Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Side 16
16 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004
HelgarblaB DV
Ertu einn, tveir
eða þrír?
Eða kannski fjórir, fimm, sex eða
sjö eða átta eða kannski níu?
IÞetta ernáttúrlega fyrsta talan og táknar upphafiö og hina einstæöu dýrö
sólarinnar sem er skapari lífsins. Þetta er því kraftmikil tala og tengist sterkri
karlmennsku og jafnvel völdum. Fólk sem þessi tala á viö er gjarnan uppá-
findingasamt, ákveðiö og býryfir anda brautryöjandans. Hönd í hönd viö
kraft og afl helst hins vegar ábyrgð og fólk meö þessa tölu veröur aö gæta sín. Það á
nefnilega til að missa sig út í sjálfselsku og eigingirni. Efáætlanirþess standast ekki
geturþaö brugðistilla viö.ýmistmeð árásargirni eða sjálfhverfri fýlu. En jafnvel þótt
áætlanirnar gangi upp hættir þessu fólki til aö veröa yfirgangssamt við aðra.
2Rétt eins og„einn" er tengdur karlmennsku, þá tengist„tveir“hinu kvenlega
og stendur fyrir blíöu, innsæi, samræmi og rómantík.Tákn tölunnarer
tunglið og gefur til kynna blíðlega sköpunargáfu og hæfileika til að ná góðu
sambandi við annað fólk. Fólk sem talan á við er reyndaryfírleitt beinlínis
ófært um að sýna afsér röggsemi, taka ákvarðanir eða Ijúka málum með fullnægj-
andi hætti. Krafturinn sem þaö býryfir er fremur andlegur en jarðneskur.
3Þeirsem talan „þrír" á við eru í senn sköpunarglaðir og agaðir. Þeir tengjast
reikistjörnunni Júpíter og lykilhugtök fyrir þá eru góður árangur, ávinningur,
heppni, hamingja og almenn frjósemi á öllum sviðum. Skuggahiiðarnar á
fólki sem tengist„þremur" felast einkum íað það er veikt fyrir kjaftasögum
og hneigist til þunglyndis. Sömuleiðis erþað stundum óþarflega gagnrýnið á bæði
sjálft sig og aðra. Jafnframt getur það verið feimið, bölsýnt og skort ímyndunarafl.
Þaö á líka til að hætta við verk þá hálfnað er. Efþú tilheyrir þessum hópi mun þér
falla best við aðra úr sama hópnum.
4Fóiksem tilheyrir hópnum sem talan„fjórir“á viðergjarnan afar heilsteypt
því stæröfræðilega er talan ferningur. Hún tengistjörðinni og árstíðunum
Ijórum. Þetta fólk er oftar en ekki mjög jarðbundið og kerfisbundið og skipu-
lagt í allri sinni hugsun. Það getur orðið ókostur og þetta fólk getur orðið
óhóflega smámunasamt, hneigst til leti og veiklyndis og gert sér óþarfa áhyggjur af
litlu tiléfni. Þá kemur fyrir að þetta fólk sýni yfírmáta þrjósku og/eða uppreisnar-
gjarnt.
5Fólkið l„fimm" hópnum er undir áhrifum frá reikistjörnunni Merkúrog talan
táknar skilningarvitin. Það tengist framtakssemi, breytingum, andúð á end-
urtekningum og hefur þörffyrir nýjungar. Þar afleiöir að þetta fólk er stund-
um litt útreiknanlegt. Það eryfirleitt fullt orku, sveigjanlegt, vel gefið og nám-
fúst. Ókostirnir felast i óhóflegri kröfugerð á hendur öðru fólki og ofmikilli uppá-
tækjasemi. Fólkið á líka tilað dreifa kröftum sínum ofvíða og takast á hendur of
mörg verkefni i einu. Það eignast léttilega vini en erfitt er að búa með því.
6„Sex“er tala tilfinninganna ogyfir henni rikir reikistjarnan Venus, pláneta
ástarinnar. Stærðfræðilega erþað„fullkomin tala"vegna þess að það er
summa talnanna 1,2 og 3. Fólk undir merkjum tölunnar„sex" er gjarnan
ábyrgt og heilsteypt. Þá er það heimakært og elskar frið og fegurð og sam-
ræmi. Þar á ofan er fólkið oft listrænt og hugsar vel um bæði börn og dýr. Fólkið get-
ur jafnvel orðiö ofviðkunnanlegt, þannig að það fórni sínum eigin hagsmunum um
offyriraöra og er ennfremur skyldurækið úrhófi fram.
7Þetta er mikilvægasta talan og sú sem mestum töfrum er gædd. Hún er jafn-
vel talin heilög og kemur sérstaklega oftfyrirí goðafræði hvers konarog
einnig í Bibliunni. Þá eru sjö nótur í tónskalanum, sjö kvartil tunglsins, sjö reik-
istjörnur á himni í hinni fornu heimsmynd og sjö undur veraldar. Sjöundi son-
ur sjöunda sonar var sagður gífurlega kraftmikill og töfrum gæddur. Fólk sem tengist
tölunni er gjarnan miklir hugsuðir og gæti jafnvel átt sér einhverjar dulrænar hliðar.
Það getur verið rannsóknarmenn hvers konar eða uppfinningamenn. Gallarnir fejast
einkum i óhóflegri skilgreiningaráráttu og skarpskyggni sem jaðrað getur við niðurrif.
8Talan„átta"er tengd áhrifum reikistjörnunnar Satúrnusar. Fólk sem talan á
við mun ná árangri í lifínu en ekki endilega öðlast lífshamingju í sama mæli.
Þaö hefur kannski til að bera nægilega orku til að drífa hlutina áfram og
jafnvel stjórna, og því nær fólkið oft rlkidæmi og viöurkenningu en stundum
kostar árangurinn að fólkið gengur ofnærri sjálfu sér. Það á til að bæla niður tilfínn-
ingar sinar og missir oftafsannri ánægju í samböndum viðannað fólk vegnametn-
aðargirni og ákefðar.
9Rétt eins og„einn“er tákn upphafsins, þá felur„níu"í sér allar hinar tölurnar
og tákn endalok.Talan„fjölgarsérsjálf"efsvo má að orði komast þvi
summa allra margfelda tölunnar 9 er einmitt 9. Á eftir 7 er 9 mesta töfratal-
an og kemur oft fyrir sem slik í Biblíunni. Til dæmis eru þar nefndar níu reglur
engla, níu mánuðir meðgöngu og svo framvegis. Talan er undir áhrifum frá reiki-
stjörnunni Mars sem er tákn stríðsguðsins. Fólk sem talan á viö er baráttuglatt með
afbrigðum og þrautseigt í hvers konar raunum, en kappið getur stundum veriö
meira en forsjáin. Sömuleiðis á fólkið til að vilja um ofráðskast meö annað fólk.
J
-x
J
T5SS8’
ígf Agúst Óiafur
Ágústsson
Thor
Vilhjálmsson
Ögmundur
Jónasson
Katrín
10.3.1977-1
„Mér finnst þetta mjög
skemmtilegt," segir
Katrín Júlíusdóttir
skellihlæjandi. „Ég
kannast vel við ákveðn- Júlíusdóttir
ina en ég er ekki fýlu- Steinunn ólína
gjörn. Ég er líka dugleg
að svara fyrir mig, eiga
síðasta orðið án þess
að vera beinlínis árás-
argjörn. Líður vel efég á síðasta orðið í
rimmu. Ég þvertek ekki fyrir að hafa verið yfir-
gangssöm við bræður mína en æsku, en það
hefur máðst burt með þroskanum."
12.8.1925-1
17.7.1948-1
„Ég er í fyrsta lagi
mjög feginn að vita
loksins hvaða mann
ég hefað geyma,
það hefurlengi vaf-
ist fyrir mér,"játar
| Helgi Hjörvar
Elín Hirst
9.6.1967-2
4.9.1960-2
23.11.1974-1
Þorsteinsdóttir
Gabriela
Friðriksdóttir
2.7.1969-1
3.7.1971-1
Ath. Á ritstjórn DV var settur saman af
algeru handahófi listi afþjóðkunnu
fólkisem við ákváöum að kanna fæð-
ingartölurnar hjá. Það er fullkomin
tilviljun að ekki reyndust fleiri hafa
...... ' '. .. töluna tveir en hér sést.
HeigtHjorvarkatur Eða er það kannski engin tilviljun?
i bragði.„Eg kann- Eru svona fáir frægir með þessa fæð-
ast við ýmsa þessa ingartölu?
drætti enda eru þeir
ekki langt frá stjörnuspekinni um tví-
buramerkið. Mér hefur löngum gengið vel að
ná sambandi við fólk og mig rekur ekki i roga-
stans yfiröðru. Eins og allir vita hefég alltaf
verið ákaflega ákvarðanafælinn maður og
ófær um að sýna röggsemi."
„Svona
myndi ég
Baltasar
Kormákur.
1Jóhannes Felixson 9.1.1967-6
Gerður Kristný Guðjónsdóttir 10.6.1970-6
Bubbi Morthens 6.6.1956-6
Baltasar Kormákur 27.2.1966-6
Birgir Ármannsson 12.6.1968-6
„Ég hefnú haft
þá reglu þegar
kemur að slíkri
speki og spá-
dómum að trúa
þvi jákvæða en
kannast ekki við
hitt," segir Erp-
ur Eyvindarson.
Bryndfs Hlöðversdóttir
Guðmundur Árni Stefánsson
Halldór Blöndal
Birgitta Haukdal
Hannes Hólmsteinn
Vala Flosadóttir
Jónína Bjartmarz
Sigurður Kári Kristjánsson
Erpur Eyvindarson
Jón Asgeir Jóhannesson
Össur Skarphéðinsson
„Þóttégliggi
ekki yfir uppfinningum á sviði
raunvísinda til dæmis, má alveg segja að ég sé
uppfinningamaður því maður er að fást við
hugmyndavinnu afýmsu tagi “
8.10.1960-7
31.10.1955-7
24.8.1938-7
28.7.1979-7
19.2.1953- 7
16.2.1978-7
23.12.1952-7
9.5.1973-7
29.8.1977-7
27.1.1968-7
19.6.1953- 7
„Eitthvað afþessu
gæti átt við alla
sem ég þekki,
sjálfa mig með-
talda," hlær Mar-
grét Frímanns-
dóttir.„Eitt af
þessu vildi hafa í
stærri skammti
enéghefenþað
er metnaðargirn-
in. Það var lítið
afgangs þegar
mér var úthlutað afhenni.
Bjarni
Benediktsson
Jón
Gnarr
Guðrún S.
Gfsladóttir
Margrét
Frímannsdóttir
Sigurður
Einarsson í KB banka
Jóhannes
f Bónus
Kristinn
H. Gunnarsson
Egill
Helgason
26.1.1970-8
2.1.1967-8
12.12.1954-8
29.5.1954-8
19.9.1960-8
31.8.1940-8
19.8.1952-8
9.11.1959-8
„Ég er nú dálítið fyrir
að velja og hafna þeg-
ar kemur að svona
löguðu," játar Álfrún
Örnólfsdóttir.„Ég
kannast alveg við að
vera stundum ráðrik
og ráðskast með þá
sem það vilja. En ég
kannast ekkert við að
kapp mitt sé meira en
forsjáin. Svona vel ég
bara það sem mér
finnst hljóma best og
fallegast."
. MagnúsÞór
;■ Hafsteinsson
Eyrún
Magnúsdóttir
Krummi
f Mínus
Stefán
Hilmarsson
Björgólfur
Guðmundsson
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Álfrún
Örnólfsdóttir
Elín Marfa
Björnsdóttir
Siv
Friðleifsdóttir
29.5.1964-9 |fl
22.6.1979- 9,
29.8.1979- 9
26.6.1966-9
2.1.1941-9
16.3.1970-9
23.3.1981-9
8.4.1977-9
10.8.1962-9
Summa persónuleikans
Þetta er auðvitað fáránleg
kenning: að það lýsi ein-
hverju um persónu hvers
einstaklings og hafi jafnvel
áhrif á örlög hans hvaða
tala er summan af tölunum
í fæðingardegi hans. En eigi
að síður er þetta heilmikil
fræðigrein sem margir trúa
á, ekki síður en stjörnu-
speki eða ýmis nýaldar-
fræði. Og reyndar er „talna-
spekin“ ævaforn og þeir
sem aðhyllast hana telja sig
byggja á traustum grunni.
Talnaspeki af einhverju tagi þekkist í hverri
fornri menningu en sú talnaspeki sem nú er
vinsælust er upprunnin í Miðausturlöndum og
felst í að leggja saman mikilvægar tölur, fá út
summu þeirra og lesa út úr summunni ein-
hverja merkingu. Ástæðan fyrir því að talna-
speki festist í sessi er líklega tiltölulega ein-
föld. Eftir að undraheimur stærðfræðinnar
rann upp fyrir mönnum í árdaga, þá virtust
tölurnar á einhvern hátt „algerar" og „óum-
breytanlegar"; þær voru alltaf hinar sömu
hvernig sem veröldin veltist.
Tölur sem birtust mönnum í draumi voru tald-
ar sérstaklega mikilvægar og óx upp mikil
fræði sem var í því fólgin að lesa út úr tölum
sem birtust mönnum beint eða óbeint meðan
þeir sváfu.
Mikil gróska hljóp síðan í talnaspekina í Babý-
lon á annarri og þríðju öld eftir Krist þegar
fræðimenn þar fóru að lesa Biblíuna með
talnaspekina í huga. Ljóst er að tölur gegna
merkilegu hlutverki í Biblíunni og þarað auki
hefur hver bókstafur í hebresku talnagildi. Því
voru hebreskir ritningarstaðir Gamla testa-
mentisins fjársjóður fyrir metnaðarfulla talna-
spekinga sem gátu fundið leyndar merkingar
nánast hvar sem boríð var niður.
Seinna sigldu krístnir talnaspekingar í kjölfar-
ið og fundu óteljandi leynistaði í guðspjöllun-
um þar sem tölur og guðfræði kölluðust á.
Þegar sú stjörnuspeki sem við þekkjum enn í
dag tók að fullmótast á miðöldum var hún líka
mjög tengd talnaspeki og eins og sjá má hér
til hliðar eru vissar tölur tengdar ákveðnum
reikistjörnum - og öfugt, reyndar.
Það eru ýmsar leiðir sem talnaspekingar fara
til að reikna út hvaða tala á við hvaða einstak-
ling. Nafnnúmerið er ein aðferð en þá eru lögð
saman númeragildi allra bókstafanna í fullu
nafni einstaklingsins. Haldið er áfram að
leggja saman þangað til út kemur ein tala á
bilinu einn til níu.
Samkvæmt því er til dæmis nafn-númer Bjark-
ar Guðmundsdóttur 100, það er að segja 1
plús 0 plús 0=1. Og ekki sama talan og fæð-
ingarnúmerið hennar sem er sjö. Fæðingar-
númerið er oftast notað en það á að gefa til
kynna heildarlíf einstaklingsins og innsta eðli
hans - það sem utanaðkomandi áhrif hafa lítil
áhrif á.
„Sálræna talan" er aftur á móti bara dagsetn-
ingin, án ártals. Hún gefur til kynna hina
óstöðugri þætti í persónuleikanum, þá sem
umhverfið hefur mest áhrif á. Sálartala Bjark-
arerfimm.
Eflaust er ekkert að marka þetta. En það getur
nú verið skemmtilegt samt að skoða þessi
fræði.