Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Page 18

Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Page 18
Davies sú af okkur hér sem mest hefur kennt þessa aðferð, sinnir konunum í fæðingu og les gjaman dáleiðslustefin sem konumar hafa notað á meðgöng- unni og hlusta á þegar þær em í fæð- ingu. Ennfremur hjálpar hún konunum með því að nota aðeins jákvætt orðalag og minnast aldrei á verki, heldur nota orðið bylgja (surge) í stað fæðing- arverkja (pain) sem annars er algengast að starfsfólk sjúkrahúsanna noti. Fæðingai'stuðningui' Þegar við erum ráðnar til að fylgja kon- unum í gegnum fæðinguna, er okkar fyrsta hlutverk að vera á vakt, hjálpa þeim að þekkja fyrstu einkenni fæð- ingarinnar og halda ró sinni til að vera heima eins lengi og hægt og öruggt er, - og aðstoða makann til þess að sinna því sem þarf án þess að hafa of miklar áhyggjur. Um leið og ljóst er að fæðingin er komin í virkan gang, reynum við að fara inn á heimilið og vera sá stuðningur sem þörf er á til að halda áfram að vera heima. I þessu felst að hlusta reglulega á hjartslátt barns- ins, meta gang fæðingarinnar og svo að sjálfsögðu að aðstoða konurnar við að koma sér notalega fyrir og finna fyrir öryggi og sjálfstrausti til þess að takast á við fæðinguna alla. Stundum gerum við afskaplega lítið og erum baia úti í homi með bók á milli þess sem við sinnum ofantöldu, en stundum erum við á fullu við að nudda, hvetja, anda og gefa að borða og allt þar á milli. Ekki ólíkt því að vinna á venjulegri fæðing- ardeild, nema að það er aðeins lengra á milli veggja herbergjanna og andrúms- loftið heima er ákaflega afslappað og meira undir stjórn foreldranna sjálfra, ef svo má að orði komast. Við þurfum að gera ráðstafanir til að konurnar fái að fæða á þeim stað sem þær gera ráð fyrir, - hringja á undan og tala við fæðingarlæknana eða fæðing- ardeildirnar. Stundum er þetta erfitt því í augnablikinu em öll sjúkrahús yfirfull og bóka þarf pláss með 9 mánaða fyr- irvara á þau einkareknu. Ríkissjúkrahús taka við öllum sem þurfa en helmingur þeirra sem við sinnum vill fæða á einka- sjúkrahúsum, svo það getur verið kúnst að koma þeim að. Hinar ýmsu vænt- ingar mismunandi lækna og einnig þær verklagsreglur sem hver og ein deild hefur þarf að samhæfa, fyrst og fremst við væntingar kvennanna til eigin fæð- inga. Segja má að við séum einskonar sleipiefni sem lætur þetta allt ganga eins og smurð vél. Það er þó ekki alveg rétt lýsing því okkar fyrsta skylda er alltaf gagnvart konunum okkar og stundum virkar hreinlega ekki neitt af því sem veslings fæðandi konan vill! Það er til að mynda ákaflega há tíðni inn- gripa í fæðinga hér í borg og marg- ar kvennanna hafa enga hugmynd um þetta áður en þær fara í fæðinguna, - eða öllu heldur að þeirra læknir hafi svo háa tíðni inngripa sem raun ber vitni. Því eru ansi margar „óvæntar“ uppákom- ur. Of stór börn, ekki skorðuð börn, barn í OP (occiput posterior) stöðu, lítil börn, lítið legvatn, strengur um háls og svo má lengi telja upp ástæður þess að konum er ráðlagt að fara í keis- araskurði. Yfirleitt kemur þetta upp á síðustu stundu og getur verið erfitt að meta hvort um raunverulegt vandamál er að ræða eða hagsmunaárekstra t.d. til að flýta fæðingunni eða fá sérstaklega greitt fyrir að gera keisara. Núna und- anfarna mánuði er algengasta orsök inn- gripa, svo sem keisaraskurða og fram- köllun á fæðingu (oft við 39 - 40 vikur) þessi yfirfullu sjúkrahús, en konum er sagt að bóki þær ekki í öðm hvoru kerf- inu sé ekki ömggt að þeim sé tryggt rúm þegar og ef þær byrji sjálfar í fæðingu á óheppilegum degi. Svo okkar hlutverk þegar konurnar fara af stað, er að hjálpa þeim að vinna úr öllum upplýsingunum heima og reyna síðan að tryggja þeim sem besta meðferð á réttum stað, þegar kemur að því að fæða barnið. Ef um einkasjúkrahús er að ræða, förum við oftast með konunum og höld- um áfram að styðja þær þar, allt þar til þær em búnar að gefa brjóst í fyrsta sinn. Þær dvelja svo í þrjá daga og við sinnum heimaþjónustu frá fjórða degi. I fæðingunni eru ljósmæður auk okkar, svo við getum algjörlega sinnt því að styðja konurnar, en þurfum ekki að sinna neinni skriffinsku eða annarri rútínuvinnu á deildinni. Sem betur fer gengur samstarfið frábærlega og allir aðilar vita vel hvar þeir eiga heima innan rammans. I lok fæðingarinnar kemur fæðingarlæknir og tekur á móti. Þegar um ríkisreknar fæðingardeildir er að ræða emm við með konunum heima eins lengi og kostur er, ofast þar til þær eru með 7-8 í útvíkkun. Við keyrum þær á spítalann og notum tím- ann heima til að hjálpa þeim og mökum þeirra til að undirbúa sig fyrir það sem síðan koma skal. Heilmiklar breytingar hafa orðið á aðstöðu fæðandi kvenna á ríkisspítölunum, því deildimar leyfa núna mun frjálslegri hegðun (ef svo má að orði komast) en áður, eftir að fjöldi kvenna fór að biðja um ákveðna losun á reglum sem áður voru mjög svo strangt í gildi á deildunum. Þetta eru fyrst og fremst hlutir eins og að mega ganga um og hreyfa sig á fyrsta stigi fæðingarinnar, borða létt, pissa í klósett í stað bekkens, nota bolta til að sitja á, fæða í mismunandi stellingum, vera Frá ríkisspítalanum. Frá Matilda spítalanum, þar sem er einkarekin fœðingadeild. 18 Ljósmæðrablaðið desember 2007

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.