Ljósmæðrablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 30
Ljósmæðrafélagið
- félag allra Ijósmæðra
Við lausa kjarasamninga, geta laun-
þegar skipt um kjarafélag. I þessari
samantekt mun ég fjalla um það
sem Ljósmœðrafélag Islands hefur
upp á að bjóða og hvers vegna það
skiptir máli að Ijósmœður séu í einu
félagi.
Eins og kunnugt er, verða kjarasamn-
ingar lausir þann 30. aprfl n.k. Það
er ekki einungis tilhlökkunarefni vegna
nýs kjarasamnings heldur einnig vegna
eins konar uppskeruhátíðar stéttarfélag-
anna. Félögin uppskera því ekki einungis
eftir undirbúningsvinnu kjarasamninga,
heldur getur uppskeran orðið fjölgun
á kjarafélögum ef starfsemi félagsins
hefur verið öflug og traustvekjandi.
Sumum finnst það ekki skipta höf-
uðmáli hvaða kjarafélagi þeir tilheyra,
enda verður fólk sjaldnast vart við það
dags daglega. Félögin skiptir það aftur
á móti miklu máli hversu marga félags-
menn það hefur. Fleiri félagsmenn þýðir
meiri innkoma til að vinna að málefn-
um stéttarinnar sem skilar sér í meiri
vinnu innan félagsins og þar af leiðandi
sterkari stétt. Og Ljósmæðrafélagið
munar um hverja ljósmóður. Það eru
ekki einungis félagsgjöld hverrar ljós-
móður sem skipta miklu fyrir starfsemi
félagsins, heldur skiptir það höfuðmáli
að ljósmæður séu í einu kjarafélagi.
Ljósmæðrafélagið er hagsmunafélag
ljósmæðra og vill hróður ljósmæðra-
stéttarinnar sem mestan. Með því að
vera í einu félagi, er slagkraftur ljós-
mæðra mun meiri í kjaramálum.
Hvað er að vera
kjarafélagi/fagfélagi?
Stéttarfélög geta ýmisst verið kjara-
félög eða fagfélög og mörg félög eru
hvoru tveggja eins og Ljósmæðrafélag
íslands. Fagfélög eru skipuð einstakl-
ingum einnar fagstéttar þar sem mennt-
un félagsmanna liggur til grundvallar
störfum þeirra og veitir þeim tiltekin
starfsréttindi. Kjarafélög starfa að hags-
munamálum sem varða kjör og réttindi
félagsmanna.
Samkvæmt lögum um kjarasamninga
opinberra starfsmanna nr. 94/1986, gera
stéttarfélög kjarasamninga fyrir starfs-
menn ríkisins. Starfsmönnum ríkisins
er því skylt að vera í stéttarfélagi sem
semur fyrir þá um kaup og kjör.
Sem kjarafélagi í Ljósmæðrafélagi
íslands greiðir félagsmaður prósentu af
launum sínum til félagsins og þeirra
sjóða sem félagið hefur aðild að. Félagið
semur um kaup og kjör fyrir viðkom-
andi, auk þess að sinna faglegum og
fagpólitískum málefnum stéttarinnar.
Kjarafélagsmenn hafa kosningarétt og
kjörgengi í allar nefndir og stjórn félags-
ins og hefur aðgang að öllum sjóðum
innan þess.
Sem fagfélagi í Ljósmæðrafélagi
íslands greiðir félagsmaður fasta árlega
upphæð til félagsins fyrir fagaðild að
félaginu en annað stéttarfélag sem hann
er kjarafélagi að, semur um kaup og
kjör fyrir hann.
Fagfélagsmenn hafa kjörgengi í
allar nefndir félagsins nema kjaranefnd
og hafa málfrelsi og tillögurétt innan
félagsins.
Þeir sjóðir sem Ljósmæðrafélagið
hefur aðgang að eru:
Rannsóknarsjóður ljósmæðra
Rannsóknasjóður ljósmæðra var stofn-
aður árið 1988 af ljósmæðrum útskrif-
uðum haustið 1978 í tilefni 10 ára
útskriftarafmælis. Tilgangur sjóðsins er
að styrkja ljósmæður til rannsókna og
þróunarverkefna í ljósmóðurfræðum.
Fagfélagar jafnt sem kjarafélagar LMFÍ
geta sótt um styrk í sjóðinn.
Minningasjóður ljósmæðra
Minningasjóður var stofnaður árið 1967
og var stofnfé sjóðsins minningargjöf
um Ingibjörgu Jónsdóttur ljósmóður.
Tilgangur sjóðsins er að styðja ljós-
mæður til framhaldsnáms og einnig má
veita fé til hverra þeirra líknarmála sem
ljósmæðrastéttin hefur hug á að styðja.
Fagfélagar jafnt sem kjarafélagar LMFI
geta sótt um styrk í sjóðinn.
Vísindasjóður
Ljósmæðrafélags Islands
Sjóðurinn var stofnaður skv. kjarasamn-
ingi LMFI og fjármálaráðherra í júní
1994 (grein 10.4) og greiðir sjóðurinn
útlagðan kostnað við endurmenntun,
rannsóknar- og þróunarstörf félags-
manna LMFÍ. Vísindasjóður er gild-
asti styrkjasjóðurinn innan félagsins
og getur styrkt rannsóknar- og þróun-
arvinnu ljósmæðra um 2-3 milljónir á
ári, fyrir utan árlega greiðslu til félags-
manna. Einungis kjarafélagar LMFÍ
geta sótt um styrki sjóðinn.
Rannsóknasjóður Ingibjargar R.
Magnúsdóttur
Sjóðurinn var stofnaður nú í ár, af
Ingibjörgu R. Magnúsdóttur fyrrver-
andi námsbrautarstjóra Námsbrautar
í hjúkrunarfræði og skrifstofustjóra í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Markmið rannsóknasjóðsins er að
styrkja hjúkrunarfræðinga og ljósmæð-
ur í doktorsnámi.
Sjúkra- og styrktarsjóður BHM
Styrktarsjóður tilheyrir félagsmönnum
á opinberum markaði en Sjúkrasjóður
þeim sem starfa á almennum markaði.
í þessa sjóði má sækja um styrk til t.d.
gleraugnakaupa, tannviðgerða, líkants-
ræktar, margs konar meðferðar ofl., auk
sjúkradagpeninga.
Starfsmenntunarsjóður BHM.
(STRIB)
Sjóðurinn er stöndugur og veitir hverj-
um félagsmanni rétt til 60.000 kr styrkja
á tveggja ára fresti til ráðstefnuferða,
námskeiða ofl.
Orlofssjóður BHM (OBHM)
Áramótin 2005/2006 gengu ljósmæður
30 Ljósmæðrablaðið desember 2007