Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 68

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 68
við að tekjur af póstferðum mundi ekkert lækka við þessa breytingu, en það fór á annan veg. Póstbréfum tjölgaði að vísu ákaflega inikið, en tekjurnar komust ekki jafn- hátt aftur fyr en eftir allmörg ár. Árið 1840 var byrjað að gefa út frimerki. Sá, sem fann upp frímerkin, var bókasölumaður .Tam.es Chalmers frá Dundee, en oft hefir það einnig verið eignað Rowland Hill, af þvi að þau komu fyrst til notkunar um sama leyti og burðargjaldslækkun sú, sem Hill barðist fyrir. Burðárgjaldslækkuninni var tekið með fögnuði af öllu fólki, en alt öðru máli var að gegna um frímerkin. Það var eigi gjört að skyldu að frímerkja bréf, held- ur máttu þeir, sem vildu, borga undir þau í peningum eða senda þau óborguð, en 10 árum eftir að frímerkin voru gefin út var ekki helmingur póstbréfa á Englandi frí- merktur. Önnur lönd tóku þetta smámsaman upp eftir Eng- lendingum, að lækka bréfburðargjaldið og láta það vera hið sama innanlands án tillits til vegalengdar, og sömu- leiðis að láta borga undir bréfin með frimerkjum. I löndum, sem hafa gufuskip og járnbrautarvagna til að flytja póst- inn, er það í rauninni eðlilegt og sjálfsagt, að bréfburðar- gjuldið sé hið sama um land alt, því að flutningskostnað- ur er þar sáralítill á bréfum, hvort sem þau fára langt eða skamt. Þessar endurbætur á póstmálunum náðu fyrst fram að ganga hér á landi með tilskipun 26. febr. 1872. Þá voru flest önnur lönd fyrir löngu búin að innleiða þær hjá sér, en milli ríkja gilti gamla reglan, að taka sérstaka borgun fyrir bvert ríki, sem bréfið átti að fara um. Af- leiðingin var sú, að það var afarkostnaðarsamt að senda bréf til utanríkislanda, og reikningar milli landanna út úr því voru bæði erfiðir og flóknir. Danskur maður, að nafni Joseph Michaelsen, mun fyrstur manna hafa komið fram með þá uppástungu, að láta sömu reglu gilda um allan heim eins og innanlands, þnnnig að bréfin gengju með sama burðargjaldi alstaðar í út- (58)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.