Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Qupperneq 55
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 55
Dópaði sig úr
Byrginu
Fanginn Elís Helgi
Ævarsson er kominn aftnr á
Litla-Hraun. Hann var
dæmdur í 16 ára fangelsi
fyrir að myrða gamla konu
með hnífi. Það gerði hann í
dópvímu. Elís afþlánaði í
upphafi eitt ár á Litla-
Hrauni en var næstu þrjú
ár á Sogni. Því næst var
hann fluttur í Byrgið þar
sem honum gafst kostur á
að endurhæfa sig í fallegra
umhverfi en Lida-Hraun
hefur upp á að bjóða.
Grunur leikur á að Elís hafi
neytt fíkniefna og því hafi
vist hans í Byrginu ekki
orðið lengri.
Nútíminn til
Reykhóla
Á fimmtudaginn var
kveikt á m'tján nýjum
ljósastaurum við aðal-
götuna á Reykhólum.
Aðalgatan heitir Maríu-
tröð. Þar sem hún telst
þjóðvegur í þéttbýli þá
er það Vegagerðin sem
kostar verkið, að því er
segir á heimasíðu
hreppsins: „Á þessum
langa kafla hefur ríkt
algert myrkur eftir að
skyggjatekur." Fyrir
utan þetta hefur Veður-
stofa íslands sett upp
sjálfvirkan veðurmæli á
staðnum. „Reykhólar eru
því á hraðri siglingu inn í
nútímann," segja heima-
menn.
Raggi Bjarna
sló í gegn
Söngvararnir Ragnar
Bjarnason og Þuríður Sig-
urðardóttir eru sögð hafa
slegið í gegn á Garðatorgi í
Garðabæ í gær. Þar
skemmtu þau ásamt
djasskvartett Áma Schev-
ing. Samkvæmt heimasíðu
Garðabæjar mættu á
fimmta hundrað áhorfend-
ur til að fylgjast með tón-
hstarveislu í boði menning-
ar- og safnanefndar bæjar-
ins. Var þetta þriðja árið í
röð sem tónlistarveislan er
haldin á Garðatorgi.
Sigurjón Gunnsteinsson boxari pakkaði inn kókaínskammti Saivars Halldórs
Björnssonar á hótelherbergi í Amsterdam áður en innsetning í afturenda fór fram.
Salvar sofnaði. Þeir kannast nú ekki við að hafa átt samráð um að flytja inn dóp
þegar þeir voru gripnir í Leifsstöð með um 150 grömm hvor í afturenda.
Gripnir með kókaín í afhrenda
- seniast ekH hata hjálpast að
Salvar Halldór Björnsson boxari brosti í Héraðsdómi Reykjaness
í gær þegar saksóknari sagði það til marks um alvarleika brots
hans og Sigurjóns Gunnsteinssonar að þeir hefðu klæðst
íslenskum keppnisbúningum er þeir læddust gegnum tollinn í
desember síðastliðnum.
Salvar og Sigurjón kannast nú
ekki við að hafa sammælst um að
flytja inn kókaín, þrátt fyrir að ann-
að þyki koma fram í lögreglu-
skýrslu.
Salvarsofnaði
Lýsingar þeirra á ferðinni til
Amsterdam eru ævintýralegar.
Samkvæmt því sem Sigurjón sagði
við lögreglu eftir handtökuna fóru
þeir beint í Rauða hverfið þegar
þeir komu til Amsterdam. Yfir helg-
ina notuðu þeir fíkniefni og reyktu
hass. Síðan keyptu þeir kókaín,
rúmlega 150 grömm á mann, af því
að þeir fengu skyndilega í hendurn-
ar stórar fjárhæðir.
Á þriðjudeginum var komið að
því að pakka inn. Sigurjón var bú-
inn að pakka sínu inn í smokka
þegar hann varð þess áskynja að
Salvar hafði dottað. Þá pakkaði
hann kókaíninu inn fyrir Salvar. Því
næst var pakkningunum komið fyr-
ir í endaþarmi til að gabba tollverði.
Afneitun
Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi
ákæruvaldsins, segir að mismunur
sé á framburði boxaranna hjá
lögreglu og fyrir dómi: „Skyndilega
hefur framburður þeirra breyst fyr-
ir dómi. Hann ber þess merki að
vera vandlega undirbúinn."
Nú þvertaka Sigurjón og Salvar
fyrir að hafa sammælst um að flytja
inn kókaín. Verði það tekið gilt
verða þeir ekki dæmdir fyrir kókaín
Sigurjón var búinn að
pakka sínu inn í
smokka, þegar hann
varð þess áskynja að
Salvar hafði dottað.
hvors annars, aðeins það sem þeir
höfðu sjálfir í afturenda. Þeir neita
einnig að hafa hjálpast að við að
koma fyrir pakkningunum
innvortis.
Eitursterkt kókaín
Samkvæmt greiningu á kókaíni
boxaranna er það 70 prósent að
hreinleika, en það er með því allra-
sterkasta sem finnst hér á landi.
Hægt væri að tvöfalda það eða
þrefalda í magni með því að drýgja
það. Boxararnir keyptu efnið báðir
á 30 evrur grammið, eða um 2600
krónur. Grammið af kókaíni kostar
um 11 þúsund krónur hér á íslandi.
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi
Salvars, hélt því fram að þeir félag-
arnir hefðu keypt efnin eftir fyllerís-
hugdettu í Amsterdam, aðeins fyrir
eigin neyslu: „Eins og gerist hjá
öllum fíkniefnaneytendum þegar
þeim blöskrar hvað þetta er dýrt:
Djöfull væri nú fínt að fara út og
kaupa ársskammt af fíkniefnum."
Sveinn Andri sagði að það þyrfti
bókmenntafræðing til að túlka
lögregulskýrslunar í málinu, þær
væru svo loðnar. í skýrslunum er
haft eftir boxurunum að þeir hafi
farið til Amsterdam til að horfa á
bardaga og kaupa hnefaleikavörur.
Þeir höfðu áður talað um að flytja
inn dóp, en megintilgangurinn hafi
ekki verið að kaupa fíkniefni. „Ef
við tökum burt þetta „megin" þá
merkir það að það hafi ekki verið
tilgangur þeirra með ferðinni að
kaupa ffloiiefni," sagði Sveinn
Andri.
Salvar í sólinni
Salvar Halldór er fluttur til
Spánar ásamt eiginkonu sinni og
tveimur börnum. Hann segist hafa
tekið á sínum málum. Af þessum
ástæðum segir Sveinn Andri að
hann ætti að fá vægan, skilorðs-
bundinn dóm. „Hann er búsettur
erlendis og er þar við nám ásamt
eiginkonu sinni. Hann sér fyrir
tveimur börnum."
jontrausti@dv.is
Nánast uppselt er í allar feröir til Kanaríeyja
um jólin en sífellt fleiri íslendingar kjósa að
eyöa jólunum á sólarströnd.
Þrjú þúsund íslendingar
eyða jólunum á Kanarí
„Þetta er alltaf að verða vinsælla
og vinsælla," segir Lilja Jónsdóttir
hjá Úrvali Útsýn. Hún segir rúmlega
90 prósent allra ferða til Kanaríeyja
vera bókaðar fyrir þessi jól. Tómas
Gestsson, markaðsstjóri hjá Heims-
ferðum, tekur í sama streng. Hann
segir jólaferðirnar vinsælli nú en
áður.
„Það er mikið um það að fólk vilji
breyta til um jólin. Það er ákveðin
stemning í að vera á sólarströnd
með fjölskylduna yfir jólin," segir
Tómas.
Á Kanarí er íslenski veitingastað-
urinn Klörubar þar sem boðið er
upp á íslenskan jólamat yfir hátíð-
amar auk þess sem boðið verður
upp á íslenska jólaskemmtun. Lilja
segir fólk hafa byrjað að bóka ferð-
irnar óvenjusnemma í ár enda hafi
þetta aldrei verið eins vinsælt og nú.
„Fólki finnst þetta kjörin tilbreyting.
Þarna er 20 til 25 stiga hiti yfir jólin.
Stundum verður svoh'tið hvasst en
yfirleitt er stillt og gott veður þarna áw
þessum tíma," segir Lilja.
CARAT
Haukur gullsmiður CARAT
Opnar nýja verslun á Laugavegi 40 Haukur gullsmiður
Verið velkomin Smáralind s. 577 7740 Laugavegi 40 s. 551 1511
''