Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 46

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 46
fjárveitingin til rannsókna hans síðast hafa numið f’ramt að 100,000 kr. á ári, enda varð hann }iá að hafa fjölda aðstoðarmanna. Bak við verklegu rannsóknirnar stóðu til fryggingar og vissu visindafegar, efnarannsóknir i Kaup- mannahöfn, og sýndi stjórn og þing Fjord það traust að koma upp tilrauna-labóratóríi við landbúnaðarháskólann, sem aðallega var gjört fyrir hann; varð forstöðumaður þess V. Sforch, sá hinn sami er rannsakaði skyrið frá Bergþórshvoli fyrir Fornleifafelagið. Fjord var efri ór sín svo heimsfrægur maður, að tilraunaskýrslur hans birtust jafnharðan í íjölda mörgum erlendum búnaðarritum rétt um allan heim. Hann hefði getað orðið stórefnaður fyrir ýmsar uppfundningar sínar, en um það hugsaði hann ekki. Seinustu 8 órin sat hann í stjórn Landbúnaðarfélags- ins danska, og var þar lífið og sálin. Fjord var í fyrstu skólakennari og starfsþolið varsvo mikið, að hann gat lengst af æfi sinnar verklega haldið áfram að vinna að alþýðumentuninni með aískiftum sín- um af alþýðukennurunum. Það tvent er einmitt svo óað- skiljanlegt í Danmörk: alþýðumentunin og vöxtur og við- gangur landbúnaðarins, og fer þetta því svo einkennilega vel saman hjá Fjord. Monrad biskup var eflaust djúpsæ- asti stjórnvitringurinn, sem Danir hafa átt á 19. öldinni. Þegar hann hafði völdin lét hann sér mjög ant um að auka og bæta alþýðufræðsluna. Barnaskóli Reykjavíkur býr enn við reglugjörð Monrads, en 40 árþurftu að líða, þangað til óskir lians um handavinnukenslu gátu rætst. Eitt af því sem bezt hefir staðist af nýmælum Monrads er sumarleyfisfræðslan fyrir barnakennarana. Þessi sum- ar-„kúrsus“ eru æ betur og betur notuð og orðin mjög margbreytt, og miklu fé varið til þeirra, og hafa einstaka íslenzkir kennarar notið góðs af þeim siðustu árin. Þeg~ ar Fjord kom til Kaupmannahafnar, hafði Monrad yfir- stjórn alþýðumentamála. Monrad tók þegar ástfóstri við Fjord og hélst vinátta þeirra jafnan síðan. Monrad kom Fjord að sem tilsjónarmanni við kennarafræðsluna að sumrinu, og eigi Monrad þakkirnar fyrir að koma kensl-

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.