Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Síða 78
r
hann einn af öllum gjaldendum þessa lands, að yera und-
anþeginn því gjakli.
Hið einasta gjald sem hlutabankinn á að greiða er
Vio til landssjóðs af gróða bankans, þegar búið er að
greiða allan kostnað við rekstur hans, og hlutaeigendum
4°/0 vexti. Landssjóður á að sitja á hakanum, hann á að
vera vonbiðill þess, hvort hann fœr nokkuð eða ekkert;
en landsbankinn hefur árlega greitt landssjóði Iögákveð-
ið gjald 5000 kr., og síðustu árin 7500 kr. Við landsins
eigin stofnun er gjaldið eigi miðað við það, hvort hún
grœðir eða tapar. Hinir útlendu hlutabankamenn eru
rétthærri. Hérlendu hlutabanka forvigismennirnir hafa
búið alt sv'o meistaralega vel út fyrir hann. Þeír liafa
ekkert sparað til þess, að riðja úr vegi hans öllu því, sem
hindrað gæti gróða hans og einveldi, þess vegna féll þeim
svo þungt það óhapp þeirra, sem varð í þinglok í fyrra,
að Landsbankinn hélt liíinu, Geta má nærri hver þyrnir
hann verður í augum þeirra, þeir sjá, að þó þeim tækist
að gjöra hann afllítinn og smávaxinn, þá muni hann samt
reyna að berjast fyrir því, að vextir af lánum verði ekki
of háir og hlutabankinn nái ekki einveldi í landinu. Að
sönnu leiðir þar af, að eigi verður eins ábatavænlegt, að
eiga hluti í bankanum, meðan Landsbankinn fær að standa,
en það ættu landsmenn ekki að láta aftra sér, heldur
ættu þeir að láta þjóðrækni, samhliða talsverðri gróðavon,
ráða I þessu máli. Þeir ættu að nota ákvæði það í lög-
um hlutabankans; þar sem landsjóði er veittur réttur til
að eiga 2/5 af hlutaeign bankans, og landsbúum ’/s-
Reynzlan mun sýna, þrátt fyrir alt gaspur hlutabanka-
vinanna, að þar sem meiri hluti hlutabréfaeignarinnar er,
þar verða ráðin yfir fé bankans og viðskiftalífi landsmanna.
Eg álít eðlilegt, þótt margir vilji hafa banka við blið
Landsbankans.en að taka dýrmæt rjettindi í 30 ár, af
landsins eigin stofnun, og fleygjaþeim í hendur óþekktra,
útlendra manna, það álíta sumir, að gangi landráðum
næst. Landsbankinn hefir á reiðum höndum í útlendum
banka */2 mill. kr. í gulli, til að tryggja með 1 millj. kr.
L