Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Blaðsíða 50
Sport DV
settið kr. 3Öé.4Ö0
leður kr. 79,580
tilboðsverft
63.600
áklæði
kr. 66.500
tilboðsverð
53.200
Nóvembertilboð
20 % afsláttur
htbo6.sverd
Leðu rsófasett 3j:t o" 2 j:t sæta sóf'ar.
alklætt lcðri, hægiiulastólar til í sama leðnrlit.
tilbaésverð
H ægindastólar
stillaiile”! hak. leðtir á slitll. eða sterkt áklæði.
SÓfasett 3ja og 2 luegindastólar
öll sæti stillanle". sterkt (attáklæði.
innlit
S í ð u m ú I a 13 R e y k j a v í k
sími 544 8181
Björgvin í brekkunni Árangur Björgvins á Evrópumótarööinni íalpagreinum ersá næstbesti sem íslenskurskíðamaöur hefur nokkru sinni
náð. Hann er bjartsýnn á að halda uppteknum hætti á næstu mótum.
Björgvin Björgvinsson skíðakappi endaði í fimmta sæti á
sterku skíðamóti i vikunni. Þetta er einn besti árangur
íslendings í brekkunum frá upphafi.
Æfingarnar
skila sér
„Mér skilst að þetta sé
framtíðin í skíðaíþrótt-
inni og mér finnst
sjálfsagt að það verði
skoðað heima á íslandi
að reisa svona hús."
„Ég er mjög ánægður enda undanfarin ár kannski ekki verið ýkja
góð hjá mér og ég gæli við að ná að halda þessu formi áfram,"
segir Björgvin Björgvinsson, skíðamaður frá Dalvík, en hann
gerði sér lítið fyrir og náði fimmta sæti á sterku móti sem fram
fór innanhúss í Hollandi í vikunni.
Er árangur Björgvins sá næstbesti
sem íslenskur skíðamaður hefur náð
erlendis en kollegi Björgvins að
norðan, Kristinn Bjömsson frá Ólafs-
firði, vann tvívegis sigur á Evrópu-
bikarmótum á sínum ferli. „Ein-
hvem veginn gekk allt upp hjá mér
en það er tilfinning sem ég hef ekki
fundið um langa hríð og ég er mjög
bjartsýnn á að mér takist að halda
þessum dampi í næsta móti. Fyrst og
fremst er ánægjulegt að finna að all-
ur sá tími sem hefur farið í stanslaus-
ar æfingar síðan í vor er að skila sér
og ég er vaxandi sem skíðamaður."
Fimmta sætið hjá Björgvini er
enn betri árangur í ljósi þess að
hann var 51. í rásröðinni en því aftar
sem byrjað er því minni möguleikar
á að ná góðum árangri, enda versna
aðstæður í brautinni eftir því sem
fleiri skíða hana. Björgvin tók einnig
þátt í heimsbikarmóti sem fram fór í
Sölden í Austurríki fyrir skömmu en
féll í brautinni þar og lauk ekki
keppni.
Furðu vekur að skíðamót skuli
yfirleitt vera haldin í Hollandi þar
sem holt og hæðir eru vægast sagt af
skomum skammti en til að vinna
bug á því hafa Hollendingar byggt
svokölluð skíðahús og þar fór um-
rædd keppni fram. Björgvin var
himinlifandi með aðstöðuna og seg-
ist engan mun hafa fundið á því að
keppa innanhúss og í brekkum
utanhúss. „Þetta er sams konar til-
finning og að vera í alvörubrekkum
og fyrir utan þakið á húsinu er eng-
inn munur á að keppa inni eða úti.
Mér skilst að þetta sé framtíðin í
skíðaíþróttinni og mér finnst sjálf-
sagt að það verði skoðað heima á
íslandi að reisa svona hús. Það yrði
lyftistöng fyrir íþróttina og hægt að
skíða allan ársins hring." aibert@dv.is
Úrslitaleikur Hópbílabikars kvenna í körfu fer fram í dag
Úrslitaleikur Hópbflabikars
kvenna í körfubolta fer fram í DHL-
höllinni í Frostaskjóli klukkan 16 í
dag þegar tvö efstu liðin í 1. deild
kvenna bítast um bikarinn. Keflavík
hefur unnið þennan titil tvö síðustu
árin og getur því unnið þriðja árið í
röð. Á meðan Keflavíkurliðið hefur
spilað alla úrslitaleiki í sögu fyrir-
tækjabikars kvenna em Stúdínur að
mæta í fyrsta sirrn í úrslitaleikinn en
Keflavík hafði meðal annars slegið
þær út úr undanúrslitum keppninnar
tvö síðustu árin.
Keflavíkurliðið hefur byijað
tímabilið frábærlega og liðið hefur
unnið alla ellefu leiki sína á tímabil-
inu með 15 stigum eða meira og þar
af hefur liðið unnið síðustu fjóra
leiki sína með meira en 30 stigum. Á
meðal þeirra er 42 stiga sigur Kefla-
víkurkvenna á Grindavflc, 83-41, í
undanúrslitaleiknum í Laugardals-
höllinni um síðustu helgi en Kefla-
víkurliðið er með skemmtilega
blöndu af yngri og eldri leikmönn-
um og auk þess mjög sterkan banda-
rískan leikmann, Resheu Bristol,
sem hefur spilað mjög vel í vetur.
Birna Valgarðsdóttir hefur spilað
stórkostlega að undanförnu og með
hana í slflcum ham er afar erfitt að
ráða við Keflavflcurliðið.
Stúdínur töpuðu með 15 stigum
þegar liðin áttust við í deildinni fyrr í
vetur en þær rétt sluppu í úrslitaleik-
inn eftir 77-70 sigur á nýliðum
Hauka í undanúrslitunum. Hið unga
lið Hauka var komið 14 stig yfir í
upphafi seinni hálfleiks en ÍS vann
síðustu fimmtán mínútur leiksins
45-24 og þar með leikinn. ÍS er
byggt upp á tveimur landsliðs-
konum, Signýju Hermannsdóttur
og Öldu Leif Jónsdóttur en liðið
hefur misst tvo byrjunarliðsmenn í
meiðsli á síðustu vikum, þær Hafdísi
Helgadóttur og Lovísu Guðmunds-
dóttur. Lovísa hefur ekki spilað frá
því í október og Hafdís, sem er 39
ára, á við erfið bakmeiðsli að stríða.
í miklu stuði Birna Valgarösdóttir, fyrirliöi
Keflavlkurliðsins, hefur veriö óstöövandi f
sföustu leikjum. DV-mynd Stefán