Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 36
verksviðið er ekki það eitt að fara til vinnu, koma
heim aftur og bíða vikuloka til þess eins að hirða
kauþ sitt.«
Lord Leverhulme nefndi »nýbýli« þetta Port Sun-
lighl. Landrými var í fyrstu ekki nema 56 ekrur;
24 ekrur ætlaðar undir verksmiðjur og 32 undir
ibúðarhús. — Nú nær bærinn, eða borgin, yfir 547
ekrur, þar af 260 ekrur undir ibúðarhúsum.
Síðan 1888 hafa Lever Brothers verksmiðjurnar
aukizt svo, að nú er skráð hlutafé þeirra orðið 130
milljónir sterlingspunda. Alls á félagið 240 verk-
smiðjur og útibú. Hluthafar eru 170 þúsundir og
bókaðir viðskiftavinir í Bretlandi einu eru um 100
þúsundir. Sjálfur var Lord Leverhulme aðaleigandi
hlutafjárins.
í verksmiðjunum í Port Sunlight einni eru 8000
starfsmenn, en auk þess hefir félagið stórar skrif-
stofur og útibú í London, Manchester, Liverpool,
Newcastle, Birmingham og viðar i Englandi. í raun
og veru hefir verksmiðjan fulltrúa eða útibú í hverju
einasta landi heimsins. Hún á ekrur í Afríku og
Kyrrahafseyjum, þar sem ræktaðar eru kokohnetur.
í Vestur-Afríku heflr verksmiðjan pálmarækt, og
viðsmjörsverksmiðjur í Sydney, Durban, Opobo og
Lagos, auk víðlendra skóga í Belgiu-Congo.
í Port Sunlight búa ekki aðrir en þeir, sem at-
vinnu hafa í verksmiðjum Lord Leverhulmes. Peir
greiða húsaleigu, sem iétt nægir til viðhalds íbúð-
unum. Pað er ekki að eins tilgangur verksmiðjunnar
að hugsa um velferð starfsmannanna, á meðan þeir
eru við verk sitt, heldur engu síður að stuðla að því,
að konum þeirra og fjölskyldum geti liðið vel. — I
Port Sunlight eru engi tvö hús eins. Pau eru jafn-
breytileg sem ibúarnir. Heimilin eru engi verksmiðju-
iðnaður. — Með hverju húsi er garður og í hverju
húsi er baðklefi.
(32)