Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 49
MFS-einingin - Sögulegt yfirlit
Inngangur
Þegar að við hófum nám í ljósmóðurfræði
við Háskóla íslands var starfsemi MFS
einingarinnar í miklum blónra. A ineðan
námi okkar stóð var ákveðið að leggja
MFS eininguna niður og tilheyrum við
því síðasta hollinu sem að fékk að kynn-
ast starfsemi MFS einingarinnar. I ljósi
þess ákváðum við að gera lokaverkefni
sem að skoðaði 12 ára tímabil MFS ein-
ingarinnar sem rekin var á kvennasviði
LSH á árunum 1994 -2006. Einn hluti
verkefnisins fjallar um starfssemi MFS
einingarinnar í sögulegu samhengi og er
hann birtur hér.
Sögulegt yfirlit
MFS einingarinnar
MFS einingin var stofnuð sem tilrauna-
verkefni innan kvennasviðs Land-
spítalans, hófst undirbúningur við
eininguna árið 1993 og stóð í tæpt ár
áður en framkvæmd á henni hófst. Allar
konur sem voru heilbrigðar á meðgöng-
unni áttu þess kost að nýta sér þessa
þjónustu án sérstaks aukakostnaðar og
var ráðgert að MFS einingin gæti sinnt
200 konum á ári („Fæða í hjónarúmi eða
grjónastól”, 1995).
Undirbúningsvinna fólst meðal
annars í því að lesa greinar og rann-
sóknir um samfellda þjónustu. Fundir
voru haldnir vikulega þar sem sett voru
markmið hvað varðaði þjónustuna, regl-
Ur og vinnuskipulag ákveðið (Ásthildur
Gestsdóttir, 2004).
Aðilar sem að komu að undirbún-
■ngsvinnunni ásamt þeim sex ljósmæðr-
um sem fyrstar hófu störf við þjónustuna
voru þáverandi hjúkrunarframkvæmd-
urstjóri Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Guðrún
^jörg Sigurbjömsdóttir yfirljósmóðir og
Hildur Sigurðardóttir, lektor í hjúkrunar-
fræði við Háskóla íslands en hún sá
um faglega ráðgjöf. Áætlað var að meta
Þjónustuna markvisst en af því varð
ekki. Skýrsla sem ber heitið Þróunar-
°g rannsóknarverkefni Kvennadeildar:
kreytt vinnufyrirkomulag ljósmæðra:
^ópþjónusta, var lögð fram í janúar
'994 (Hildur Sigurðardóttir o.fl. 1994).
Starfsemi MFS hófst í júní það sama ár.
Arndís Mogensen
Ijósmóðir; fæðingardeild HSu
Hafdís Ólafsdóttir
Ijósmóðir í barneignarleyfi
Kveikjan að tilurð MFS var sú að
á níunda áratuginum hafði víðsvegar
í nágrannalöndunum færst í aukanna
að bjóða upp nýtt þjónustuform þar
sem boðið var upp á fleiri valkosti og
samfellu í þjónustunni. Þetta þjónustu-
form byggði fyrst og fremst á hóp-
þjónustu þar sem ákveðinn afmarkaður
hópur Ijósmæðra og/eða lækna annaðist
ákveðinn skjólstæðingahóp og fylgdi
þeint eftir í gegnum allt ferlið þ.e. frá
upphafi meðgöngu, í fæðingu og í
sængurlegu. Áhersla var lögð á þjón-
ustu í heimilislegu umhverfi sem væri
persónulegt með sem minnstum lækn-
isfræðilegum og tæknilegum inngrip-
um og gerði skjólstæðingum kleift að
taka virkan þátt í ákvörðununt varðandi
eigin umönnun og hafa ákveðna stjórn
(Hildur Sigurðardóttir o.fl., 1994).
MFS einingin var byggð á þeirri
hugmyndafræði að meðganga og fæð-
ing væri eðlilegur hlutur en ekki lækn-
isfræðilegur. Til þess að geta notfært
sér þjónustuna var skilyrði að konurnar
væru hraustar og meðgangan eðlileg.
Meginhugmyndin var einnig að mynda
gagnkvæmt traust milli ljósmóðurinnar
og hinna verðandi foreldra. Á þann hátt
var vonað að hræðslan við hið óþekkta
sem er höfuðóvinurinn í fæðingu yrði
sem minnst þegar konan kom að fæða
(„Eðlilegar fæðingar í heimilislegu
umhverfi”, 1994).
Helstu markmið MFS einingarinnar
voru:
• Að verðandi foreldrar fengju sam-
fellda þjónustu sömu ljósmæðra í
meðgöngu, fæðingu og sængurlegu.
• Að gera verðandi foreldrum fært að
taka aukna ábyrgð varðandi með-
gönguna, fæðinguna og sængurleg-
una.
• Að forðast óþarfa inngrip í eðlilegt
ferli og styðja verðandi foreldra í
ákvarðanatöku um þætti er varða þá
sjálfa.
• Að gera fjölskyldunni fært að sam-
einast sem fyrst eftir fæðinguna og
styrkja þannig tengslamyndun.
(MFS einingin. 1994).
Eins og áður sagði hófst starfsemi
MFS einingarinnar í júní árið 1994
þegar fyrstu konurnar komu í mæðra-
vernd. Til að kynna þjónustuna fyrir
almenningi var farin sú leið að senda
auglýsingabækling á heilsugæslustöðv-
amar og í apótek. Fljótlega kom þó í
Ijós að Landspítalanum var ekki heimilt
að auglýsa þá þjónustu sem hann býður
upp á og voru því auglýsingabækling-
arnir fjarlægðir. Þjónustan spurðist þrátt
fyrir þetta fljótt út og varð strax mjög
vinsæl (Elín Hjartadóttir munnleg heim-
ild, 30. apríl 2007).
Fyrstu fæðingarnar í kerfinu voru
áætlaðar í nóvember það sama ár.
Þann 11.11.1994 fæddist fyrsta barn-
ið í MFS einingunni og tók Sigurborg
Kristinsdóttir á móti því (Sigurborg
Kristinsdóttir munnleg heimild, 23
apríl, 2007).
Konurnar sem völdu þessa þjónustu
kynntust öllum sex ljósmæðrunum.
Ljósmæðrablaðið desember 20Q7 49