Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 23

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 23
Ápríl 3l/2 stundu eptir sólarlag. 1 Maí og Jání gengur hnn ekki undir fyr en eptir miðnætti. En ilr því hylur hún sig brátt í geislum sólarinnnar. 9. Júlí, þegar hún er lengst í austurátt frá sólu, gengur hún þegar undir 3/4 stundu eptir sólarlag, af því staða hennar er þá orðin suðlægari. 12. Ágúst, þegar hún ljómar skærast, sjest hún alls ekki á íslandi. 17. September gengur hún inn fyrir sólina yfir á morgunhimininn, og kemur þar í öndverðutn Október npp 2 stundum fyrir sólarupprás. 25. Október sk;n hún skærast og kemur upp 41 /-> stundu fyrir sól- arupprás. 28. Nóvember er hún lengst í vesturátt frá sólu og kemur upp nálega 6 stundum á undan henni. TJm árslokin kemur hún upp 4I/2 stundu fyrir sólarupprús. 30 Janúar sjest Venus rjett fyrir neðan Júpíter, en þau ganga bæði undir þegar O/g stundu eptir sólarlag. • 91nrs kemur í ársbyrjun upp um miðnætti; úr því ávalt fyr. 29. Marts er hann gegnt sólu, alla nóttina á lopti og sjest um miðnætti í suðri 26 stig fyrir ofan sjóndeildarhring Eeykjavíkur. TJndir lok Aprílmánaðar sjest hann í suðri kl. 10 á kveldin. Undir lok Maímánaðar gengur hann undir tveim stundum eptir miðnætti, í ofanverðum Júní um miðnætti og það, sem eptir er ársins, er hann ósýnilegur á íslandi, nema undir árslokin, er hann er í suðri kl. 3 e. m., en þó að eins fám stigum fyrir ofan sjóndeildarhring Keykjavíkur. Mars er í ársbyrjun 25 miljónir mílna frá jörðunni, en síðan nálgast hann hana, og verður þá skin hans æ skærra, unz hann í byrjun Aprílmánaðar er kominn svo nálægt henni, sem hann getur komizt að þessu sinni, 13 milj. mílna, og Ijómar þá skærast. Ur því fjarlægist hann og skin hans verður æ daufara Um árslokin er fjarlægð hans frá jörðunni 41 milj. mílna. Mars, sem er anðþektur á roðablæ sínum, sjest hinn fyrra helming ársins í Meyjarmerki og reikar hann í vesturátt meðal stjarna þess merkis frá 18. Eebrúar til 10. Maí, en annars gengur hann austur á bóginn. A þessu reiki strýkst hann 11. Janúar rjett suður hjá stjörnunni Gamma í Meyjarmerki, og aptur 26. Marts rjett norður hjá sömu stjörnu. Um árslokin er Mars kominn inn í Steingeitarmerki. 20. December er Mars rjett fyrir neðan Satúrnus. þeir ganga þá báðir undir 3l/2 stundu eptir sólarlag. Júpiter gengur í ársbyrjun undir í útsuðri 4 stundum eptir sólarlag, en úr því fyr, svo að hann verður brátt ósýnilegur. 19. Febrúar gengur hann á bak við sólina yfir á morgunhimininn, en fer þó ekki að sjást þar á íslandi, fyr en hinir lengstu dagar eru þrotnir. Undir lok Júlímánaðar kemur hann upp í austri kl. 10 á kveldin, um miðjan Ágúst kl. 8 á kveldin. 11. September er hann gegnt sólu og alla nóttina á lopti, og sjest þá um miðnætti í suðri 20 stig fyrir ofan sjóndeildarhring Reykjavíkur. Ur því sjest hann æ fyr og fyr í suðri: í öndverðum Október kl. 10 á kveldin, í öndverðum Nóvember kl. 8 á kveldin og í árslokin kl. 5 á kveldin. Júpíter reikar á ársgöngu sinni úr Steingeitar- merki inn í Vatnsberamerki, og frá 14. Júlí til 9. Nóvember reikar hann 1 vesturátt á meðal stjarna þess merkis, en annars heldur hann austur á bóginn. 30. Janúar sjest Júpíter rjett fyrir ofan Venus; en þau ganga bæði undir þegar 11/2 stundu eptir sólarlag.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.