vinna að hags- munamálum allra ljósmæðra. Innan félagsins er mikil vinna lögð 1 fagleg málefni stéttarinnar. Fræðslu- °g endurmenntunamefnd stendur fyrir gmskumiklu starfi sem skilar stéttinni ynisum nýjungum í ljósmóðurstörfin °g ber þar fyrst að nefna námskeið 1 nálastungu sem meirihluti ljósmæðra te|Ur nú sjálfsagðan hluta af daglegum störfum sínum. Aðrar nýjungar sem má nefna eru námskeið í notkun ilmkjarna- ,'a °g nú síðast námskeið í sjálfsdá- e'ðslutækni (hypnobirth). Fræðslu- og endurmenntunamefnd LMFÍ stendur £lnn'g fyrir mánaðarlegum hringborðs- jrmræðum sem er kjörin vettvangur fyrir Josmæður að ræða fagmál sín með góðu mnleggj fr;j sérfróðum ljósmæðrum eða ‘u úigfólki. í gegnum tíðina hefur ne ndin einnig staðið fyrir ráðstefnum. nnur fagvinna sem má nefna eru ^menntunamámskeið fyrir ljósmæður fVr'e*ma^°nUStU leiðbeininga I n' heimaþjónustu í samvinnu við andlæknisembættið. ^'gáfumál félagsins er andlit ljós- mæðra út á við. Upplýsingavefurinn ljosmodir.is er með vinsælustu vefsvæð- um landsins og ekki að ástæðulausu því ómæld vinna er lögð í að svara fyr- irspurnumskjólstæðinga. Félagsvefsíðan ljosmodir.is/felag, er nauðsynlegt sam- skiptatæki ljósmæðra, bæði sem upplýs- ingamiðill á ytra neti og sem samskipta- form á innra neti. Ljósmæðrafélagið gefur einnig út Ljósmæðrablaðið sem mikill metnaður er lagður í. Arlega er Fylgjan, handbók ljósmæðra gefin út af félaginu. Fylgjan er handhæg og ótæm- andi upplýsingauppspretta í daglegum störfum ljósmæðra. Ljósmæðrafélag íslands er í virku samstarfi með Norðurlandasamtökum ljósmæðra (NJF) og Alþjóðasamtökum ljósmæðra (ICM). Ljósmæðrafélag íslands er eftir sem áður hagsmunafélag ljósmæðra og ein- beitir sér að hagsbótum fyrir ljósmæð- ur og barnshafandi fjölskyldur. Félagið vinnur að því að efla ljósmæðrastéttina sem sjálfstæða stétt og sinnir faglegum og fagpólitískum málefnum stéttarinn- ar. Hver er stefna Ljósmæðrafélagsins? Stefna Ljósmæðrafélagsins í næstu kjarasamningum er að leiðrétta launa- röðun ljósmæðra til jafns við stéttir með sambærilega menntun og ábyrgð. Vinna við uppbyggingu trúnaðar- mannakerfisins er nú í fullum gangi og stefnir félagið að öflugu trúnaðar- mannakeifi á landsvísu, þar sem allar ljósmæður geta fengið stuðning af trún- aðarmanni sínum. Samkvæmt 2. grein laga og reglna Ljósmæðrafélagsins, eru markmið félagsins: a) Að efla ljósmæðrastéttina og jafn- framt áhuga íslenskra ljósmæðra fyrir öllu er að starfí þeirra lýtur. b) Að stuðla að aukinni menntun og endurmenntun ljósmæðra. c) Að gæta hagsmuna og réttinda ljós- mæðra varðandi starf þeirra og kjör. d) Að annast samninga um kaup og kjör ljósmæðra sem rétt hafa til atkvæða- greiðslu í kjarasamningi félagsins. e) Að hvetja ljósmæður til þess að við- halda hæfni sinni og auka þekkingu sína. f) Að gæta virðingar ljósmæðrastétt- arinnar. g) Að glæða félagslegan áhuga og sam- vinnu Ijósmæðra bæði innan lands og utan. í NJF = Nordistk jordmoder- forbund og í ICM = Intemational Confederation of Midwives, svo og í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. h) Að stuðla að bættri þjónustu í barn- eiganarferli kvenna. Hvað fæ ég sem kjarafélagi í Ljósmæðrafélaginu? Ég fæ aðgang að lögfræði- og hagfræði- þjónustu hjá BHM. Eg fæ aðstoð við túlkun og gerð kjara- samninga. Ég fæ öflugan starfsmenntunarsjóð (STRIB). Eg fæ öflugan vísindasjóð sem einungis styrkir rannsókna- og þróunarvinnu ljósmæðra. Ég fæ fjölmarga orlofskosti bæði hér- lendis og erlendis. Ég fæ trúnaðarmann sem er ljósmóð- ir og þekkir vel sérstöðu ljósmóð- urstarfa. Ég fæ greiðan aðgang að fólki innan félagsins vegna stuttra boðleiða. Ég fæ greiða leið til áhrifa í félagsstörf- um ef mér sýnist svo. Ég fæ fullbúnar Ijósmæðratöskur að láni hjá LMFÍ fyrir heimafæðingar. Ég styrki starfsemi félags sem einbeitir sér að faglegum og fagpólitískum málefnum ljósmæðra. Það ætti því ekki að vera tilviljanakennt hvaða kjarafélag maður velur. Ég hvet allar ljósmæður til að meta kjarafélags- aðild sína og ástæðumar fyrir vali henn- ar. Tilgangur Ljósmæðrafélags íslands er að efla Ijósmæðrastéttina og gæta hagsmuna og réttinda ljósmæðra varð- andi starf þeirra og kjör. Við þiggjum með þökkum ábendingar um leiðir til betrumbóta til að gera Ljósmæðrafélgið fýsilegan kost fyrir allar ljósmæður. Fyrir hönd stjómar Ljósmæðrafélags íslands Guðlaug Einarsdóttir formaður www.ljosmodir.is Ljósmæðrablaðið desember 2007 3 1

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.