Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Side 29
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 29
Orugg, með ákveðnar
skoðanir og segir sína
meiningu án þess að
særa nokkum. Þannig
kemur Sigga Beinteins
þjóðinni fyrir sjónir í ár.
Menn hafa haft á orði að gaman sé að
sjá hversu mikið hún hefur breyst frá
því í fyrstu þáttaröðinni af Idol, en þá
hélt hún sér til hlés og sagði ekki meira
en hún þurftí.
Hún er sammála og segist hafa horft
á alla þættina þegar hún byrjaði á nýjan
leik og einmitt séð að þetta væri rétt.
„Ég sá að ég hefði alveg getað verið
ákveðnari í skoðunum mínum því ég
hef þekkinguna og reynsluna. Iiklega
hef ég verið feimin en mér leið miklu
betur þegar ég byrjaði núna og var til-
búin að gera það sem til var ætlast af
mér, “ segir hún og h'tur svo á að dómar-
amir þrír eigi að segja meiningu s£na og
leiðbeina keppendum.
„Ég vil gera það án þess að brjóta
fólk niður. Ég sé ekki tiíganginn með
því. Vissulega er erfitt að þurfa að segja
við suma, sem maður veit að em að
leggja allt sitt í þetta, að þeir hafi ekkert
að gera í Idolið. En það er engum gerð-
ur greiði með því að segja ósatt," segir
hún og tekur undir að það sé ekki sama
hvemig það sé gert.
Alltaf verið reglusöm
„Ég hef alltaf verið hreykin af henni.
Hún er bæði framúrskarandi reglusöm
og hefur alltaf staðið sig vel í öllu sem
hún hefur tekið sér fyrir hendur. Ég er
enda afskaplega ánægð með að frægð-
in og söngurinn skuh aldrei hafa hagg-
að henni en hún lifir mjög eðlilegu lífi
og lætur það ekki hafa áhrif á sig þó að
hvert mannsbam þekki hana." Svona
tók móðir Siggu til orða þegar hún var
spurð af DV um dóttur sína fyrir
skömmu.
Sigga hlær þegar hún er minnt á
þessi orð og spurð hvort þetta sé rétt
lýsing á henni. „Já, ætli það ekki. Ég
lagðist aldrei í neitt vesen í kringum
sönginn þegar ég var yngri," segir hún
og brosir enn meira.
Hvaö varstu gömul?
„Ég var sautján ára eða eitthvað þar
um bil þegar ég byrjaði að syngja með
hljómsveit í Kópavogi. Dr. Gunni var
höfuðpaurinn í þeirri hljómsveit en
hinir hafa líklega ekki haldið áfram,"
rifjar hún upp.
Sigga er spurð hvemig það bar við
að einmitt þessi hljómsveit varð henn-
ar fyrsta. Hún man það eins og það
gerðist í gær.
„Það má þakka vinkonu minni fyrir
það eða kenna," segir hún hlæjandi og
segir frá því hún hafi alltaf verið
syngjandi. „Mér er sagt að ég hafi
sungið öllum stundum þegar ég var
smástelpa. Við bjuggum þá í Elliðarár-
dalnum, en þar ólst ég upp áhyggju-
laust í stórum systkinahópi, en í næstu
tveimur húsum vom frændsystkini
mín einnig alin upp. Það var því oft
gaman hjá okkur. Þau segja að ég hafi
ekki þagað og seinna fór ég að grípa í
gítar. Ég hafði ógurlega gaman af að
syngja," segir hún og játar að eftir því
sem hún varð eldri hafi hún farið að
halda því meira fyrir sjálfa sig.
Auglýsing í DV var upphafið
Fjölskyldan flutti síðan í Stekkina
þegar Sigga var fimm sex ára en þar
byggði faðir hennar hús. Þar ólst hún
upp og gekk í skóla. Hún fullyrðir að í
Breiðholtinu hafi ekki síður verið gam-
an að alast upp; mikið af krökkum á
hennar aldri og leiksvæði allt í kring.
„Ég hélt áfram að syngja en aðeins inni
í herberginu mínu og vildi ekki að
neinn heyrði í mér. Besta vinkona mín
var meira að segja útilokuð frá því að
hlusta. Svo var það einhvem tíma að ég
sat og söng og glamraði á gítarinn að
hún heyrði í mér. Hún stóð þá fyrir
utan gluggann, steinþagði og lagði við
hlustir. Eg vissi ekkert af henni fyrr en
ég var hætt en þá kom hún inn og sagði
að þetta gengi ekki lengur; ég yrði að
gera eitthvað í því að koma mér á fram-
færi.
Nei, það kom ekki til greina. Ég vildi
það alls ekki en hún hélt áfram að suða
í mér. Lagði til að við fylgdumst með
smáauglýsingum í Dagblaðinu og þeg-
ar einhver hljómsveit auglýsti þá færi
ég í prufú," rifjar hún upp og brosir að
minningunum.
Vinkonan tók þetta að sér og einn
daginn var auglýst eftir söngkonu og
Sigga neitaði áfram að gera eitthvað í
málinu. „Mig dauðlangaði auðvitað en
ég býst við að feimnin hafi aftrað því að
ég færi af stað," segir hún alvarleg á
svip.
Hefur náð tökum á feimninni
Ertu etm svona feimin?
„Já, ég held það en ég hef náð betri
tökum á feimninni eftir að ég full-
orðnaðist. Get betur unnið á henni,"
segir hún og horfir fram.
Hvaö svo, svaraöir þú augiýsing-
unni?
„Já, fyrir rest gerði ég það. Vinkona
mín var þá búin að hóta að tala aldrei
við mig aftur ef ég færi ekki og mér
fannst í lagi að hringja. Þó ekki til ann-
ars en að róa hana," segir Sigga hlæj-
andi og hristir höfuðið.
OgþáhittiröuDr. Gunna?
„Já, og söng fyrir þá. Þeir voru
reyndar ekki með þá músík sem ég
hafði mest áhuga á en þeir vildu fá mig
og ég greip tækifærið og fór að syngja
með þeim."
Og það var byijunin. Með strákun-
um í Kópavogi var hún í eitt eða tvö ár
og síðan hefur eitt leitt af öðru. „Já, það
hefur alltaf verið þannig. Tækifærin
hafa komið upp í hendumar á mér,"
segir hún en eins og kunnugt er þá hef-
ur Sigga verið að síðan, eða í tæpan ald-
arfjórðung.
Fólk man enn eftir rauða
Eurovision-kjólnum
Hjólin fóru fyrst að snúast þegar
Siggu bauðst að syngja með HLH-
flokknum, en þar var Bjöggi prímus-
mótor. „Það var ógurlega gaman og í
framhaldi af því hitti ég Grétar Örvars-
son og fór að syngja með Stjóminni
sem var óhemju vinsæl. Þá var ég kom-
in í það sem ég stefiidi alltaf að og það
var mikið um að vera og gaman á þess-
um tíma. í framhaldinu tókum við þátt
í Eurovison og það er merkilegt að þeg-
ar menn minnast fjórða sætisins í
Júgóslavíu um árið, þá man fólk alltaf
eftir rauða kjólnum sem ég var í," segir
Sigga og hlær að minningunni.
En hvers vegna rauði kjóllinn?
„Ég veit það ekki, hann virðist hafa
vakið mikla athygfi, en meira að segja í
Noregi man fólk frekar eftir kjólnum en
söngkonunni," segir hún, en þar rekur
Sigga söngskóla ásamt systur sinni.
„ToneArt" heitir hann og gengur mjög
vel.
Hvers vegna íNoregi?
„Systir mín býr í Noregi og hefur
búið þar frá því fyrir tvítugt, á sína fjöl-
skyldu þar. Hún er hjúkrunarfræðingur
og afar fær í sínu fagi. En hún er lika
framsýn og dugandi og taldi að þar væri
þörf fyrir skóla eins og þann sem ég rek
hér heima. Við stofnuðum því skólann
saman og það er nóg að gera," segir hún
og tekur ffam að hann sé sá eini sinni
tegundar í Noregi. Sigga ferðast talsvert
á milfi og er með annan fótinn í Noregi.
„Já, Flugleiðir hafa gert mér kleift að
fara reglulega utan en þeir em mjög lið-
legir við mig. Það er sjálfsagt að geta
þess sem vel er gert," segir hún.
Tíkin bjargaði lífi Siggu og Grét-
ars
Sigga Beinteins er mikill dýravinur
og hefur komið fram í auglýsingum
með hundinum sínum. Nú hefur hún
átt Golden retriver I nokkur ár. „Áður
átti ég tík sem var afar næm á mig. Ég
gæti sagt fleiri, fleiri sögur af hundun-
um rnmum en mér er minnisstætt þeg-
ar hún varaði mig eindegið við að
leggja í norðlenskar heiðar á milli jóla
og nýárs fyrir mörgum árum. Við í
Stjóminni áttum þá að spila í Sjallan-
um á Akureyri en það var allt kolófært.
Rætt var um að fara akandi til Akureyr-
ar en allar heiðar voru að lokast. Menn
vildu eigi að síður láta slag standa og
fara á jeppa. Töldu að við myndum
hafa það og ef ekki þá væri ekki annað
en snúa við. Um þetta ræddum við
fram eftir degi og menn voru ekki sam-
mála. Sumir vildu fara og aðrir ekki.
Seinni partinn þennan dag var
ákveðið að hittast heima hjá Grétari og
taka ákvörðun. Ég var með tfldna í bíln-
um hjá mér og á leiðinni þangað gelti
hún stanslaust; tík sem aldrei heyrðist í.
Ég skildi ekkert í hvers vegna hún væri
svona óróleg og reyndi að þagga niður í
henni en hún lét ekki segjast. Þegar við
vorum komin til Grétars og ég gerði
mig líklega til að fara út úr bílnum gelti
hún enn meira og lét öllum illum lát-
um.
Ég fór inn og skildi hana eftir gelt-
andi og fannst þetta ekki eðlilegt. í mér
var beygur og ég taldi ekki á það reyn-
andi að fara og tók af skarið og sagðist
ekki fara með. Það voru ekki síst lætin í
tfldnni sem gerðu það að verkum að ég
ákvað að fara ekki. Þegar ég kom út
með þá ákvörðun steinþagði tfldn og
gelti aldrei aftur eins og þama. Ég var
ekki í vafa um að hún væri að vara mig
við. Fleiri svona sögur gæti ég sagt af
henni en það er ótrúlegt hvað dýrin
verða náin manni og ég er sannfærð
um að þau finna á sér það sem maður
sjálfur áttar sig ekki á," segir Sigga og
harðákveðin í að þama hafi tfldn jafii-
vel bjargað fifi þeirra.
„Það kom síðan £ ljós að þeir sem
lögðu á heiðamar lentu í hrakningum
en hver veit svo sem hverju við hefðum
lent í ef við hefðum farið," segir hún al-
varleg.
Talar ekki um einkalíf sitt
Fjórða sætið í Eurovision hafði það í
för með sér að hvert mannsbam á land-
inu þekktí Siggu. Hún segir að fjórða
sætíð hafa haft mikið að segja og eftir
það máttí hún hvergi koma án þess að
fólk tæki eftir henni. „Mér þóttí það ekki
þægilegt og það getur verið of mikið af
því góða. Ég gat ekki keypt í matinn, því
þá velti fólk fyrir sér hvað væri í körf-
unni minni. Ef ég fór í Kringluna að
versla var tekið eftir því hvað ég keyptí
og mér þóttí þetta vont. Er reyndar al-
veg hætt að kaupa mér föt héma heima
fyrir vikið," segir hún og bætir við að
hún hafi dregið sig í dáfitíð hlé eftir
Eurovision. „Eftir það kom langur tími
allt þar til ég tók þátt í Idofinu sem ég
var ekki mikið I sviðsljósinu."
Þú hefur þá þurft að hugsa þig vel
um áður en þú tókst ákvörðun um að
vera með?
„Já, ég hugsaði mig vel um áður. Ég
vissi hvað það hefði í för með sér og
þetta var erfið ákvörðun. Mér hefur
þótt gott að standa dálítíð utan sviðs-
ljóssins og hafa mitt í friði. Eftír að
Idolið fór af stað í fyrra varð ég óneitan-
lega vör við neikvæðu hliðamar en ég
hef haft það fyrir reglu að tala ekki um
einkafif mitt við fjölmiðla. Það bíður
betri tfrna," bætir hún við.
Krakkarnir í Idolinu hetjur
Hún segir að sig hafi langað að vera
með Idolinu og það réði úrslitum við
ákvörðunartökuna. „Ég taldi mig hafa
eitthvað að gefa enda hef ég lengi verið
að vinna með fólki sem er að byrja að
syngja. í skólann kemur fólk á öllum
aldri og margir hafa lengi átt þann
draum að syngja. Því ekld að nýta þá
reynslu mína, og mér hefur fimdist
mjög gaman að fylgjast með þessum
krökkum.
Þau em algjörar hetjur að þora að
koma svona fram og mér finnst ótrú-
legt hvað þau em dugleg að láta á reyna
á drauma sína. Ég hefði aldrei haft í
mér dug til að koma svona fram, enda
þurftí að hóta mér," bendir hún á
hlæjandi.
„Þetta er gaman, en við ráðum engu
lengur. Nú gefum við umsögn og bend-
um á ef þau syngja í of hárri tóntegund
eða taka lög sem þau ráða ekki við.
Þjóðin á hins vegar lokaorðið og það
em ótrúlega margir sem fylgjast með
Idolinu. í það minnsta er varla bfll á
ferli á föstudagskvöldum á meðan það
stendur yfir," segir hún og réttir úr sér.
Berst gegn kynferðisofbeldi á
börnum
Nóg er að gera hjá Siggu þessa dag-
ana. Söngskólinn er að gefa út geisla-
disk með nemendum skólans og Sigga
segir margar ótrúlega góðar raddir
hljóma þar. „í skólanum hafa verið
margir sem aðeins em læra að syngja
ánægjunnar vegna. Meðal þeirra er fólk
sem myndi sóma sér meðal þeirra
bestu í söngnum en em í hinum ýmsu
störfum í samfélaginu. Diskurinn heitir
„Jólastjömur" og er að koma út þessa
dagana," segir hún og er afar ánægð
með diskinn.
Hún segir að skólinn hafi ákveðið að
styrkja samtökin „Blátt áfram" en þau
berjast gegn kynferðislegu ofbeldi á
bömum. „Nei, ég á sem betur fer ekki
neina þannig reynslu að baki en okkur
þóttí þetta eigi að síður góður málstað-
ur og vildum styrkja þessi samtök sem
berjast gegn þessu skefjalausa ofbeldi.
Fimmta hver stúlka og tíundi hver
drengur hefur orðið fyrir þessari
óhugnanlegu reynslu en það er ótrú-
lega stór hópur barna," bendir hún á og
neitar að hún sjálf þekki þetta af eigin
raun. „Það er ekki þess vegna sem við
styrkjum samtökin. Heldur finnst mér
málstaðurinn góður og ekki veita af
þessum smðningi en ágóðinn af plöt-
unni rennur til samtakanna," segir
Sigga og vonast til að disknum verði vel
tekið.
Enn meiri verdlækkun!
ÓDÝRARA
að hringja til
útlanda
atlas<freLsi
Fæst um land allt: Olís - Hagkaup -10-11 - Sparkaup - Penninn - Samkaup -Úrval - Nettó
www.atlassimi.is
2000 kr. Canada Lönd í ódýrasta verðflokki 540 min
China 310 min
Denmark 540 min
France 540 min
Germany 540 min
Ireland 540 min
Italy 540 min
Netherlands 540 min
Norway 540 min
Poland 370 min
Spain 540 min
Sweden 540 min
UK 540 min
USA 540 min
Það er merkilegt að þegar menn minnast fjórða sætisins í Júgóslavíu
um árið, þá man fólk alltafeftir rauða kjólnum sem ég var í.
Ég gat ekki keypt i
matinn, en þá velti
fólk fyrirsérhvað væri
/ körfunni minni. Efég
fór í Kringluna að
versla var tekið eftir
því hvað ég keypti og
mér þótti þetta vont.
Útilokar ekki barneignir
Sigga er einnig, ásamt Maríu Björk,
að gefa út sína þriðju spólu af Söngva-
borg sem er myndband með lögum og
fræðslu fyrir böm. Hún segir þá vinnu
hafa verið mjög skemmtilega enda
gaman að vinna að tónlist með böm-
um.
Ertu bamagæla?
„Já, ég er það og finnst mjög gaman
að vera með bömum. Já, ætli ég sé ekki
góða frænkan. Ég ætla að minnsta kostí
rétt að vona að börnin í fjölskyldunni
kunni að meta mig," segir hún hlæj-
andi og játar að það sé ekki útilokað að
hún eigi eftir að eignast böm sjálf.
„Maður veit aldrei en það fer nú hver
að vera síðastur með það," svarar hún
brosandi. Helga Braga og Sveppi koma
fram á Söngvaborg 3 með henni og
Maríu Björk. Það er mun meira lagt í
þessa spólu en hinar tvær. Sigga segir
gaman að vinna með Helgu Braga sem
sé ótrúlega frjó og hugmyndimar renni
frá henni eins og veita. „Hún er fika svo
skemmtilega og elskuleg í alla staði."
Tímdi aldrei að djamma
Sigga hefur komið sér vel fyrir, á sitt
hús og jeppa og hund. Tálið berst að
skemmtanafi'finu í kringum tónlistar-
bransann og hún segir það rétt hjá
mömmu sinni að hún hafi aldrei verið
mikið fyrir það að skemmta sér. „Ég
held að það komi nú fyrst og fremst til
vegna þess að ég tfrndi því aldrei. Ég er
ekki m'sk en ég vildi samt ekki láta pen-
inginn minn í það að djamma. Vissu-
lega skemmtí ég mér oft með þessu
fólki en ég eyddi aldrei helgarhýrunni í
skemmtanir eins og sumir áttu til. Ég er
hins vegar með mikla bíladellu og hef
aldrei átt bfl lengi í einu. Er alltaf búin
að skipta áður en langur tími er liðinn.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim bílum
sem ég hef átt,“ segir hún hlæjandi og
bendir á að það sé gott að eiga jeppa
fyrir hundana."
Sigga hefur einnig áhuga á golfi.
Hún fór nýlega til Spánar og spilaði
golf og er búin að skrá sig í æfingar
einu sinni í viku í vetur. „Ég heillaðist
alveg af golfinu þegar ég fór af stað.
Það tæmir hugann og er mikil aflsöpp-
un. Á vellinum hugsar maður ekki um
annað en þessa litlu hvítu kúlu, ekkert
annað kemst að. Verst að geta ekki
verið með hunda með sér í golfi. Ég
hugsa það stundum á þessum fi'nu
grænu völlum að þeir myndu ekki láta
bjóða sér það nema einu sinni að
koma með og spretta dálítíð úr spori.
Það er eini gallinn við golfið, en ég
bætí hundinum mínum það með því
að fara eitthvað annað með hann og
leyfi honum að hlaupa frjálsum," seg-
ir Sigga að lokum.
bergljot@dv.is
ATLAS<FRELSI
v More Mlnutes
v More Countríes
v' Less Price
1000 kr.
IMTSRMATIOf
'j'j t'j: wwv/.-jll-jJ
......MWrfStSiSÍM!
ALCALUN6CARD
imi.is for minute rates
1000 kr. Lönd í ódýrasta verðflokkl
Canada 270 min
China 150 min
Denmark 270 min
France 270 mln
Germany 270 min
Ireland 270 min
Italy 270 min
Netherlands 270 min
Norway 270 min
Poland 180 min
Spain 270 min
Sweden 270 min
UK 270 min
USA 270 min