Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Qupperneq 37
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 37
þrjár; Jónína S. Sigurðardóttir er aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Qarskiptasviði Ríkislögreglustjóra og Berglind Eyjólfsdóttir
rannsóknarlögreglumaður í forvarnadeild Lögreglunnar í
Reykjavík. Vinnudegi þeirra var lokið en Hjördís Sigurbjarts-
dóttir var á leið á vaktina við almenna löggæslu í borginni.
Eina konan á vaktinni í
áraraðir
Berglind segist alla tíð hafa unnið
meira með körlum en konum. „Nú
fór ég til dæmis úr deild þar sem ég
var lengi eina konan yfir í deiid þar
sem konur eru í meirihluta. Ég fann
strax að þar er töluvert ólíkt and-
rúmsloft." Jónína segist hafa byrjað
á að sækja um varðstjórastöðu á
móti körlunum á sínum tíma. „En í
áraraðir var ég eina konan á vakt-
inni. Ég fékk varðstjórastöðuna, svo
aðalvarðstjórann, þá stjórnaði kon-
an vaktinni. Ég velti lengi fyrir mér
hvort mig langaði í þennan slag, mér
fannst liggja nær mér að vera í
stjórnunarstarfi.
Þegar strákarnir,
bekkjarfélagar
mínir úr Lög-
reglu-
skólan-
um
urðu varðstjórar, vildi ég eins og
þeir. Núna koma samstarfsmenn-
irnir til mín og trúa mér fyrir ýmsum
persónulegum vandamálum sem
við leysum í sameiningu. Og þeir
taka undantekningarlaust ffam að
þetta hefðu þeir ekki sagt mér væri
ég karlmaður. Niðurstaða mín hlýt-
ur að vera að vinnustaðir séu bestir
blandaðir."
Að lifa starfið af
Nú liggur í augum uppi að í starfi
sínu hafa þessar þrjár konur þurft að
upplifa ýmislegt sem okkur hinum
er hh'ft við. „Okkur er ekki gert að
sækja áfallahjálp en hún stendur
okkur til boða,“ segir Berghnd. „Ég
er ekki frá því að taka þyrfti sérstak-
lega á þessu, leiða okkur í gegnum
slíka hjálp og þá kannski sér-
staklega eldri starfsmenn. En
maður lærir að lifa með
þessu, lærir að vinna úr því
en auðvitað eru aðferðir
hvers og eins mismun-
andi. Og í ofbeldisaf-
brotadeiidinni eru menn
mjög meðvitaðir um að
ræða málin." Jónína
segist hafa nokkra
sérstöðu hvað þetta
varðar.
„Mað-
urinn
minn
var
Jónfna S. Sigurðar-
dóttir Aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á fjarskipta-
sviði Ríkislögreglustjóra.
í lögreglunni í 20 ár og við gátum og
getum rætt slíka hluti okkar í milli.
Að auki er hann mikill áhugamaður
um sálgæslu enda fór hann síðar í
guðfræði og er prestur í dag. En
ferðalagið sem ég er að koma úr með
Skógardísunum var einmitt farið til
að taka á þessu. Beinhnis til að tala
saman, losa sig undan álagi, finna
samhyggðina og ekki síst finna út
hvort einhver þarf frekari aðstoð. En
ekkert í mannlegu eðli kemur lengur
á óvart."
Höfum þurft að hafa fyrir
hlutunum
Hjördís segir að sér hafi fundist
þessi hluti starfsreynslunnar ákaf-
lega erfiður í byrjun. „En með tím-
anum lærir maður að taka á þessu,
tala um reynslu sína og þá nýt ég
þess að maðurinn minn er lfka í lög-
reglunni. En við upplifum líka góðar
stundir þegar mál fara á besta veg."
Jóm'na og Berglind samsinna þessu
og segjast báðar hafa lært miláð af
störfum sínum. „Við værum ekki
enn í starfi og búningi ef við værum
ekki sáttar þegar upp er staðið,"
minnir Jónína á. „Ég held að við
séum allar mjög sáttar við að hafa
fengið góðan hljómgrunn í okkar
stétt," heldur Jónfna áfram.
„En við höfum þurft að hafa fyrir
hlutunum, okkur hefur verið ýtt út í
horn en við höfum alltaf skotist til
baka aftur. Hitt er svo allt annað mál;
hvernig hægt er að samræma lög-
reglustarfið hjónabandinu, barna-
uppeldinu og heimilisstörfunum.
Við Berglind höfum báðar alið upp
tvö böm, verið mjög virkar í starfi og
félagslífi allan tímann. Sæmræming
alls þessa, sambúð með lögreglu-
mönnum, þetta hefur þurft nokkra
yfirlegu." Berglind er þessu sammála
en tekur fram að hún þekkti aldréi
annað. Hjördís og lögreglumaðurinn
hennar em bamlaus en eiga sjálfsagt
eftir að taka á samræmingunni. Nú
þarf Hjördís að hlaupa á almenna
löggæsluvakt, Jónína og Berglind em
enn að bera saman bækur sínar
þegar við kveðjum.
rgj@dv.is
Þeir sem muna eftir Café Romance
sem var við Lækjargötuna fyrir nokkr-
um árum eiga vísast eftir að fagna
endurreisn þess ágæta staðar. Það er
Ingi Bjöm Albertsson, fyrrverandi fót-
boltamaður með Val og veitingamaður,
sem stendur fyrir upp-
kvakningunni en stað-
i urinn var opnaður
jum síðustu helgi að
f Lækjargötu 10.
Ingi Bjöm segir að
staðurinn verði
rekinn með
Veitingamaðurinn Ingi Björn
Albertsson hefur opnað stað þar
sem fólk getur fengið sér drykk
og spjallað saman án þess að
þurfa að öskra á hvert annað.
hætti og sá gamli en píanóbar verður á
neðri hæðinni, koníakbar á þeirri efri.
Opið er alla daga nema mánudaga og
þriðjudaga og lifandi tónlist á föstu-
dags- og laugardagskvöldum en Ingi
Björn segir að þá leiki hin kunna Liz
Gammon á píanóið og syngi með.
,Aðra daga er meiningin að vera með
blandað þema eins og t.d. blús, djass,
soul og fleiri tegundir tónlistar en fólki
er boðið upp á leðurhúsgögn og
þægindi," segir Ingi Bjöm.
„Margir sem muna Café Romance
eins og hann var, sakna staðarins og
fagna því opnuninni enda vandfund-
inn staður fyrir fólk sem vill fá sér
drykk og spjalla saman án þess að
þurfa að öskra á hvert annað,"
segir hann og býður sérstaklega
þeim sem ekki fara oft út að koma
við og eiga notalega stund.
alain
mikli
UN5AN
Ný gleraugu
Komdu • Mátaðu • Upplifðu