Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1982, Blaðsíða 64
MYRKVAR 1982
Sólmyrkvar.
1. Deildarmyrkvi á sólu 25. janúar. Sést á Nýja Sjálandi og á Suður-
skautslandinu.
2. Deildarmyrkvi á sólu 21. júní. Sést í Suður-Afríku.
3. DeUdarmyrkvi á sólu 20. júlí. Sést nyrst og austast í Síberíu, nyrst
í Kanada, á Grænlandi, Islandi og nyrst og vestast á meginlandi
Evrópu. í Reykjavík hefst myrkvinn kl. 18 49 og honum lýkur kl.
19 56. Þegar myrkvinn er mestur, kl. 19 23, hylur tunglið 22% af
þvermáli sólar (12% af yfirborðinu). Tunglið færist yfir sólina frá
vestri til austurs og byrjar að sjást ofarlega til hægri á sólkringlunni
(„kl. 2“, ef sólinni er líkt við klukkuskífu). Þeir sem ætla að fylgjast
með myrkvanum eru alvarlega varaðir við að horfa beint í sólina
með sjónauka eða berum augum, nema ljósið sé mjög mikið deyft,
t.d. með rafsuðugleri eða dökkri filmu. Ef sjónauki er notaður er
best að láta hann varpa mynd af sólinni á hvítt spjald sem haldið er
í dálítilli fjarlægð og stilla síðan sjónaukann uns myndin verður skýr.
4. Deildarmyrkvi á sólu 15. desember. Sést á meginlandi Evrópu, í
vestanverðri Asíu og nyrst og austast í Afríku.
Tunglmyrkvar.
1. Almyrkvi á tungli 9. janúar. Hálfskugginn (daufur) byrjar að færast
yfir tunglið kl. 17 15 og alskugginn fylgir á eftir kl. 18 14. Tungl
er almyrkvað kl. 19 17. Miður myrkvi er kl. 19 56. Almyrkvanum
lýkur kl. 20 35. Tungl er laust við alskuggann kl. 21 38 og við hálf-
skuggann kl. 22 37. Meðan á myrkvanum stendur er tungl á austur-
himni frá Islandi séð.
2. Almyrkvi á tungli 6. júlí. Sést ekki hér á landi.
3. Almyrkvi á tungli 30. desember. Daufur hálfskugginn tekur að færast
yfir tunglið kl. 08 52 og alskugginn fylgir á eftir kl. 09 50. Er það
skömmu fyrir birtingu í Reykjavík og tungl þá lágt í norðvestri.
Almyrkvinn hefst kl. 10 58 og stendur í klukkustund. Miður myrkvi
er kl. 11 29, rétt eftir sólarupprás í Reykjavík, en tungl sest þar
kl. 11 44.
Stjörnumyrkvar.
I töflunni á næstu síðu eru upplýsingar um alla helstu stjörnumyrkva
sem sjást munu hér á landi árið 1982. Tímarnir, sem gefnir eru upp
á tíunda hluta úr minútu, eru reiknaðir fyrir Reykjavik. Annars staðar
á landinu getur munað nokkrum mínútum. Með birtu er átt við birtu-
stig stjömunnar, sbr. bls. 78; I aftasta dálki sést hvort stjarnan er að
hverfa (H) eða birtast (B) og hvar á tunglröndinni það gerist. Tölurnar
merkja gráður sem reiknast frá norðurpunkti tunglsins (næst pól-
stjörnunni) rangsælis. 0° er nyrst á tunglinu, 90° austast, 180° syðst og
270° vestast.
(62)